Greiðsla
félagsgjalda fyrir árið 2012
Strax á nýju ári verða sendir út greiðsluseðlar til félagsmanna
samkvæmt félagatali okkar. Eindagi félagsgjalda 5. apríl
2012. Eftir það leggjast á vextir. Þeir sem ekki
hafa lokið greiðslu fyrir 1. maí 2012 þurfa að
greiða flatargjald í hvert skipti sem leikið er á
Húsatóftavelli. Engar undantekningar verða gerðar á þeirri
tilhögun. Þeir sem vilja skipta félagsgjaldinu á nokkur
tímabil er bent á að hafa samband við formann, gjaldkera eða
sinn banka. Félagsmenn, ekki bíða með það fram á síðustu
stundu að ganga frá sínu ársgjaldi.
Við viljum einnig
ítreka það við félagsmenn að mörg stéttarfélög endurgreiða að
hluta eða öllu félagsgjald gegn kvittun frá banka eða
golfklúbbi.
Félagsgjöld fyrir árið 2012 eru eftirfarandi.
Eindagi 5. apríl 2012
- Einstaklingar 55.000 kr
- Hjónagjald 100.000 kr
- 67 ára og eldri 30.000 kr
- Námsmannagjald 30.000 kr
(Námsmannagjöldin eru eingöngu ætluð þeim sem eru í dagskóla. Sýna þarf
fram á staðfestingu frá skóla til að fá gjaldið samþykkt af stjórn GG.)
- Unglingar 0 til 16 ára 0
kr ef þeir búa í Grindavík.- (grunnskólaaldur)
- Nýliðar 40.000 kr (viðkomandi
hefur aldrei verið skráður í annan golfklúbb)
- Öryrkjar 75%+ 27.500 kr
-
Fjaraðild 40.000 kr. -
(fyrir þá sem búa utan Reykjaness - fjaraðild gildir einungis á
Húsatóftavöll en ekki á aðra velli sem G.G. er með samstarf við)
-
Fjaraðild hjóna 75.000 kr
fyrir þá sem búa utan
Reykjaness - fjaraðild gildir einungis á Húsatóftavöll en ekki á
aðra velli sem G.G. er með samstarf við)
Stjórnin

Staða GG jákvæð þrátt fyrir miklar framkvæmdir
Frá aðalfundi 29. des. 2011

Ágætis rekstrarár er að baki hjá Golfklúbbi Grindavíkur og nemur
hagnaður ársins um 2 milljónum króna. Rekstrartekjur ársins voru
um 28 milljónir en rekstrargjöld um 26 milljónir sem er hækkun
um 4 milljónir frá árinu 2010. Aðalfundur
klúbbsins fóru fram á Salthúsinu 29. des síðastliðinn og var hann vel sóttur.
Sjá skýrslu gjaldkera fyrir árið 2011
Um 209 meðlimir eru nú í GG og hefur þeim fækkað frá í fyrra.
En það má finna í því að skráningarkerfi sem GG notast við var
yfirfarið og þeir sem ekki greiddu ársgjöld voru teknir af
félagalistanum
Klúbburinn og Grindavíkurbær gerðu
samning árið 2008 þar sem klúbburinn fékk 51 milljón króna styrk
til að fara í stækkun vallarins. GG fékk leyfi til nota hluta
þeirrar fjárhæðar til að borga niður óhagstæð erlend lán. Það
hefur verið greitt til baka að stórum hluta. Enn standa
yfir stækkunarframkvæmdir á vellinum og áætlanir gera ráð fyrir
um 12 milljón króna kostnaði til að ljúka þeim.
Einnig hefur verið lögð mikil vinna við stækkun og endurbætur á
framtíðarskála GG. Kostnaður við þær framkvæmdir er kominn
í 8.5 milljónir en stefnt er að því að ljúka þeim í vor, áður en
sumaropnun hefst.
Sjá skýrslu stjórnar fyrir árið 2011
Ákveðið var að hækka félagsgjöld umfram það sem aðalfundur 2010
hafði ákveðið. Það er gert til að tryggja enn betur
rekstrargrundvöll golfklúbbsins og samræma gjaldflokkana Þess ber að geta að Golfklúbbur
Grindavíkur er stoltur af því að bjóða sérstök námsmannagjöld,
einnig fyrir örorkulífeyrisþega aldraða, nýliðagjöld og
hjónagjöld sem eru með þeim lægstu á landinu. Einn ber að hafa í
huga að félagsgjöldin verða áfram
með þeim lægstu miðað við 18 holu golfvelli landsins.
Sjá gjaldskrá árið 2012
Páll Erlingsson var endurkjörinn formaður klúbbsins en hann
hefur setið sem formaður undanfarin fjögur ár. Stjórn GG árið 2012
er því eftirfarandi: Páll Erlingsson (formaður), Halldór Einir
Smárason (ný í stjórn), Jóhann Einarsson, Jón Guðmundsson,
Gunnar Oddgeir Sigurðsson, Jón Júlíus
Karlsson, og Sigvaldi Þorsteinsson. Í varastjórn eru Halldór
Jóel Ingvason, Friðrik Ámundason og Jóhann S. Ólafsson
sjá stjórnarskipan.
Páll Þorbjörnsson gaf ekki kost á sér til endurkjörs og kann
golfklúbburinn honum miklar þakkir fyrir gott starf.

Aðalfundur Golfklúbbs
Grindavíkur
fimmtudaginn 29. desember

Aðalfundurinn verður fimmtudaginn 29. desember kl. 19:30 í
Salthúsinu (efri hæðin).
Dagskrá fundarins er svohljóðandi:
-
Fundur settur
-
Kosning fundarstjóra og fundarritara
-
Fundargerð síðasta aðalfundar lesin
-
Skýrsla stjórnar
-
Skýrsla gjaldkera
-
Umræður um skýrslu stjórnar og skýrslu gjaldkera
-
Kosning
formanns
-
Kosning stjórnar og varastjórnar
-
Ársgjöld 2012
-
Önnur mál
Auglýst er eftir góðu fólki í stjórn klúbbsins og í nefndir á
vegum hans. Sérstaklega er bent á mikilvægi þess að fylla í
mótanefnd (4 aðilar) Ábendingar og tilkynningar sendist til
gggolf@gggolf.is, merkt aðalfundur GG 2011.
Stjórnin

22.
des
Landsbankinn færir GG höfðinglega afmælisgjöf

Samhliða undirritun samstarfssamnings Landsbankans og Golfklúbbs Grindavíkur færði Landsbankinn höfðinglegt fjárframlag í tilefni af 30 ára afmæli Golfklúbbs Grindavíkur í ár. Styrkurinn er sérstaklega hugsaður til uppbyggingar unglinga- og barnastarfs hjá klúbbnum. Landsbankinn hefur undanfarin ár verið einn helsti styrktar- og stuðningsaðili golfklúbbsins og stutt sérstaklega vel við bakið á uppbyggingarstarfi GG. Stjórn Golfklúbbs Grindavíkur færir þeim hugheilar þakkir fyrir ómetanlegt framlag sem án efa mun styrkja klúbbinn enn frekar í því að byggja upp kylfinga framtíðarinnar.

22.
des
Landsbankinn og GG undirrita samstarfssamning

Landsbankinn í Grindavík og Golfklúbbur Grindavíkur hafa undirritað nýjan samstarfssamning til þriggja ára. Markmið samningsins er að styðja við golfíþróttina í bæjarfélaginu með sérstakri áherslu á barna-og unglingastarf klúbbsins. Undirritunin fór fram fimmtudaginn 22. desember.

28.
okt
Bændaglíma Golfklúbbs Grindvíkur
laugardaginn 5. nóv.
Bændaglímu og lokahóf GG hefur verður laugardaginn 5. nóvember.
Bændaglíman hefst kl. 12:30 stundvíslega.
Lokahófið og verðlaunaafhending verður í golfskálanum strax að
bændaglímu lokinni.

28. okt
Nýtt vallarmat á Húsatóftavelli
Föstudaginn 28. október 2011 tók nýtt vallarmat gildi á
Húsatóftavelli. Eftir vallarmatið hefur heildarlengd vallar á
gulum teigum minnkað um 126m, úr 5381m í 5255m. Af rauðum
teigum um 121m, eða úr 4627m í 4506m. Megin breytingu á
lengdum brauta má rekja til stækkana á flötum frá því sem var.

12.
okt.
Opinn félagafundur GG vegna stækkunar skála
Mánudaginn 17. október verður haldinn opinn félagafundur GG í
golfskálanum að Húsatóftum.
Á dagskrá fundar er m.a. farið yfir framkvæmdir við stækkun
framtíðar skála GG, kostnaðaráætlanir. kynning á stöðu
framkvæmda og fjármögnun þeirra. Stjórn GG vill hvetja
alla félaga og velunnara til að mæta á fundinn. Fundurinn
hefst kl. 20:00 í golfskálanum.

15.
sept
Góð þátttaka í opna afmælismóti GG




Það var ekki kræsilegt veður sem mætti fyrstu kylfingum
dagins í opna afmælismóti GG en þeir létu það ekki á sig fá,
heldur nutu þess að leika Húsatóftavöll sem var í frábæru
standi. En veðurguðirnir voru á okkar bandi því brátt fór
að stytta upp og sólin að skína, þó gola væri. Mjög góð
þátttaka var í mótinu enda voru verðlaunin glæsileg. Það
má þakka styrktaraðilum mótsins; útgerðarfélagið Þorbjörn ehf.,
útgerðafélagið Vísi ehf., Samhentir umbúðalausnir og Nettó með
veglegum styrkjum. Veitt voru verðlaun fyrir átta fyrstu
sætin með forgjöf ásamt 13. sæti, 21. sæti, 59. sæti og 75.
sæti. Einnig voru nándarverðlaun fyrir 4./17. holu, 8.
holu og 13. holu. Andri Marteinsson lék manna best í dag,
því hann fékk hvorki fleiri né færri en 45 punkta, en næstur á
eftir var með 42 punkta. Úrslitin urðu sem hér segir:
1. sæti með forgjöf - 50.000 kr gjafakort í Nettó - Andri
Marteinsson
2. sæti með forgjöf - 40.000 kr gjafakort í Nettó - Svanhvít
Helga Hammer
3. sæti með forgjöf - 30.000 kr gjafakort í Nettó - Ingvar
Hafsteinn S. Hreinsson
4. sæti með forgjöf - 25.000 kr gjafakort í Nettó - Jóhann
Þorgrímur Hallgrimsson
5. sæti með forgjöf - 20.000 kr gjafakort í Nettó - Steinþór Óli
Hilmarsson
6. sæti með forgjöf - 15.000 kr gjafakort í Nettó - Ari Gylfason
7. sæti með forgjöf - 15.000 kr gjafakort í Nettó - Sigurður
Gunnar Ragnarsson
8. sæti með forgjöf - 15.000 kr gjafakort í Nettó - Halldór
Þórður Oddsson
13. sæti með forgjöf - 10.000 kr gjafakort í Nettó - Erlingur
Jónsson
21. sæti með forgjöf - 10.000 kr gjafakort í Nettó - Hávarður
Gunnarsson
59. sæti með forgjöf - 10.000 kr gjafakort í Nettó - Guðmundur
Bjarni Harðarson
75. sæti með forgjöf - 10.000 kr gjafakort í Nettó - Páll
Erlingsson
Nándarverðlaun á 4./17. holu - Jóhann S. Ólafsson 2,44
Nándarverðlaun á 8. holu - Jóhann Þorgrímur Hallgrímsson 1,67m
Nándarverðlaun á 13. holu - Bjarni Andrésson 0,54 m

15.
sept
Sigurður Helgi sigraði á Áskorendamótaröð GSÍ

Sigurður Helgi Hallfreðsson, félagi í Golfklúbbi Grindavíkur
sigraði á Áskorendamótaröð GSÍ í sínum aldursflokki.
Mótaröðin var opin kylfingum af öllu landinu og var röð móta sem
töldu til stiga sem keppendur söfnuðu. Sigurður var því
með mesta heildastigafjöldann og því stigameistari í sínum
aldursflokki. Margir efnilegir kylfingar eru að koma fram
á sjónarsviði í klúbbnum og verður spennandi að fylgjast með
þeim í komandi framtíð.

15.
sept
Magma Energy styrkir Golfklúbb Grindavíkur
Í gær, fimmtudaginn 15. september skrifaði Golfklúbbur
Grindavíkur og Maggma Energy undir styrktarsamning.
Styrktarsamnignurinn kveður á aðfjárhæðinni sé verið fyrst og
fremst í barna og unglingastarfið hjá klúbbnum. Samningurinn er
til tveggja ára. Þetta kemur sér svo sannarlega vel fyrir
golfklúbbinn og mun nýtast vel í því uppbyggingarstarfi sem
ráðist hefur verið í síðastliðin sumur. Kunnum við Magma
bestu þakkir fyrir þennan stuðning og um leið bjóðum við þá í
hóp velunnara félagsins.
