|
|
||||||||||||||||||||
|
Eldri fréttir
|
Fréttir -ágúst 08 31.
ágúst Veðrið lék svo sannarlega við þá
kylfinga sem lögðu leið sína á Húsatóftavöll í Opna Texas Scramble mótið,
sól og blíða enda voru skráðar rúmlega 50 sveitir til leiks. Menn
nutu sín í veðurblíðunni og var skorið hjá mörgum í samræmi við það.
Sigursveitin, Bazookurnar, léku á samtals 66 höggum, eða 61 nettó.
Þrjár sveitir voru jafnar á 63 höggum nettó, en að loknum útreikningum urðu
Rólegir drengir, Guðjón Einarsson og Guðmundur Valur Sigurðsson í örðu
sæti. Í því þriðja urðu Björn&Helgi, Björn Kristinn Björnsson og
Helgi Runólfsson. Í fjórða sæti urðu Helgi Dan og pro, Helgi Dan
Steinsson og Einar Guðberg Einarsson. Veitt voru nándarverðlaun á 8.
holu og 13. holu. Hjalti Mogensen og Steinar Birgisson voru næstir á
8. holu með 105cm. Ingvar Guðjónsson og Hávarður Gunnarsson voru
næstir á 13. holu með 47cm. Kylfingar báru mikið lof á völlinn sem
skartaði sínu fegursta og margir hverjir áttu ekki orð til að lýsa hversu
skemmtilegur og fjölbreytilegur völlurinn er, ekki síst hið frábæra
landslag sem hann hann er í. Margir sögðust án efa ætlar sér að venja
oftar komur sínar á völlinn. Það eitt og sér segir meira en mörg orð.
Hér eru nokkrar myndir frá mótinu
30.
ágúst Á morgun heldur Golfklúbbur Grindavíkur Texas scramble mót á Húsatóftavelli. Skráning í mótið hefur gengið mjög vel og þegar er fullt í alla ráshópa fyrir hádegi. Nokkrir rástímar eru enn lausir, en skráningu lýkur kl. 8:00 í fyrramálið. Sjá skráningu hér.
29.
ágúst Möllerinn var haldinn fimmtudaginn 28. ágúst síðastliðinn og tóku 32 sveitir þátt. margar sveitir komu vel stemmdar til leiks og baráttan var mjög hörð um efsta sætið. Sveit útgerðarfélagsins Vísis varð sigurvegari á 44 punktum. Myndir frá Möllers mótinu eru á myndasíðu. Smellið hér
20.
ágúst Það er búið að taka ákvörðun um það að fresta Möllersmótinu til fimmtudags í næstu viku, s.s. 28. ágúst. Veðurspáin fyrir föstudag 22. ágúst var frekar döpur og því var þessi ákvörðun tekin. Þetta er stærsta mót klúbbsins og við viljum reyna að hitta á gott veður í svona stórskemmtilegu móti.
19.
ágúst Staða 5 efstu manna fyrir síðustu
umferðina: Eins og gefur að líta er baráttan á toppnum hörkuspennandi og sjáum við fram á skemmtilega keppni í síðasta mótinu sem er í dag þriðjudaginn 19.ágúst. Heildarstöðuna er hægt að sjá hérna á Golf.is
Leikið var í Tóftabóndanum dagana 5.-6. ágúst síðastliðinn og samtals tóku 27 kylfingar þátt. Guðmundur Valur Sigurðsson varð í fyrsta sæti með forgjöf á 71 höggi. Á sama höggafjölda urðu þeir Davíð Arthúr Friðriksson og Gunnar Sigursveinn Arnbjörnsson. Þar sem aðeins 27 tóku þátt hefur verið ákveðið að 5 efstu men Tóftabóndans sitja hjá í næstu umferð en kylfingar frá 6. sæti til og með 27. sætis leika um réttinn að komast í 16 manna úrslit. Hér má sjá lokastöðuna úr mótinu. Í 32 manna úrslitum leika menn miðað við röðun úr þessu móti. Leik skal lokið í þessari umferð fyrir mánudaginn 18.ágúst. Sá er var með besta skor leikur gegn versta skori. Þeir sem lentu saman má sjá hér. Það gekk ekki upp hjá
okkar mönnum fyrir norðan í sveitakeppninni. Þeir háðu hetjulega
baráttu við stórgóðar sveitir í 2. deildinni t.d. GV, Odd, GA, Hellu (hluti
af GR). Þrátt fyrir ágæta spilamennsku náðum við ekki takmarkinu
okkar að halda okkur í deildinni. Því er það 3. deildin að nýju hjá
okkur. En við komum fílefldir til leiks að nýju á næsta ári með það
að markmiði að komast í 2. deildina á ný.
Golfklúbbur Grindavíkur hefur hafið sölu á glæsilegum golffatnaði á mjög hagstæðu verði. Nýja sendingin verður ekki merkt með lógói Golfklúbbs Grindavíkur nema ef sérstaklega verður óskað eftir því. Allar þessar vörur eru hágæðamerki s.s. Ashworth, Antiqua, Mizuno, Oakley Firethorn. Þessar vörur eru til afgreiðslu hjá Páli formanni (gsm 693-9065). Stærðir: Small, Medium, Large og Extra Large
6.
ágúst Annel Þorkelsson úr GSG sigraði án forgjafar á 10. stigamóti GG. Hann lék völlinn á samtals 70 höggum eða 66 nettó. Frábær hringur hjá honum. Næstur honum kom Gunnlaugur Sævars klúbbmeistari á 74 höggum og í því þriðja Sigurður Hafsteinn Guðfinnsson, á 75 höggum. Ef forgjöf er dregin frá þá var Annel í fyrsta sæti. En þar sem ekki er hægt að vinna til verðlauna í báðum flokkum sigraði Garðar Páll á 67 höggum sem þýðir verulega lækkun hjá honum. Góður árangur þar. Í öðru sæti var Sigurður Hafsteinn á 69 höggum og í því þriðja Guðmundur Valur Sigurðsson á 70 höggum. Hér má sjá úrslitin úr mótinu.
|
|
||||||||||||||||||
|
Golfklúbbur Grindavíkur 2008 vefumsjón: paller@grindavik.is |
||||||||||||||||||||