Eldri fréttir

Mars - apríl 08

Maí 08

Júní 08 Júlí 08
Ágúst 08 Sept 08
Okt 08 Des 08










 


 

 

 

Fréttir

31. maí 08
Björgvin Sigmundsson sigraði á Sjóaranum Síkáta - Þorbjarnar hf.

Björgvin Sigmundsson GS sigraði á golfmótinu Sjóaranum Síkáta - Þorbjarnar hf., sem haldið var í dag á Húsatóftavelli.  Hann fékk samtals 41 punkt en í öðru sæti var Pálmi Ingólfsson á 37 punktum.  Í þriðja sæti varð Annel Jón Þorkelsson GS á 36 punktum.  Í flokki 55 ára og eldri sigraði Bjarni Andrésson á 36 punktum.  Í öðru sæti varð vallarstjórinn sjálfur Guðjón Einarsson á 31 punkti og í því þriðja varð Yzuru Ogino einnig á 31 punkti.  Veðrið lék svo sannarlega við kylfinga í dag þó morguninn lofaði ekki góðu í fyrstu.  Sól og hafgola en fremur milt í veðri.  Draumaveður fyrir kylfinginn og nutu menn þess að leika golf við frábærar aðstæður. 
Námundarverðlaun voru veitt fyrir að vera næstur holu á par 3 holunum og eftirtaldir kræktu í þau verðlaun:
Á 4./16. Annel Jón Þorkelsson 6, 26 metra
Á 8. Annel Jón Þorkelsson 3,58 metra
Á 13. Yzuro Ogino 0,29 metra.
Völlurinn er í góðu ásigkomulagi og flatirnar fara sífellt batnandi. Létu kylfingar mjög vel af vellinum og voru mjög ánægðir með allar aðstæður.  Hér er hægt að sjá nánar úrslitin í mótinu.

Vinningshafar eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Bjarka Guðmundsson Þorbirninum í síma 894-3134 til að vitja vinninganna.

30. maí 08
Halldór Einir sigraði með forgjöf og Hávarður án forgjafar á þriðja stigamóti GG

Halldór Einir Smárason sigraði á sigraði á þriðja stigamóti klúbbsins í sumar, Stigamóti TM. Hann lék á samtals 68 nettó og Hávarður Gunnarsson sigraði án forgjafar, eða á 73 höggum; 2 yfir pari vallar. Haraldur Hjálmarsson og Hávarður lentu í 2. og 3. sæti með forgjöf, á 70 höggum nettó en í 2 sæti án forgjafar var Bragi Jónsson GS á 74 höggum og Leifur Guðjónsson í því þriðja á 78 höggum.
39 þátttakendur voru í mótinu sem spilað var í frábæru veðri, glaða sólskini og blíðu. 
Hér má sjá stöðuna eftir þrjú stigamót GG

29. maí 08
Félagsskírteinin og pokamerkin útí skála.

Núna eru félagsskírteinin og pokamerkin komin útí skála en það er einungis fyrir þá sem þegar hafa greitt gjöldin sín eða gert aleflis samning á VISA. 

Klúbbfélagar eiga að vera löngu búnir að greiða gjöldin sín og þeir sem ekki hafa gert það fyrir 6. júní þurfa að greiða vallargjöld.  Ef ekkert hefur heyrst frá þeim sem skulda fyrir þann tíma verða þeir afskráðir úr klúbbnum.

Vinsamlegast greiðið gjöldin ykkar sem allra fyrst eða hafið samband við gjaldkera í mail: gunnar.gunnarsson@sjova.is eða símleiðis í síma 865-2900 ef það þarf að ná samkomulagi um greiðslu.

Við viljum einnig brýna fyrir félagsmönnum að hafa pokamerkin sýnileg á pokunum til sönnunar á að félagsgjald hafi verið greitt.

Kveðja,
Gjaldkeri G.G.

24. maí 08
Opna Landsbankamótinu lokið í Grindavík

Það var Óskar Eðvarðsson sem bar sigur úr bítum í Opna Landsbankamótinu í Grindavík í dag.  Hann hlaut 41 punkt og dugði það til sigurs í dag.  Efstu 5 menn voru annars í þessari röð:

1. Óskar Eðvarðsson 41 punktur
2. Gunnar Best Sigurðsson 38 punktar
3. Sigurður "Diddi" Guðfinnsson 36 punktar
4. Guðmundur Pálsson 36 punktar
5. Börkur Geir Þorsteinsson 35 punktar

Námundarverðlaun fengur eftirtaldir:

  • Námundi á 4./17 holu: Ágúst Ársælsson 220cm frá holu
  • Námundi á 8. holu: Steinþór Þorvaldsson 340cm frá holu
  • Námundi á 13. holu: Birgir Mar 323cm frá holu

Lengsta teighögg á 6. holu átti Ágúst Ársælsson en hann átt sennilega bara 15-20 metra í grínið á 6. eftir teighöggið á 6 braut sem er 314 metra hola.

Þökkum við þátttakendum fyrir þátttökuna og verið velkomin aftur.

Mótanefnd.

23. maí 08
Sigurður Hafsteinn Guðfinnsson sigraði án forgjafar og Gerða Hammer með forgjöf á öðru stigamóti

Sigurður Hafsteinn Guðfinnsson sigraði á öðru stigamóti klúbbsins í sumar, Stigamóti Vélsmiðju Grindavíkur.  Hann lék á samtals 80 höggum eða 9 höggum yfir pari vallarins.  Tveir næstu léku á 81höggi, þeir Hólmar Waage og Birgir Mar Guðmundsson.  Hólmar lenti í öðru sæti þar sem hann lék síðar 9 holurnar á færri höggum.  22 þátttakendur voru í mótinu sem spilað var í miklum vindi en sem betur fer fremur þurru veðri.
Gerða Kristín Hammer lék á 69 höggum með forgjöf.  Frábært skor hjá henni miðað við veðráttuna sem kylfingar þurftu að takast á við.  Hún sigraði því með forgjöf.  Hólmar Waage lenti í öðru sæti á 71 höggi og Birgir Mar Guðmundsson á 72 höggum.  Ágætis skor miðað við erfiðar aðstæður.  Þess má geta að Guðjón Einarsson vallarstjóri var næstur holu á 13 braut en hann notaði til þess dræverinn sinn í miklum mótvindi en til gamans má nefna það að brautin er 138m og fallhæð um 10 metrar.

22. maí 08
Auðunn Einars með kennslu/æfingu á morgun.

Auðunn Einars mætir að nýju á morgun föstudag 23. maí til að kenna krökkunum í klúbbnum.  Síðast þegar hann mætti voru um 50 krakkar sem komu til að njóta leiðsagnar hans.  Þau voru gríðarlega ánægð með kennsluna og ekki spurning að hann er mikill hvalreki á fjörur okkar klúbbfélaga.  Sannarlega frábær kennari sem sýnir svo ekki verður um villst að hann hefur sérstaka hæfileika að vinna með krökkum og unglingum.  Frábært tækifæri fyrir alla krakka til að njóta fyrsta flokks leiðsagnar og kennslu.  Yngri hópur (1999-1997) mætir kl. 14:00 og eldri hópur kl. 15:30.  Þeir sem fæddir eru 1996 mæta með eldri hópnum.

22. maí 08
Hafþór Skúla sigraði án forgjafar og Ríkharður með forgjöf á fyrsta stigamótinu

Hafþór Skúlason sigraði á fyrsta stigamóti klúbbsins í sumar.  Hann lék á samtals 78 höggum eða 7 höggum yfir pari vallarins.  Tveir aðrir léku á 78 höggum, þeir Gunnalugur Sævarsson og Bjarni Andrésson.  Hafþór sigraði þar sem hann er með 4 í forgjöf en hann og Gunnlaugur Sævars (2 í forgjöf) léku fyrri og síðari 9 holurnar á sama höggafjölda (40-38). Bjarni lenti því í 3ja sæti þar sem hann lék (38-40).  41 þáttakandi var í mótinu.
Þess má geta að Ríkharður Guðfinnsson lék á 65 höggum með forgjöf.  Frábært skor hjá drengnum en hann var með 21 í forgjöf.  Hann sigraði því með forgjöf.  Gerða Kristín Hammer lenti í öðru sæti með forgjöf eða á 67 högguim nettó.  Í þriðja sæti varð Stefán Leifur Sigurðsson á 70 höggum nettó.  Það má segja að sumarið fari bara nokkuð vel af stað hjá kylfingum.

16. maí 08
Vinavallasamningur við Golfklúbb Bakkakots

Gerður hefur verið vinavallasamningur við Golfklúbb Bakkakots og felur hann í sér að félagar úr klúbbunum geta leikið á velli hvors um sig gegn greiðslu á 1.000 kr gjaldi.  Þetta tekur gildi frá og með deginum í dag.

Stjórnin

16. maí 08
Opna mótinu -Gleðimóti Arma ehf. aflýst

Opna mótinu, GLeðimóti Arma ehf. sem vera átti á morgun hefur verið aflýst af óviðráðanlegum orsökum.

12. maí 08
Góð mæting í kennsluna/æfingarnar til Auðuns Einars.

Það var góð mæting í kennslu til Auðuns Einars í dag þrátt fyrir að hvítasunna sé margfræg ferðahelgi meðal fjölskyldna bæjarins.  Alls mættu um 40 krakkar til hins frábæra golfkennara sem hefur reynst okkur hinn mesti happafengur.  Hann skipti þeim í nokkra hópa og honum til aðstoðar var Guðmundur Bragason.  Helmingur hópsins fór í gegnum undirstöður sveiflunnar og kenndi hann þeim gripið, sveifluferilinn ásamt því laga það sem aflaga fór.  Það skein mikil ánægja úr andlitum krakkanna sem nutu leiðsagnar hans og greinilegt að á svo stuttum tíma sem hann var með þeim náði hann að vinna vel með marga þætti.  Á meðan sá hópur var hjá Auðuni, sá Guðmundur um að fara með þeim í þrautabraut sem Auðunn hafði sett upp við púttvöllinn.  Þar púttuðu þau og vippuðu inn að ákveðnum svæðum nálægt holunum.  Satt að segja frábær dagur hjá krökkunum og mikill happafengur fyrir golfklúbbinn að njóta leiðsagnar hans.  Myndir frá kennslunni er á myndasíðunni.

12. maí 08
Góð þáttaka í Texas scramble móti Veiðafæraþjónustunnar

Fullt var í fyrsta móti sumarsins, Texas scramble móti Veiðafæraþjónustunnar, eða samtals 92 þátttakendur og komust færri að en vildu.  Það blés ekki byrlega fyrir fyrstu ráshópa morgunsins því suðaustan strekkingur og rigning tók á móti kylfingum.  Menn áttu ekki von á þessu veðri og áttu margir hverjir erfitt með að sýna góða spilamennsku framan af enda margir hverjir orðnir loppnir og lúnir er á leið.   Þegar á leið morguninn hægði á veðrinu og rigningin minnkaði umtalsvert.  Það má segja að þeir sem síðastir fóru út máttu prísa sig sæla að sleppa við atgang veðursins og náðu menn nokkuð góðu skori þrátt fyrir að aðstæður væru ekki uppá hið besta.  Samt sem áður nutu menn þess út í ystu æsar að leika völlinn sem sannaði það enn og aftur að hversu skemmtilegur hann er kylfingum, sem hrósuðu vellinum í hástert.  Ef eitthvað má útá setja var hversu flatirnar voru hægar, amk. framan af og þurftu sumir hverjir að hafa sig alla við að ná að pútta sem næst holu.  Þeir sem að lokum komu inn sem sigurvegarar voru Jón G. Pétursson og Sigurbjörn Þorgeirsson á 61 höggi með forgjöf.  Í öðru sæti voru KR-ingarnir Axel Bóasson og Haraldur Franklín Magnússon á 63 höggum.  Í þriðja sæti var Slökkviliðið, Davíð Arthúr Friðriksson og Guðbrandur Arnar Lárusson á 68 höggum. Hægt er að sjá úrslitin með því að smella hér á.
Nándarverðlaun, næstur holu á 4./17. braut fékk Guðmundur Valur Sigurðsson sem var 1,45m frá holu
Nándarverðlaun, næstur holu á 8. braut fékk Benedikt Gunnarsson sem var 0,99m frá holu
Nándarverðlaun, næstur holu á 4./17. braut fékk Jósef Ólafsson sem var 3,09m frá holu

12. maí 08
Stigamótið fært til fimmtudagsins 15.maí

Fyrsta stigamót sumarsins, Stigamót Hérastubbs bakara, hefur verið fært til fimmtudagsins 15. maí þar sem Grindvíkingar eiga leik í Landsbankadeildinni næstkomandi miðvikudag. 

9. maí 08
Mikill áhugi hjá krökkunum

Þetta árið hefur Golfklúbbur Grindavíkur verið að endurvekja barna- og unglingastarfið hjá sér af miklum móð.  Einn er sá liður að bjóða upp á æfingar fyrir krakka og unglinga á aldrinum 9 til 16 ára.  Sá sem veg og vanda hefur af þessari vakningu er Guðmundur Bragason formaður barna- og unglinganefndar.  Þegar eru um 60 krakkar komnir á skrá og sýna þau æfingunum/kennslunni mjög mikinn áhuga.  Þeir sem koma til með að sjá um kennsluna og æfingarnar eru Davíð Arthúr Friðriksson og Hafþór Skúlason.  Auk þess mun Guðmundur Bragason og Páll Erlingsson aðstoða ásamt því að vera tengliðir við stjórn og halda utanum þennan málaflokk.  Frábært að sjá hversu góð þátttaka er og áhugi krakkkanna skín úr andlitum þeirra.  Þess má geta að Auðunn Einarsson golfkennari PGA mun mæta mánudaginn 12. maí (annan í hvítasunnu) og sjá um æfingar og kennslu frá kl. 13:00 - 16:00.  Yngri hópur er frá kl. 13:00 og sá eldri kl. 14:30. Myndir frá æfingunum munu birtast fljótlega hér á síðunni.

9. maí 08
Nýjar EGA forgjafareglur - nauðsynlegur lestur fyrir kylfinga

Hvað er virk forgjöf ?

Forgjafir kylfinga sem hafa skilað inn 4 eða fleirum gildum skorum inn á golf.is á síðasta ári eða þremur á þessu ári teljast hafa “virka forgjöf” og verður hún merkt með stjörnu (*) í forgjafarspjaldi kylfingsins inn á golf.is. Gild skor teljast skor úr keppni eða æfingahring við forgjafarskilyrði. Kylfingar sem ekki hafa skilað tilætluðum fjölda gildra skora teljast með óvirka forgjöf vegna þess hún byggist á ónógum núgildandi upplýsingum og hana er ekki unnt að staðfesta svo marktækt sé. Þeir kylfingar sem eru með óvirka forgjöf fá aftur virka forgjöf ef þeir skila inn 3 gildum skorum á golf.is á þessu ári. Mótanefndir klúbba ættu að láta alla keppendur vita í upplýsingum um mótið að kylfingar sem eru með óvirka forgjöf geta ekki unnið til verðlauna í mótinu.

EGA forgjafarkerfið er það kerfi sem Evrópska Golfsambandið (EGA) leggur öllum aðildarlöndum til að nota til að tryggja sanngirni og samræmi í forgjöf um alla Evrópu. Og til að samræma forgjafarkerfið hér á landi við önnur Evrópulönd þá verða nokkrar breytingar þetta árið.

Sjá nánar hér fyrir neðan:
Forgjafarbreytingar

8. maí 2008
Grindavíkurbær styrkir Golfklúbb Grindavíkur um 50 milljónir

Í hádeginu í dag skrifaði Ólafur Ö Ólafsson bæjarstjóri og Páll Erlingsson formaður golfklúbbs Grindavíkur undir samning milli Grindavíkurbæjar og Golfklúbbs Grindavíkur. 

Í samningnum kemur m.a. fram að Grindavíkurbær mun leggja til 17 milljónir á ári næstu þrjú árin til uppbyggingar á golfbrautum golfvallarins eða 51 milljón. Samningur þessi er háður samþykki bæjarráðs.
 Í samtali við bæjarfulltrúa þau  Sigmar Eðvarðsson og Jónu K. Þorvaldsdóttur kom m.a fram,, að þessi samningur markar tímamót í sögu golfíþróttarinnar í Grindavík
 
„Í framtíðinni mun verða byggður upp alvöru völlur með öllum möguleikum til framtíðar, frábær staðsetning í fallegu og ögrandi umhverfi.  Með þessum samningi erum við ekki síst að efla íþróttina til framtíðar heldur einnig að styðja við hið góða starf sem frumkvöðlar og golfáhugafólk í Grindavík hefur staðið að.

 

Mynd; standandi ; Sigmar Eðvarðsson, Jóna K Þorvaldsdóttir og Gunnar M. Gunnarsson; sitjandi Ólafur Ö. Ólafsson og Páll Erlingsson 

6. maí 2008
Undirritun styrktarsamnings við Grindavíkurbæ

Fimmtudaginn 8. maí næstkomandi kl. 12:00 mun Grindavíkurbær og Golfklúbbur Grindavíkur undirrita styrktarsamning í Saltfisksetrinu.  Þessi samningur er golfklúbbnum gríðarlega mikilvægur og sýnir án nokkurs vafa þann metnað sem Grindavíkurbær og Golfklúbburinn hafa varðandi framtíðarsýn og uppbyggingu golfíþróttarinnar í Grindavík.  Samningurinn mun tvímælalaust marka þáttaskil í allri starfsemi okkar og frábært að sjá þann velvija sem bæjaryfirvöld sýna í verki sínu.

6. maí 2008
Sumarflatirnar teknar í notkun föstudaginn 9. maí

Undanfarna daga hafa flatirnar tekið gríðarlega vel við sér og þegar hafa nokkar þeirra verið slegnar.  Ef veður leyfir og flatirnar halda áfram að taka við sér verður opnað á þær föstudaginn 9. maí næstkomandi.  Að sögn vallarstjóra og formanns vallarnefndar líta þær mjög vel út, grænar og þéttar eins og á miðju sumri.  Það er ótrúlegt þessa breytingu á svo stuttum tíma.  Þeir sem hafa hugsað sér að taka þátt í mótinu á annan í hvítasunnu eru hvattir til að kíkja á völlinn og njóta þess að spila hann um helgina í svo góðu ástandi sem hann er.

6. maí 2008
Frábær mæting á golfæfingu yngri krakkanna

Frábær mæting var á fyrstu golfæfinguna fyrir 9-15 ára krakkana í dag.  Þrátt fyrir slagveður mættu samtals 40 krakkar í kennslu og leiðsögn og létu veðrið ekki á sig fá.  Skipt var upp í tvo flokka eftir aldri. Yngri flokkurinn (9-11 ára) mættu kl. 14:30 en eldri flokkurinn kl. 15:45.  Þeim var síðan skipt á þrjár stöðvar þar sem farið var í grunnþættina; einn hópur fór í að pútta á meðan aðrir fóru í grunnatriði sveiflunnar (grip, stöðu og sveifluferil) en þriðji hópurinn fór í að vippa.  Meginmarkmiðið er að kynna þeim golfið með aðaláherslu á skemmtanagildið.  Fyrirhugað er að þessar æfingar og kennsla verði framvegis tvisvar sinnum í viku, á þriðjudögum og fimmtudögum á ofangreindum tíma.  Með þessu vonumst við til að yngri kynslóðin njóti þess að taka þátt og verði stór hluti af starfi klúbbsins því þeirra er náttúrulega framtíðin.

3. maí 2008
Auðunn Einarsson með kynningu og kennslu um hvítasunnuna

Mánudaginn 12. maí (annar í hvítasunnu) og föstudaginn 23. maí verða aukaæfingar sem Auðunn Einarsson PGA golfkennari, golfklúbbnum Keili, mun stjórna.  Tími þeirra mun verða auglýstur sérstaklega síðar. Auðunn er golfáhugamönnum vel kunnugur þar sem hann hefur verið í fremstu röð kylfinga undanfarin ár og m.a. þátttakandi í mótaröð GSÍ. Hann hefur getið sér góðs orðs sem frábær og metnaðarfullur golfkennari. Ekki er vafi á að hann mun reynast okkur dýrmætur því uppbyggingarstarfi sem við erum að fara af stað með.

3.maí 08
S
kipulagðar golfæfingar hefjast fyrir börn og unglinga

Skipulagðar golfæfingar hjá Golfklúbb Grindavíkur fyrir börn og unglinga hefjast þriðjudaginn 6. maí.
Í byrjun er miðað við árgang 1999 og eldri, en að afloknu tveggja vikna golfnámskeiði fyrir börn í byrjun júní verður athugað með æfingar fyrir yngri börnin.

Markmið með þessum æfingum og væntanlegu golfnámskeiði er:

  • Að leyfa börnum og unglingum að prufa og kynnast golfíþróttinni

  • Að kenna undirstöðuatriði golfsins (agi, tækni, reglur og leikskilningur)

  • Síðast en ekki síst að hafa gaman því golf er jú mikil skemmtun!!

Nánar hér

2.maí 08
Sumargrínin tekin í notkun 12 maí

Stutt er í að sumarflatirnar verði opnaðar, en eins og allir vita hefur veturinn verið okkur erfiður sökum veðurs.  Það eitt og sér hefur seinkað hjá okkur öllu starfi en sem betur fer hefur tíðin verið að skána þannig að flatirnar hafa verið að koma ágætlega til.  Nú er svo komið að leikið verður á þeim í fyrsta skipti í fyrsta móti sumarsins þann 12. maí en þá höldum við Texas Scramble mót með Veiðafæraþjónustunni.

2.maí 08
Skálinn opnaður 1. maí

Nú hefur skálinn okkar verið opnaður að nýju fyrir sumarið og menn hvattir til að kíkja í skálann og skrá sig í dagbókina.  Að sjálfsögðu sjá þær systur um léttar veitingar á hópflegu verði eins og undanfarin ár.  Skálinn verður opinn sem hér segir:

Virkir dagar kl. 14:00- 21:00
Helgar
kl. 11:00 - 18:00

 
















Golfklúbbur Grindavíkur 2008 vefumsjón: paller@grindavik.is