Eldri fréttir

Mars - apríl 08

Maí 08

Júní 08 Júlí 08
Ágúst 08 Sept 08
Okt 08 Des 08












 


 

 

 

Fréttir mars - apríl 2008

21.apríl 08
Vetrargolf - ekki leika á brautunum.

Nú fer að líða að golfsumrinu okkar og marga klæjar í fingurgómana eftir því að komast á völlinn til að spila.  Ekkert er skemmtilegra en að leika golf við kjöraðstæður og þegar völlurinn er í góðu ásigkomulagi.  Þess vegna er mjög mikilvægt að ganga vel um völlinn okkar og taka tillit til hvernig ástand er á vellinum okkar. Því miður eru það ekki allir sem átta sig á því að þegar slegið er af brautum á þessum árstíma getur það skemmt völlinn og haft þau áhrif á að hann nær ekki eðlilegum gróanda.  Á þessum tíma árs er ekki leyfilegt að leika af brautum nema að tía upp á þeim.   Þess vegna eiga kylfingar að færa boltann af brautum í kragann og slá þaðan.  Þeir sem ekki fara eftir því eiga það á hættu að verða vísað af vellinum án ítrekunar.  Virðum völlinn, leikum eftir aðstæðum og skemmum ekki brautirnar.  Færum boltana af brautum og sláum þar sem minni áhrifa gætir.

Stjórnin

21.apríl 08
Ársgjöldin 2008

Að gefnu tilefni vill stjórn Golfklúbbsins koma því til félagsmanna að greiða ársgjöldin sín fyrir 1. maí nk. að öðrum kosti þurfi þeir að greiða flatargjald.  Hægt er að ganga frá greiðslum hjá gjaldkera klúbbsins t.d. með greiðsludreifingu.  

Auk þess viljum við ítreka það við félagsmenn að þeir hafi pokamerkin sýnileg þegar þeir eru að leika á vellinum. Það er gert til hægðarauka fyrir vallastarfsmenn við innheimtu flatargjalda og við hefðbundið eftirlit.

Stjórnin

18.mars 08
Vinnudagur 29.mars

Laugardaginn 29. mars verður hinn árlegi vinnudagur Golfklúbbsins.  Af mörgu er að taka en það sem liggur brýnast fyrir er grjóthreinsun á nokkrum brautum á neðra svæði og vinna við skálann okkar sem liggur undir skemmdum.

 













 

 

 

Golfklúbbur Grindavíkur 2008 vefumsjón: paller@grindavik.is