|
18. okt
Bændaglíman - Lokahóf
Nú er komið að árlegu
bændaglímunni og lokahófi. Það hefur verið ákveðið að hafa
leikfyrirkomulag í bændaglímunni EINNAR KYLFU keppni! Þ.e. þið megið
velja ykkur eina kylfu úr settinu + pútter. Þetta verður því 13 holu
höggleikur og Tóftabóndinn (Guðmundur Valur) og Bikarmeistarinn
(Leifur Guðjónsson) velja sér lið af þeim sem mæta til keppni.
Mæting er kl 13.30 og er áætlað að byrja á öllum teigum kl 14.00.
Matur er svo í golfskálanum um kvöldið sem hefst kl 20.30 og er það
frítt fyrir alla félaga en kostar 1.000 kr.- fyrir gesti og er það
gjald greitt í sjoppu. Þeir sem er öflugir gítaristar mega endilega
koma með gítarinn sinn og leggja til smá söng inní fjörið um kvöldið.
Sibbi, Alli og Hjalli....þetta á m.a. við um ykkur!
Reynum nú að fjölmenna og hafa gaman af á þessum síðustu og verstu!
Kveðja,
Mótanefnd

4.okt
Opna Golfbúð Hafnarfjarðar fært til sunnudagsins næsta!!
Það vantaði um 5 gráður í viðbót í
dag til þess að ná þessari snjóþekju ad vellinum í dag svo það er því
nauðsynlegt að fresta þessu móti sem halda átti á morgun.
 
Við ætlum að halda þetta mót á
sunnudaginn kemur, þann 12. október og er skráning hafin í það mót.
Langtímaspáin fyrir næstu helgi er mjög góð þ.a. við hvetjum kylfinga
til að vera fyrr en seinna til að skrá sig.
Kveðja,
Mótstjórn G.G.

29.sept
Úrslit í Texas Scramble - Gulir, glærir og glaðir
Í dag var haldið
Texas Scramble mótið Gulir, Glærir og Glaðir sem styrkt var af
Sparisjóðinum í Keflavík. Kylfingar fengu allar tegundir af
veðri en þó mest megni í logni og sól. Völlurinn var í frábæru
ástandi og létu kylfingar vel af því að leika hann. Það sést
best á skorinu því þeir sem sigruðu voru Kotbændur sem léku á 11
höggum undir pari en með forgjöf á 13 höggum undir pari. Í öðru
sæti urðu Óskar og Þorgeir á 68 höggum eða 3 höggum undir pari en með
forgjöf á 8 höggum undir pari. Á sama höggafjölda nettó voru
Úmpalúmparnir en voru á verra skori á síðari 9 holunum. Í
fjórða sæti var meiri barátta því fjórar sveitir voru á sama
höggafjölda nettó, eða 64 höggum. Það var ekki fyrr en teknar voru
síðustu 6 holurnar að úrslit voru fengin. Þá kom í ljós að
Haraldur Hjálmarsson og Davíð Árnason lentu í 4. sætinu. Gústaf
Alfreðsson, Voggar og Siggi yngri og Siggi sæti komu þar á eftir.
Næstir holu voru Ninni og Ponsi á 8. holu og Siggi yngri og Siggi
sæti á 13. holu. Næsta mót er á sunnudaginn kemur þann 5.
október.

4.
september
Völlurinn lokaður frá kl. 13:00-18:00 föstudaginn 5. sept.
Á morgun, föstudaginn 5. september,
verður völlurinn lokaður vegna móts á vegum Landsbankans. Völlurinn
verður því lokaður frá kl. 13:00-18:00.

31.
ágúst
Bazookurnar sigruðu í Opna Texas Scramble mótinu
Veðrið lék svo sannarlega við þá
kylfinga sem lögðu leið sína á Húsatóftavöll í Opna Texas Scramble mótið,
sól og blíða enda voru skráðar rúmlega 50 sveitir til leiks. Menn
nutu sín í veðurblíðunni og var skorið hjá mörgum í samræmi við það.
Sigursveitin, Bazookurnar, léku á samtals 66 höggum, eða 61 nettó.
Þrjár sveitir voru jafnar á 63 höggum nettó, en að loknum útreikningum urðu
Rólegir drengir, Guðjón Einarsson og Guðmundur Valur Sigurðsson í öðru
sæti. Í því þriðja urðu Björn&Helgi, Björn Kristinn Björnsson og
Helgi Runólfsson. Í fjórða sæti urðu Helgi Dan og pro, Helgi Dan
Steinsson og Einar Guðberg Einarsson. Veitt voru nándarverðlaun á 8.
holu og 13. holu. Hjalti Mogensen og Steinar Birgisson voru næstir á
8. holu með 105cm. Ingvar Guðjónsson og Hávarður Gunnarsson voru
næstir á 13. holu með 47cm. Kylfingar báru mikið lof á völlinn sem
skartaði sínu fegursta og margir hverjir áttu ekki orð til að lýsa hversu
skemmtilegur og fjölbreytilegur völlurinn er, ekki síst hið frábæra
landslag sem hann hann er í. Margir sögðust án efa ætlar sér að venja
oftar komur sínar á völlinn. Það eitt og sér segir meira en mörg orð.
Hér eru nokkrar myndir frá mótinu
Smellið hér til að
skoða nánar úrslit mótsins.

30.
ágúst
Óðum að fyllast í Texas mótið
Á morgun heldur Golfklúbbur
Grindavíkur Texas scramble mót á Húsatóftavelli. Skráning í mótið
hefur gengið mjög vel og þegar er fullt í alla ráshópa fyrir hádegi.
Nokkrir rástímar eru enn lausir, en skráningu lýkur kl. 8:00 í fyrramálið.
Sjá skráningu hér.

29.
ágúst
Góð
þátttaka í Möllernum- fyrirtækjamóti

Möllerinn var haldinn fimmtudaginn
28. ágúst síðastliðinn og tóku 32 sveitir þátt. margar sveitir komu
vel stemmdar til leiks og baráttan var mjög hörð um efsta sætið.
Sveit útgerðarfélagsins Vísis varð sigurvegari á 44 punktum. Myndir frá
Möllers mótinu eru á myndasíðu.
Smellið hér

20.
ágúst
Möllerinn - frestun til fimmtudags 28. ágúst.
Það er búið að taka ákvörðun um það
að fresta Möllersmótinu til fimmtudags í næstu viku, s.s. 28. ágúst.
Veðurspáin fyrir föstudag 22. ágúst var frekar döpur og því var þessi
ákvörðun tekin. Þetta er stærsta mót klúbbsins og við viljum reyna að
hitta á gott veður í svona stórskemmtilegu móti.

19.
ágúst
Stigamót 2008 - Staðan
eftir 11 umferðir (1 umferð eftir!)
Staða 5 efstu manna fyrir síðustu
umferðina:
Gunnlaugur Sævarsson................................56
Hávarður Gunnarsson...................................50
Leifur Guðjónsson.........................................50
Ingvar Guðjónsson.........................................43
Davíð A. Friðriksson......................................43
Eins og gefur að líta er baráttan á
toppnum hörkuspennandi og sjáum við fram á skemmtilega keppni í síðasta
mótinu sem er í dag þriðjudaginn 19.ágúst.
Heildarstöðuna er hægt að sjá hérna
á Golf.is

11.
ágúst
Úrslit í Tóftabóndanum
Leikið var í
Tóftabóndanum dagana 5.-6. ágúst síðastliðinn og samtals tóku 27 kylfingar
þátt. Guðmundur Valur Sigurðsson varð í fyrsta sæti með forgjöf á 71
höggi. Á sama höggafjölda urðu þeir Davíð Arthúr Friðriksson og
Gunnar Sigursveinn Arnbjörnsson. Þar sem aðeins 27 tóku þátt hefur
verið ákveðið að 5 efstu men Tóftabóndans sitja hjá í næstu umferð en
kylfingar frá 6. sæti til og með 27. sætis leika um réttinn að komast í 16
manna úrslit. Hér má sjá lokastöðuna úr
mótinu. Í 32 manna
úrslitum leika menn miðað við röðun úr þessu móti. Leik skal lokið í
þessari umferð fyrir mánudaginn 18.ágúst. Sá er var með
besta skor leikur gegn versta skori. Þeir sem lentu saman
má sjá hér.

10.
ágúst
Sveitakeppni GSÍ á Akureyri - GG féll í 3. deild
Það gekk ekki upp hjá
okkar mönnum fyrir norðan í sveitakeppninni. Þeir háðu hetjulega
baráttu við stórgóðar sveitir í 2. deildinni t.d. GV, Odd, GA, Hellu (hluti
af GR). Þrátt fyrir ágæta spilamennsku náðum við ekki takmarkinu
okkar að halda okkur í deildinni. Því er það 3. deildin að nýju hjá
okkur. En við komum fílefldir til leiks að nýju á næsta ári með það
að markmiði að komast í 2. deildina á ný.
Hægt er að sjá úrslitin á
vefsíðu Golfklúbbs Akureyrar

6.
ágúst
Glæsilegur golffatnaður til sölu
Golfklúbbur Grindavíkur
hefur hafið sölu á glæsilegum golffatnaði á mjög hagstæðu verði.
Nýja sendingin verður ekki merkt með lógói Golfklúbbs Grindavíkur nema ef
sérstaklega verður óskað eftir því.
Allar þessar vörur eru hágæðamerki s.s. Ashworth, Antiqua, Mizuno,
Oakley Firethorn. Þessar vörur eru til afgreiðslu hjá Páli formanni
(gsm 693-9065). Stærðir: Small, Medium, Large og Extra Large

Antiqua
Steingrár
5.000 kr |

Ashworth
Hvítur
5.000 kr |

Firethorn
Svartur
6.500 kr |

Mizuno
Hvítur
5.000 kr |

Oakley
Svartur og grænn
5.000 kr |

Antiqua fleece
kvenfatnaður
rauður - bleikur
|

Firethorn pólóbolir
kvenfatnaður
rauður - blár og vínrauður
|
|

Firethorn mock skyrta
hvítur - blár og navy og vínrauður
|

Oxford pólóbolir
blár og fjólublár
|

6.
ágúst
Stigamót X - Annel sigraði án
forgjafar og Garðar með forgjöf
Annel Þorkelsson úr GSG
sigraði án forgjafar á 10. stigamóti GG.
Hann lék völlinn á samtals 70 höggum eða 66 nettó. Frábær hringur hjá
honum. Næstur honum kom Gunnlaugur
Sævars klúbbmeistari á 74 höggum og í því
þriðja Sigurður Hafsteinn Guðfinnsson, á 75 höggum. Ef forgjöf er dregin frá þá
var Annel í fyrsta sæti. En þar sem ekki er hægt að vinna til
verðlauna í báðum flokkum sigraði Garðar Páll á 67 höggum sem þýðir verulega lækkun hjá honum.
Góður árangur þar. Í öðru sæti var Sigurður Hafsteinn á 69 höggum og í því
þriðja Guðmundur Valur Sigurðsson á 70
höggum.
Hér má sjá úrslitin úr mótinu.

|