Fréttir
apríl 2009

29. apríl
Konur athugið - kennagolf á mánudögum

Kvennanefnd golfklúbbsins verður reglulega með spiladag fyrir allar konur, jafnt byrjendur sem vana kylfinga.  Ákveðið hefur verið að hafa spiladaginn á mánudögum og ráðgert að hejfa leik kl. 19:00 þá daga.  Við viljum hvetja konur til að mæta á mánudögum og njóta þessa að leika völlinn í góðum félagsskap.  tekin var ákvörðun innan nefndarinnar að hafa ekki nein formleg stigamót þetta árið þar sem svo margar konur eru byrjendur í íþróttinni.  Þess í stað hittast konur á fyrrgreindum tíma til að spila saman og njóta samverunnar án nokkurrar keppni.  Þó er fyrirhugað að hafa e.t.v. eitt mót í ágústmánuði, þó fremur til gamans en alvöru.  Nú er um að gera að mæta á mánudögum kl. 19:00 og spila í góðum hópi.  Konur... nú er lag... sjáumst hressar á vellinum

28. apríl
Endurbótum á aðstöðu í skála að ljúka

Undanfarnar vikur hafa staðið yfir endurbætur á aðstöðu í golfskálanum.  Nú er verið að leggja síðustu hönd á þessar endurbætur.  Eldhús hefur verið fært og stækkað ásamt því að skráning færist niður á miðhæð þar sem eldhúsið var.  Einnig verður bekkjum komið fyrir að mestu leyti í stað stóla þannig að fleiri gestir rúmast.  Auk þess hefur sófasettum verið fækkað í risi og í stað þeirra komið fyrir borðum og stólum þar sem gestir geti notið veitinga og spjallað í þægilegu andrúmslofti.

28. apríl
Opnað á sumargrínin 1. maí - innanfélagsmót í tilefni opnunar

Kæru félagar!!!
Nú er komið að því að við hefjum sumarstarfið.  Föstudaginn 1. maí verður opnað á sumargrínin og af því tilefni verður haldið innanfélagsmót.  Ræst verður út frá kl. 10:00 til 12:00.  Þátttökugjald er 1.000 kr.  Nú er um að gera að dusta rykið af kylfunum og æfa sveifluna fyrir komandi sumar og ekkert betra en að skella sér í mót í tilefni opnunarinnar.

Mótanefnd

8. apríl
Vinnudagur föstudaginn langa (10. apríl)

Kæru félagar!!!
Nú er komið að því að snúa bökum saman og láta hendur standa fram úr ermum, því á föstudaginn langa ætlum við að bera húgögn út úr golfskálanum okkar og í allsherjar tiltekt.  Fyrirhugað er að hefjast handa kl. 10:00 og vinna til hádegis. 

Undanfarna daga hafa staðið yfir framkvæmdir innandyra á golfskálanum.  Verið er að færa eldhúsaðstöðuna okkar og afgreiðslu þannig að hún standist allar kröfur yfirvalda.  Eldhúsið mun færast í hornið á miðhæðinni þar sem afgreiðslan var áður.  Herbergið sem eldhúsið var í mun verða fyrir mótaskráningu og afgreiðslu ásamt upplýsingasvæði.  Hægt verður að afgreiða frá tveimur stöðum á þann hátt.  Fyrir vikið munu kylfingar ekki þurfa að ganga gegnum salinn til að versla.  Hugmynd er uppi að fækka sófasettum á efstu hæð til að koma fyrir borðum og stólum þannig að gestir geti notið veitinga eða spjallað í opnara og notalegra umhverfi. Einnig teljum við okkur geta komið fleiri gestum fyrir í skála en áður.

4. apríl
Mótaskrá GG komin á vefinn

Mótaskrá GG er komin út og má þar sjá að ný mótaröð hefur litið dagsins ljós.  Hægt er að nálgast hana með því að smella hér á.

4. apríl
Stigamót kvenna

Stjórn Golfklúbbs Grindavíkur hefur ákveðið að bæta við stigamótum kvenna fyrir sumarið.  Það verða 6 stigamót fyrir konurnar í sumar.  Samt sem áður eru almennu stigamótin opin fyrir bæði kynin. Með þessu erum við að gefa konum tækifæri á að leika með sínum kynsystrum því margar eru byrjendur í þessari grein.  Stjórn Golfklúbbsins hefur sett sér það markmið að auka fjölda kvenkylfinga í klúbbnum og styðja og hvetja þær til þátttöku í starfinu.  Við viljum því hvetja allar konur til að skrá sig í klúbbinn og njóta þess að leika golf, hvort sem er í mótum eða sér til skemmtunar.  Konur nú er lag... skráið ykkur í golfklúbbinn og takið þátt í að efla kvennastarfið til klúbbnum til heilla.

2. apríl
Inniæfingar hafnar

Golfklúbbur Grindavíkur hefur fengið inni aðstöðu til æfinga í Hópinu, nýja fjölnota húsinu okkar Grindvíkinga.

Æfingatímar verða sem hér segir: 
Almennir tímar: Fimmtudagar frá 21:00-23:00
Börn og unglingar: Fyrsta og þriðja sunnudag hvers mánaðar kl. 17:00-18:00


Eldri fréttir

 














Golfklúbbur Grindavíkur 2009 vefumsjón: paller@grindavik.is