Fréttir
júní 2009

30.júní
Bikardrátturinn 8 manna úrslit

Dregið hefur verið í 8 manna úrslitum bikarkeppninnar og eftja eftirfarandi kylfingar kappi:

Guðlaugur Eyjólfsson – Hávarður Gunnarsson
Hjálmar Hallgrímsson – Haraldur Hjálmars 
Ingvar Guðjóns – Guðm. Valur
Sigurgeir Guðj. – Orri Hjaltalín

Fyrirkomulag er holukeppni – spilarar reikna mismuninn á milli leikforgjafar og taka svo ¾ af þeim mismun (námundað upp).  Það er sá fjöldi hola sem sá sem hærri forgjöfina er með á á þann sem er með lægri.  Alltaf er um erfiðustu holurnar að ræða á vellinum sem viðkomandi á.

Leikjum skal lokið fyrir fyrir 13. júlí n.k.

28.júní
Par 3 völlurinn - tillögur
byrjaðar að berast

Tillögur að nýjum par 3 velli eru þegar farnar að berast golfklúbbnum.  Það er greinilegt að menn eru áhugasamir um gerð og skipulag vallarins.  Við viljum hvetja fleiri til að senda inn sínar tillögur á gggolf@gggolf.is.
Hér má sjá þær tilllögur sem borist hafa.

26.júní
Par 3 völlurinn - draumur kylfinga að verða að veruleika

Ákveðið hefur verið að hefja framkvæmdir við par 3 völl á „Rollutúninu“ nú í sumar.  Hannaðir verða teigar með gervigrasmottum og slegnar verða flatir á svæðinu.  Vonir standa til að hægt verði að hafa allt að 9 holur á þessu svæði. Enn er ekki búið að teikna völlinn og er ráðgert að hafa samkeppni um skipulag brautanna meðal bæjarbúa.  Sá einstaklingur sem hlutskarpastur er, fær frítt ársgjald á völlinn fyrir árið 2010. Hér er yfirlitsmynd af svæðinu.  Þeir sem þátt taka eru vinsamlegast beðnir um að skila inn mynd með skipulagi til stjórnar golfklúbbsins.  Skilafrestur er til 10. júlí.  Hægt er að skila myndunum inn á rafrænu formi (PDF. JPG. PNG. TIFF. PSD) eða á blaði.  Hægt að prenta út yfirlitsmyndina af síðunni með því að smella hér.

26.júní
Jónsmessan - Texas scramble

Jónsmessumótið verður haldið laugardaginn 27. júní og verða spilaðar 11 holur að þessu sinni. Við ætlum að sleppa "Hörmung" og "Skelfing" og spila á kvennateigum. Það er mæting kl. 19.30 og ætlum við að byrja golfið kl. 20.00.

Það er mikilvægt að mæta á réttum tíma til þess að drátturinn verði sem eðlilegastur þar sem við drögum saman háforgjafarkylfing og lágforgjafarkylfing. Það verður spilað Texas Scramble.

Að loknu móti munum við svo eiga góðar stundir í skálanum og borða saman. Í mót og mat kostar 1.500 kr.- en þeir sem ætla einungis í matinn borga 1.000 kr.- Klúbbfélagar mega taka með sér gesti í mótið, "more the merrier"

Kveðja,
Mótanefnd

25.júní
Frábært skor á 7. stigamóti GG - HP Gáma

Kylfingar nutu sín svo sannarlega í blíðunni á 7. stigamóti GG og HP Gáma enda var skor margra kylfinga í samræmi við það. Ágætis þátttaka var í mótinu, þó gaman hefði verið að sjá fleiri kylfinga taka þátt þar sem veðrið var eins og best verður á kosið.  Davíð Arthúr var á besta skorinu án forgjafar, eða samtals á 69 höggum sem er mjög góður árangur.  Gísli Þorláksson sigraði með forgjöf.  Hann sigraði með nokkrum yfirburðum þar sem hann endaði á 6 höggum undir pari vallarins.  Næstur kom kom Davíð Arthúr á 68 höggum en jafnir voru þeir Jóhann Einarsson og Leifur Guðjónsson á 69 höggum.  Hægt er að sjá úrslitin með því að smella hér á.

25.júní
Framkvæmdir hafnar við stækkun vallarins

Í dag hófust framkvæmdir við stækkun Húsatóftavallar í 18. holur. Næstu vikurnar mun allt kapp vera lagt á að ryðja út þær 4 brautir sem koma í átt að Þorbirninum. Á félagafundi þann 8. júní síðastliðinn gafst félagsmönnum tækifæri til að ganga um svæðið undir leiðsögn Hannesar Þorsteinssonar golfvallahönnuðar. Það mátti heyra á mönnum að þeir hafi svo sannarlega heillast af því landslagi þar sem komandi brautir liggja. Svæðið er umlukið hrauni þar sem stórbrotið landslag mun fá að heilla komandi kylfinga.
Vonast menn til að hægt verði að sá í brautirnar nú í sumar. Ef að líkum lætur mun Golfklúbbur Grindavíkur ná að taka 18 holu völl í notkun árið 2011, á 30 ára afmæli klúbbsins.
Þær brautir sem bætast við verða tvær par 3 brautir, ein par 4 braut og ein par 5 braut.
Ýmsar aðrar breytingar munu fylgja í kjölfarið á mörgum brautanna sem fyrir eru.
Völlurinn mun því verða par 70 og um 5400 metrar.
Teikningar af vellinum munu verða birtar síðar á vef golfklúbbsins.

24.júní
Fréttir af stigamótum unglinga -

Nú er þremur umferðum lokið á stigamótaröð unglinga.  Hér má sjá úrslit úr síðustu stigamótum.  Mótin hafa gengið vel og fleiri krakkar verið að taka þátt en áður.  Við vonum að sjálfsögðu að fleiri krakkar mæti því frítt er í öll stigamót unglinga.  Krakkarnir þurfa ekki sérstaka forgjöf, heldur geta þau notað tækifærið og spilað til forgjafar í mótunum.
Þess má geta að eftir meistaramótið verða framvegis leiknar 18 holur á mótaröðinni.

24.júní
2. fundur í framkvæmdarnefnd vegna stækkunar golfvallar

Mættir: Aðalgeir Jóhannsson, Kristín Mogensen, Ingvar Guðjónsson, Bjarni Andrésson, Páll Erlingsson og Hannes Þorsteinsson golfvallahönnuður

Fundur í framkvæmdarnefndinni með Hannesi, golfvallahönnuði var haldinn 23. júní í golfskálanum.  Fundurinn var boðaður til að fara yfir athugasemdir og breytingartillögur varðandi vallarskipulag sem Hannes kynnti á félagafundi þann 8. júní síðastliðinn. En frestur til að skila inn athugasemdum rann út þann 22. júní 2009.  Hér gefur að líta fundargerð frá fundinum.

22.júní
Fundur í framkvæmdarnefnd vegna stækkunar golfvallar

Fundur verður í framkvæmdarnefndinni með Hannesi, golfvallahönnuði í golfskálanum.  Fundurinn hefst kl. 12:10 stundvíslega.  Farið verður yfir athugsemdir, nýjar tillögur og hugmyndir sem fram kunna að hafa komið fyrir þann frest sem gefinn var félagsmönnum.  Frestur til að koma fram með athugasemdir rann út mánudaginn 22. júní.

21.júní
16 manna úrslit í bikarkeppni GG 2009

Dregið var í 16 manna úrslitum og lentu eftirfarandi kylfingar saman:

Guðlaugur Eyjólfsson – Eiríkur Benediktsson
Hávarður Gunnarsson– Páll Þorbjörnsson / A. Ingibjörg Grétarsdóttir
Hjálmar Hallgrímsson – Hólmar Waage
Ingvar Guðjóns – Bjarni A
Guðm. Valur – Hafþór S
Haraldur Hjálmarsson – Einar Logi Eiðsson
Sigurgeir G – Bjarni Hallfreðsson
Orri Freyr Hjaltalín – Y. Ogino

Fyrirkomulag er holukeppni – spilarar reikna mismuninn á milli leikforgjafar og taka svo ¾ af þeim mismun (námundað upp). Það er sá fjöldi hola sem sá sem hærri forgjöfina er með á á þann sem er með lægri. Alltaf er um erfiðustu holurnar að ræða á vellinum sem viðkomandi á.

ATHATH! Þeir sem ekki hafa gert upp félagsgjaldið sitt fyrir 30. júní eða samið við gjaldkera um greiðslur tapa sjálfkrafa sínum leik í bikarkeppninni þó þeir hafi lokið leik og sigrað leik sinn!!

Leikjum skal lokið fyrir fyrir 30. júní n.k.

19.júní
1. fundur í framkvæmdarnefnd um stækkun golfvallar

Mættir: Aðalgeir Jóhannsson, Kristín Mogensen, Ingvar Guðjónsson, Páll Erlingsson

1. fundur stækkunarnefndar var haldinn fimmtudaginn 18. júní kl. 12:10 í golfskálanum.  Dagskrá fundarins var að fjalla um nýju brautirnar (brautir 5 - 8) samkvæmt skipulagsuppdrætti Hannesar Þorsteinssonar sem hann hafði áður lagt fyrir félagafund. Nefndin samþykkti að ekkert væri að vanbúnaði með að hefja ruðning umræddra brauta.  Hér gefur að líta fundargerðina.

19.júní
Innheimta ársgjalda - eindagi 1. júlí

Frá og með 1. júlí nk. færast dráttarvextir á öll ógreidd ársgjöld ásamt innheimtukostnaði.  Nú er tími til kominn að þeir félagar sem ekki hafa greitt gjöldin sín, gangi frá greiðslu eða hafi samband við gjaldkera klúbbsins (Ingimar Waldorff) um greiðslufyrirkomulag.  Þeir félagar sem ekki hafa greitt gjöldin sín hafa ekki rétt á að taka þátt í mótum né leika völlinn án þess að greiða flatargjöld. Þessar ráðstafanir eru af illri nauðsyn þar sem mikið er um útistandandi ársgjöld. Ekki er hægt að reka golfklúbb á sómasamlegan máta ef aðeins hluti félaga greiðir sín gjöld og óréttlátt gagnvart skilvísum greiðendum. 
Við viljum einnig koma því á framfæri við félaga að skylda er að vera með pokamerkin sýnileg á kerrunum sínum eða golfsettum.  Þeir sem ekki eru með pokamerki eiga það á hættu að vera umsvifalaust vísað af vellinum.  Það er óþolandi að einstaklingar sjái ekki sóma sinn í að greiða sín gjöld og séu að leika án heimildar.  Það jafngildir því að ganga inn í búð og taka vörur ófrjálsri hendi.

19.júní
Velheppnuðum golfskóla Sigurpáls og GG lokið

Í dag var síðasti dagur golfskóla Sigurpáls og GG.  Þessa vikuna hafa um 16 krakkar notið leiðsagnar og kennslu eins fremsta kylfings landsins.  Þau fengu að leika völlinn miðað við getustig ásamt því að fara í allskyns þrautir og skemmtilega leiki þessa daga.  Í lokin var krökkunum boðið í pylsupartý og veittar viðurkenningar af Sigurpáli.  Á myndasíðunni má sjá myndir frá lokadeginum.  Golfklúbburinn mun eflaust reyna að bjóða upp á golfskóla síðar í sumar, ef næg þátttaka fæst.  Það námskeið verður auglýst rækilega síðar.  Myndasíða - smellið hér.  Við viljum einnig ítreka að golfklúbburinn heldur úti reglubundnum æfingum í sumar fyrir krakka.  - smellið hér á til að sjá nánar.

15.júní
Golfskóli Sigurpáls Geirs Sveinssonar

Golfklúbburinn verður með golfskóla fyrir börn og unglinga fædd 1996-2002 vikuna 15-19. Júni næstkomandi.  Golfskólinn byrjar kl. 10 og stendur til kl. 13.
Yfirkennari golfskólans er Sigurpáll Geir Sveinsson sem er PGA golfkennari og þrefaldur Íslandsmeistari í golfi.
Farið verður yfir helstu grunnatriði í golfi og hina ýmsu golfleiki til að þjálfa börnin í þessarri skemmtilegu íþrótt.  Kennslan fer fram á golfvellinum Húsatóftum.   Í lok námskeiðsins verður grillveisla þar sem þáttakendur fá viðurkenningarskjal.
Kúlur og kylfur verða á staðnum en þeir sem eiga kylfur mega gjarnan koma með þær.
Þrátt fyrir metnaðarfulla dagskrá þá ætlum við að stilla verðinu í hóf og þáttökugjald er kr. 4000.
Foreldrar, athugið að börnin séu klædd eftir veðri og taki með sér nesti.
Skráning er í síma 426-8720 (golfskálinn), 822-1911 eða með tölvupóst á
gb@sonar.is.

11. júní
Bikarkeppni GG - 32 manna úrslit

Eftirfarandi lentu saman í 32 manna úrslitum í bikarkeppni GG 2009
Guðjón Einarsson – Hávarður Gunnarsson
Bjarki Guðmundsson – Guðm. Valur Sigurðsson
Hólmar Waage – Jón H. Gíslason
Y. Ogino – Valdimar Ernir Eiðsson
Einir Logi Eiðsson – Svana Hammer
Bjarni Andrésson – Ólafur Már Guðmundsson
Orri Freyr Hjaltalín – Sigurður Hallfreðsson
Páll Þorbjörnsson – A. Ingibjörg Grétarsdóttir
Bjarni Hallfreðsson – Páll Erlingsson
Guðlaugur Eyjólfsson – Gerða Kristín Hammer
Gunnar Már – Ingvar Guðjónsson
Sigurgeir Guðjónsson – Lárus Guðmundsson
Sigurður Þór Birgisson – Eiríkur Benediktsson
Ray Anthony Jónsson – Hafþór Skúlason
Bjarni Rúnar Einarsson – Hjálmar Hallgrímsson?
Gunni Best – Hjálmar Hallgrímsson?
Fyrirkomulag er holukeppni – spilarar reikna mismuninn á milli leikforgjafar og taka svo ¾ af þeim mismun (námundað upp). Það er sá fjöldi hola sem sá sem hærri forgjöfina er með á á þann sem er með lægri. Alltaf er um erfiðustu holurnar að ræða á vellinum sem viðkomandi á.
Leikjum skal lokið fyrir fyrir 20. júní n.k
 

8. júní
Stækkun vallarins - frestur til athugasemda til 22. júní

Félagsmenn athugið... Frestur til að koma með athugsemdir varðandi stækkun vallarins er til 22. júní nk.  Athugsemdir skulu berast skriflega til nefndarmanna, dagsettar og undirritaðar af þeim er vill koma athugsemdinni á framfæri. Nefndarmenn má sjá hér:

Nefndinni er ætlað að vera hönnuði til ráðgjafar og samstarfs við uppbyggingu vallar ásamt því að hafa yfirumsjón með framkvæmdum og verkefnum. 
Nefndin tekur við athugsemdum til 22. júní 2009 og að þeim fresti loknum mun nefndin yfirfara tillögur og leggja fram áherslur varðandi framkvæmdir og breytingar á vallarskipulagi. 
Félagafundir hefur þegar samþykkt samhljóða að farið verði að tilllögum Hannesar Þorsteinssonar sem hann lagði fyrir félagafund þann 8. júní 2009.
Nefndin vinnur náið í samstarfi við hönnuð vallarins ásamt því að leita til verktaka varðandi ýmsa þætti stækkunarinnar.  Vallarnefnd hefur eftirlitsskyldu gagnvart verktökum til loka verksins sem áætlað er að ljúki að sumri 2011.
Leitast verður við að sækja vinnuafl og þekkingu sem mest má innan Grindavíkurbyggðar, þó með þeim formerkjum að hagkvæmasta leiðin verði farin við ráðningar og klúbbnum til heilla.

Framkvæmdarnefndinni fundar reglulega á meðan framkvæmdum stendur og birtir fundargerðir sínar á vef gggolf.is

8. júní
Stækkun vallar ákveðin á félagafundi

Mánudagskvöldið 8. júní var efnt til félagafundar í golfskálanum.  Tilefnið var umfjöllun og ákvörðun um stækkun vallarins.  Um 30 félagsmenn mættu á fundinn til að hlýða á Hannes Þorsteinsson golfvallarhönnuð kynna tillögur sínar varðandi stækkunina.  Félagsmönnum gafst færi á að koma með athugasemdir og fyrirspurnir sem Hannes útskýrði og svaraði út frá sjónarhóli hönnuðar.  Að kynningu lokinni var haldið af stað í göngu um fyrirhugað svæði sem nýjar brautir verða lagðar og þaðan á þær brautir sem munu taka breytingum.  Þegar að gönguferð lokinni var haldið áfram með fundinn í skálanum.  Þar var samþykkt samhljóða að fara eftir tillögum Hannesar og skipuð var nefnd um verkefnið.  Í nefndinni eru Ingvar Guðjónsson, Aðalgeir Jóhannsson, Bjarni Andrésson, Páll Erlingsson og eitt sæti laust fyrir konu til að verja hagsmuni kvenna í stækkuninni.
Þess má geta að teikningarnar að stækkuninni liggja frammi í golfskálanum og á töflur við veitingasölu.  Við viljum hvetja félagsmenn til aðkynna sér þessar tillögur og koma með athugasemdir til nefndarmanna á skriflegu formi.  Frestur til að gera athugasemdir er til 22. júní. 
Fyrirhugað er að framkvæmdir hefjist í lok júnímánaðar og markmiðið er að völlurinn verði opnaður á afmælisári Golfklúbbsins 2011.

8. júní
Félagafundur vegna stækkun vallar
í kvöld, mánudaginn 8.júní

Í kvöld, mánudaginn 8. júní, verður félagafundur vegna fyrirhugaðrar stækkunar Húsatóftavallar með Hannesi Þorsteinssyni golfvallahönnuði. Á fundinum verður farið yfir og kynntar tillögur Hannesar.  Fundurinn verður haldinn í golfskálanum og hefst kl. 20:00.  Við viljum hvetja alla félagsmenn til að mæta á þennan mikilvæga félagafund.

6.júní
Úrslit úr Sjóaranum síkáta - Þorbjörn hf.

Sjóarinn Síkáti var haldinn í blíðskaparveðri. Er fyrstu menn hófu leik var alskýjað en örlítil gola en er leið á morguninn létti til og skólin skein skært á kylfinga sem nutu sín í blíðunni. Ágætis skor náðist í mótinu, en hlutskarpastur í flokki 55 ára og eldri var Óskar Hrafn Ólafsson GK á 36 punktum, en á sama punktafjölda varð Guðmundur Helgi Kristjánsson GO þar sem hann lék síðari 9 holurnar á færri punktum en Óskar.
Í almennum flokki sigraði Egill Arnar Birgisson GO á 39 punktum.  Í öðru sæti var Hjálmar Hallgrímsson á 38 punktum.  Hér er hægt að nálgast úrslitin úr mótinu.  Auk þessa voru veitt námundarverðlaun á fjórum holum.
Eftirfarandi fengu námundarverðlaun:
Næstur holu á 4/17 braut Bjarni Sigþór Sigurðsson 4,93 metra frá holu
Næstur holu á 5/18 Bjarni Sigþór Sigurðsson 83 cm frá holu
Næstur holu á 8 braut Karl Gunnar 2,18 m frá holu
Næstur holu á 13 braut Sigurgeir Sigurgeirsson 1,88 m frá holu.
Vinninga skal vitja hjá Bjarka Guðmundssyni í síma 894-3134.
Við þökkum Þorbirni HF kærlega fyrir ómetanlegan stuðning.

5.júní
Sjóarinn síkáti - punktamót

Á morgun, laugardaginn 6. júní verður hið árlega punktamót í tengslum við Sjóarann síkáta okkar Grindavíkinga.  Þegar eru 42 skráðir í mótið og mun eflaust fyllast í það eins og undanfarin ár. Verðlaunin eru heldur ekki af verri endanum þ.e. frosnar fiskafurðir frá Þorbirni hf. eins og ávallt hefur verið svona rétt fyrir sjómannadag.  Nú er um að gera að njóta þess að spila golf hér í Grindavík og síðan kíkja á þá fjölbreyttu og glæsilegu dagskrá sem er í boði þessa helgina hér í Grindavík. Mótaskráning - smelltu hér á!

5.júní
Golfæfingar barna og unglinga í sumar.

Yngri flokka starfið hefur farið frábærlega af stað og greinilega margir efnilegir krakkar hér í bæ.   Nú er æfingatafla barna og unglinga sumarið 2009 hjá Golfklúbb Grindavík tilbúinn og með þessu bréfi er viðburðadagatal (smellið hér) fyrir júní og júlí sem hentugt er að hengja upp á einhvern áberandi stað til áminningar.

Sigurpáll Geir Sveinsson PGA kennari ætlar að halda áfram að leiðbeina krökkunum okkar og er það mikill hvalreki á fjörur okkar klúbbfélaga.  Sannarlega frábær kennari sem hefur sýnt svo ekki verður um villst að hann hefur sérstaka hæfileika að vinna með krökkum og unglingum.  Frábært tækifæri fyrir alla krakka til að njóta fyrsta flokks leiðsagnar og kennslu, án nokkurs endurgjalds!

5.júní
Golfskóli SGS

Golfklúbburinn verður með golfskóla fyrir börn og unglinga fædd 1996-2002 vikuna 15-19. Júni næstkomandi.  Golfskólinn byrjar kl. 10 og stendur til kl. 13.
Yfirkennari golfskólans er Sigurpáll Geir Sveinsson sem er PGA golfkennari og þrefaldur íslandsmeistari í golfi.
Farið verður yfir helstu grunnatriði í golfi og hina ýmsu golfleiki til að þjálfa börnin í þessarri skemmtilegu íþrótt.  Kennslan fer fram á golfvellinum Húsatóftum.   Í lok námskeiðsins verður grillveisla þar sem þáttakendur fá viðurkenningarskjal.
Kúlur og kylfur verða á staðnum en þeir sem eiga kylfur mega gjarnan koma með þær.
Þrátt fyrir metnaðarfulla dagskrá þá ætlum við að stilla verðinu í hóf og þáttökugjald er kr. 4000.
Foreldrar, athugið að börnin séu klædd eftir veðri og taki með sér nesti.
Skráning er í síma 426-8720 (golfskálinn), 822-1911 eða með tölvupóst á
gb@sonar.is.

2. júní
Greiðsla ársgjalda/flatargjalda - tilkynna sig í skála áður en þið hefjið leik

Nokkuð hefur borið á því að einstaklingar hafa verið að leika á Húsatóftavelli án þess að vera skráðir í Golfklúbbinn eða hafa greitt ársgjaldið sitt.  Það er með öllu ólíðandi að horfa upp á slíkt athæfi manna.  Þeir sem ekki eru skráðir í klúbbinn og eru að spila á vellinum án greiðslu vallargjalda verður send rukkun fyrir ársgjaldi í klúbbinn.  Þeim sem ekki greiða vallargjald eða ársgjald verður umsvifalaust vísað af vellinum. 
Viljum við beina því til klúbbfélaga að fylgjast grannt með því hvort menn séu með pokamerki á töskunum sínum.  Þeir sem ekki eru með pokamerki eiga og er skylt að greiða flatargjald.  Þeir kylfingar sem ekki hafa greitt ársgjaldið sitt eða gengið frá greiðslutilhögun skulu greiða vallargjald ellegar eiga á hættu að verða vísað af vellinum.  Nægur tími hefur verið til stefnu og engin afsökun fyrir slíkum slóðaskap.  Allir félagar eiga að vera með pokamerkin sín vel sjánleg og verður hart gengið eftir því að menn hafi þau sýnileg.  Einnig er öllum skylt að tilkynna sig í skála og rita nafn sitt í viðeigandi gestabók.  Það er stranglega bannað að ganga framhjá skálanum og beint á teig án þess að koma við inni í skálanum.


Eldri fréttir
 












Golfklúbbur Grindavíkur 2009 vefumsjón: paller@grindavik.is