Fréttir
maí 2009

31. maí
Félagafundur vegna stækkun vallar mánudaginn 8. júní

Mánudaginn 8. júní verður félagafundur vegna fyrirhugaðrar stækkunar Húsatóftavallar með Hannesi Þorsteinssyni golfvallahönnuði. Á fundinum verður farið yfir og kynntar tillögur Hannesar um brautarteikningar, gönguferð um svæðið og kosning í nefnd um stækkun vallarins.  Á þessum fundi fá félagar tækifæri til að koma með fyrirspurnir, gera athugsemdir og tjá skoðanir sínar. Í lok fundarins verður eins og áður segir, kosin framkvæmdarnefnd um stækkun vallar, sem síðan mun alfarið sjá um stækkunina, samskipti við hönnuð og verklagsstjórnun.  Félagar eru eindregið hvattir til að fjölmenna á fundinn og hafa áhrif á þetta mikilvæga mál.  Fundurinn verður haldinn í golfskálanum að Húsatóftum og hefst kl. 20:00 mánudaginn 8. júní.

30. maí
Úrslit úr Grindin Open - Texas Scramble

Hér að neðan er krækja inná úrslitin úr Texas scramble mótinu sem var haldið í blíðskaparveðri í dag...blés reyndar aðeins en menn létu það ekkert á sig fá! Grindin ehf. styrkti mótið og þökkum við þeim kærlega fyrir þeirra innlegg.
Smelltu hér til að sjá nánari úrslit

Nándirnar féllu í skaut eftirfarandi:
8.hola -> Guðmundur Valur (Einar G) - 3,49m
13. hola -> Jón Ingi Jóhannesson (Gerða Hammer) - 5,76m
Þeir sem unnu til verðlauna eiga von á gjafabréfunum sínum í pósti næstu daga. Gott væri engu að síður að þeir sem unnu til verðlauna sendi póst á havardur@ok.is með upplýsingum um heimilsfang.
Viljum við þakka þeim sem lögðu leið sína á Húsatóftir og vonandi sjáum við ykkur aftur...sem fyrst :)

Golfkveðja,
Mótanefnd GG

28.maí
Úrslit úr stigamóti 3 - Vélsmiðju Grindavíkur

Það var einmuna blíða sem keppendur stigmótsins fengu að njóta að þessu sinni.  Að þessu sinni skráðu 46 keppendur sig til leiks og gaman að sjá þennan mikla fjölda á vellinum í sól og mildu veðri.  Þess er skemmst frá að segja að Þorlákur G. Halldórsson sigraði með forgjöf á 63 höggum nettó.  Í öðru sæti varð Heiðar Már Hilmarsson á 64 höggum og í því þriðja varð Digmar Júlíus Eðavarðsson á 65 höggum.  Hólmar Waage var á fæstum höggum án forgjafar, 74 höggum.  Í öðru sæti án forgjafar varð Leifur Guðjónsson á 76 höggum og á sama höggafjölda varð Ingvar Guðjónsson í því þriðja.  Hægt er að sjá nánar úrslitin hér á Golf.is.  Næsta mót er laugardaginn 30. maí og er það með Texas Scramble fyrirkomulagi.

28.maí
Kveðja vegna fráfalls klúbbfélaga

Golfklúbbi Grindavíkur bárust þær sorglegu fréttir að Sigurfinnur Jónsson, einn félagi okkar í Golfklúbbi Grindavíkur hafi látist í gær, miðvikudaginn 27. maí.  Hann var liðtækur kylfingur sem var reglulega á vellinum að njóta þess að spila golfið, enda voru það ófáir félagarnir sem spiluðu með honum hringi á Húsatóftavelli.  Um leið og stjórn Golfklúbbs Grindavíkur minnist Sigurfinns með hlýju og söknuði viljum við færa okkar dýpstu samúðarkveðjur til fjölskyldu, ættingja og vina á þessum miklu sorgartímum.  Blessuð sé minning Sigurfinns.

28. maí
Stjórnarfundur GG verður fimmtudaginn 28. maí kl. 21:00 í Golfskálanum.

Dagskrá:

  1. Störf vallarstjóra (Guðjón Einarsson mætir á fundinn)

  2. Kynningarfundur um stækkun vallar.

  3. Unglingastarfið - unglingamótin

  4. Skiltamál - golfsiðir/vallarskiltið

  5. Teigamerkin

  6. Agamál - hótanir klúbbfélaga og hegðun.

  7. Önnur mál

24. maí
Stigamót unglinga á morgun

Á morgun, mánudaginn 25. maí verður fyrsta stigamót sumarsins á unglingamótaröð klúbbsins.  Frítt er í mótið fyrir unglinga í Grindavík.  Við viljum því hvetja alla krakka og unglinga til að taka þátt í mótinu.

Reglur:
Spilaðar eru 13 holur (gæti aukist í 18 holur seinni parts sumar, nánar auglýst síðar ef af verður)
Hægt er að spila hvenær sem dagsins á mótsdag, amk tveir kylfingar saman en hámark fjórir
Spiluð er punktakeppni með forgjöf.
Full forgjöf 36 er leyfð í mótinu, þ.e. allt að 2 högg í forgjöf á holu.
Slegið er af rauðum teigum
5 bestu mót hvers keppenda gilda þ.e. ef þau taka þátt í fleirum en 5 mótum.
Stigin verða sem hér segir:
1. sæti=10 stig
2. sæti= 7 stig
3. sæti= 5 stig
4. sæti= 3 stig
5. sæti= 1 stig
Ekkert þáttökugjald er á stigamótum unglinga í sumar. Hægt er að lesa hér nánar um forgjafarröðun á 13 holum.

21. maí
Úrslit úr stigamóti 2 - Tryggingamiðstöðvarinnar

Hér að neðan er krækja þar sem er að finna úrslitin úr öðru stigamóti sumarsins.  Mótið var haldið í blíðskaparveðri.  Tryggingamiðstöðin styrkti mótið og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir. Þrjú efstu sætin með forgjöf.
1 Svanhvít Helga Hammer 31 48 47 95 64
2 Stefán Leifur Sigurðsson 10 39 36 75 65
3 Þorlákur G Halldórsson 25 47 47 94 69

Úrslit úr stigamótinu 20. maí 2009 

16. maí
Úrslit úr Texas Scramble mótinu

Hér að neðan er krækja þar sem úrslitin úr Texas scramble mótinu er að finna.  Mótið var haldið í blíðskaparveðri í dag...blés reyndar aðeins en menn létu það ekkert á sig fá! Veiðafæraþjónustan ehf. styrkti mótið og þökkum við þeim kærlega fyrir þeirra innlegg.

Úrslit úr Texas scramble mótinu 16. maí 2009 

Nándirnar féllu í skaut eftirfarandi:
8.hola -> Garðar Ingi Leifsson (Örn Rúnar Magnússon) - 2,65m
13. hola -> Jón Ingi Jóhannesson (Þorvaldur Hreinsson) - 1,14m

Þeir sem unnu til verðlauna eiga von á gjafabréfunum sínum í pósti næstu daga. Gott væri engu að síður að þeir sem unnu til verðlauna sendi póst á havardur@ok.is með upplýsingum um heimilsfang.
Viljum við þakka þeim sem lögðu leið sína á Húsatóftir og vonandi sjáum við ykkur aftur..sem fyrst :)

Golfkveðja,
Mótanefnd GG

11. maí
Bikarkeppninni frestað vegna veðurs.

Bikarkeppninni hefur verið frestað vegna veðurs.  Við stefnum á að setja hana á seinnipartinn í maí.

Kveðja,
Mótanefnd

11.maí
Golfæfingar – stúlknaæfingar

Golfæfingarnar hófust hjá okkur í síðustu viku og var mjög góð mæting hjá börnum og unglingum.
Þar sem mikill fjöldi hefur verið hjá 2001-1997 árgöngunum þá er okkur mikil ánægja að tilkynna að í maí verðum við með sér stúlknaæfingar hjá Sigurpáli Geir Sveinssyni golfkennara á þriðjudögum.

Æfingartaflan lítur þá svona út í maí:
Stúlkur fæddar 2001-1997:            þriðjudaga kl. 14-15 og fimmtudaga kl. 15-16.
Strákar fædd 2001-1997:               þriðjudaga og fimmtudaga kl. 15-16.
Ungl. fæddir 1996 og eldri:            þriðjudaga og fimmtudaga kl. 16-17.

Ef sami kraftur verður áfram í mætingu hjá stúlkunum þá stefnum við á að hafa þær á sér æfingum í sumar.  Munið að ekkert kostar á golfæfingarnar í sumar hjá golfklúbbnum svo endilega mæta og prófa fjörið út á golfvelli!

Frekari upplýsingar veitir
Guðmundur Bragason (form. unglingaráðs) s. 822-1911,  gb@sonar.is

8.maí
Golfkennsla fyrir kylfinga

Sigurpáll Geir Sveinsson golfkennari býður félagsmönnum og öðrum Grindvíkingum upp á tíma í golfkennslu á þriðjudögum frá kl. 17-18. 
Einstaklingar 3.000 kr hálftíminn
Tveir saman 3.500 kr hálftíminn.

Hafið sambandi við skálann til að skrá ykkur í kennslu.

8.maí
Barna- og unglingastarfið fær frábærar viðtökur

Eins og áður hefur verið sagt frá, þá hafa barna- og unglingaæfingar hafist að nýju á Húsatóftavelli undir handleiðslu Sigurpáls Geirs Sveinssonar. Viðtökurnar hafa farið fram úr björtustu vonum, því á fyrsta degi voru samtals 55 krakkar sem sóttu kennsluna, en ekki 43 eins og áður var sagt frá. Í gær voru aðeins færri þar sem golfkennslan stangaðist á við körfuboltaæfingar stúlkna. Samt var mikið fjölmenni. Gaman er að segja frá því að fyrsta daginn voru um og yfir 20 stúlkur sem mættu í kennsluna og það eitt og sér gefur góð fyrirheit um að hægt sé að efla til muna kvennagolf hér í Grindavík og treysta það í sessi innan klúbbsins. Að sögn Guðmundar Bragasonar formanns unglinganefndar er hann nú að loknum tveimur dögum í kennslu, kominn hafa um 70 börn og unglingar verið skráðir. Frábær árangur og mikilvægt að halda vel utanum þessa einstaklinga og með það að markmiði ætti framtíðin að vera björt.

6.maí
Stjórnarfundur 7. maí

Stjórnarfundur Golfklúbbs Grindavíkur verður fimmtudaginn 7. maí nk. kl. 20:00 að í golfskálanum á efri hæð.  Dagskrá fundarins er svohljóðandi: Smellið hér.
 

6. maí
Frábær mæting í kennslu hjá Sigurpáli

Það var fjöldi hressra krakka sem mætti í fyrstu kennslustund hjá Sigurpáli Geir Sveinssyni á Húsatóftavelli.  Samtals mættu um 43 krakkar í kennsluna.  Krökkunum var skipt í tvo hópa, yngri hópur var frá kl. 15-16 og sá eldri frá kl. 16-17.  Farið var í undirstöður sveiflunnar, púttað og  margt fleira.  Það mátti sjá mikla eftirvæntingu skína úr andlitum krakkanna þegar þau mættu í kennsluna, því eins og kylfingar eflaust vita þá er kennarinn vægast sagt þekkt nafn í golfheiminum.  Sigurpáll Geir hefur 3 sinnum orðið Íslandsmeistari í höggleik.  Hann reyndi m.a. fyrir sér í atvinnumennskunni um hríð.  Það eitt og sér ætti að verða krökkunum mikil hvatning og efla yngri barna starfið hjá golfklúbbnum.  Myndir frá kennslunni birtast síðar.

4. maí
Golfkennsla yngri - golfskóli

Golfæfingar – golfskóli

Ágætu grunnskóla nemendur og foreldrar,

Nú er barna og unglingastarfið að hefjast hjá okkur í Golfklúbb Grindavíkur.
Áhuginn var mikill í fyrra og stefnan er að gera betur í sumar og efla enn frekar barna og unglingastarfið hjá okkur.
Strax í maí munu hefjast skipulagðar golfæfingar hjá Golfklúbb Grindavíkur fyrir börn og unglinga og verður sú fyrsta þriðjudaginn 5 maí.

Í byrjun er miðað við árgang 2001 og eldri, en verið er að athuga með æfingar fyrir yngri krakka þegar skóla lýkur í júní.
Líkt og í fyrra er lagður mikill metnaður að fá reyndan golfkennara að stjórna æfingum hjá okkur.  Það er okkur mikill heiður að kynna nýjan golfkennara sem stjórna mun barna og unglingaæfingum hjá okkur í sumar; Sigurpál Geir Sveinsson.  Sigurpáll Geir er landsþekktur kylfingur, fyrrverandi íslandsmeistari og núverandi formaður PGA golfkennara á Íslandi.

Vikuna 15-19. júní verður haldinn golfskóli sem Sigurpáll Geir mun einnig hafa umsjón með.  Það er ætlað fyrir börn fædd 1996 og yngri.  Nánar um það síðar.

Markmið með þessum æfingum og væntanlegu golfnámskeiði er:

  • Að leyfa börnum og unglingum að prufa og kynnast golfíþróttinni

  • Að kenna undirstöðuatriði golfsins (agi, tækni, reglur og leikskilningur)

  • Síðast en ekki síst að hafa gaman því golf er jú mikil skemmtun!!

Æfingar verða sem hér segir í maí:

  • Börn fædd 2001-1997:                   þriðjudaga og fimmtudaga kl. 15-16.
  • Ungl. fæddir 1996 og eldri:                        þriðjudaga og fimmtudaga kl. 16-17.

Æfingarnar verða á æfingarsvæði Golfklúbbs Grindavíkur að Húsatóftum og eru fyrir byrjendur jafnt sem lengra komna.   Ath. að ekkert kostar á þessar æfingar og því um að gera að prófa.  Kylfur og boltar verða á staðnum en þeir sem eiga kylfur endilega mæti með þær.  Munið að koma klædd eftir veðri og mæta tímanlega á æfingar.

Frekari upplýsingar veita:

  • Guðmundur Bragason (form. unglingaráðs) s. 822-1911,  gb@sonar.is
  • Páll Erlingsson (form. Golfklúbb Grindav.) s. 693-9065,  paller@simnet.is

1. maí
Símasambandslaust við skálann - verður komið í lag um helgina

Við viljum vekja athygli á því að símasambandslaust er þessar stundirnar við golfskálann.  Ástæðan er vegna endburbóta í skálanum og uppfærslu símkerfis. Reiknað er með að símasamband verði komið í lag um helgina.  VIð viljum ítreka að skálinn er opinn um helgar frá kl. 11:00 - 18:00 og virka daga frá kl. 12:00 - 21:00

1. maí
Símasambandslaust við skálann - verður komið í lag um helgina

Við viljum vekja athygli á því að símasambandslaust er þessar stundirnar við golfskálann.  Ástæðan er vegna endburbóta í skálanum og uppfærslu símkerfis. Reiknað er með að símasamband verði komið í lag um helgina.  VIð viljum ítreka að skálinn er opinn um helgar frá kl. 11:00 - 18:00 og virka daga frá kl. 12:00 - 21:00


Eldri fréttir
 














Golfklúbbur Grindavíkur 2009 vefumsjón: paller@grindavik.is