Eldri fréttir

Mars - apríl 08

Maí 08

Júní 08 Júlí 08
Ágúst 08 Sept 08
Okt 08 Des 08


 










 


 

 

 

Fréttir
mars 2009

30. mars
Nýr golfkennari fyrir börnin og unglingana í sumar

Hægt er að staðfesta það að nýr golfkennari mun sjá um kennsluna fyrir börn og unglinga í sumar.  Akureyringurinn Sigurpáll Geir Sveinsson hefur samþykkt að taka kennsluna að sér.  Sigurpáll er kylfingum að góðu kunnur þar sem hann hefur orðið Íslandsmeistari og hefur undanfarin ár leikið fyrir hönd Íslands í helstu keppnum okkar ásamt því að hafa reynt fyrir sér í atvinnumennskunni.  Hann lauk PGA golfkennaraprófi vorið 2008 og er mikill hvalreki á okkar fjörur.  VIð væntum mikils af samstarfinu við hann og erum mjög bjartsýn á komandi sumar.  Það eitt og sér að hafa fyrrum Íslandsmeistara í okkar röðum og landsliðsmann segir mikið um þann metnað sem við leggjum í að byggja hér upp framtíðargolfara.

30. mars
Breytingar á skálanum

Þessa dagana eiga sér stað endurbætur innanhúss á skálanum okkar.  Ólafur Már og Bjarni Einars hafa yfirumsjón með verkinu og er reiknað með að því verði lokið fyrir upphaf golfvertíðarinnar.  Fyrirhugað er að færa eldhúsaðstöðuna í það svæði sem gestir komu að lúgunni og til að versla.  Í staðinn verður stækkað opið þar sem hurðin að eldhúsinu var og nýta það betur fyrir gesti og aðra starfsemi.  Með þessu móti fæst meira rými fyrir eldhús og einnig nýtist svæðið betur fyrir alla kylfinga.

21. mars
Steinþór fór holu í höggi

Það er gaman að segja frá því að félagi okkar Steinþór Þorvaldsson fór holu í höggi á Húsatóftavelli þann 17. nóvember 2008.  Draumahöggið átti hann á 13. holu.  Að vísu telur það ekki þar sem leikið var af vetrarteigum. Samt sem áður er það alltaf draumur hvers kylfings að ná að leika holu í höggi og viljum við óska Steinþóri hjartanlega til hamingju með höggið.

21.mars
Æfingavöllur á Rollutúninu - par 3 völlur

Golfklúbbur Grindavíkur er nú í þeim sporum að hefja átak í uppbyggingarstarfi fyrir yngri kynslóðina og liður í því hefur verið að hefja æfingar og leiðsögn fyrir börn og unglinga.  Því miður liggur svo við að golfvöllur okkar Grindavíkinga er ekki í seilingarfjarlægð fyrir áhugasama krakka og unglinga sem vilja njóta þess að leika golf og læra undirstöður íþróttarinnar.  Þar sem fyrirkomulag æfinga knattspyrnudeildarinnar hefur breyst með tilkomu hins nýja knattspyrnuhúss og æfingaaðstaða hennar hefur verið flutt af Rollutúninu á hið veglega æfingasvæði og í knattspyrnuhúsið opnast möguleikar fyrir golfklúbbinn að færa starfsemi sína að hluta til innan bæjarmarkanna.
Með velvild bæjarráðs höfum við fengið Rollutúnið undir æfingasvæði fyrir golfklúbbinn.  Bréf þess efnis var sent til bæjarráðs í júlí 2008 og var stuttu síðar samþykkt af bæjarráði.   Framtíðarsýn okkar eru á þann veg að setja upp lítinn æfingavöll (par 3 völl) sem öll börn og unglingar geta stigið sín fyrstu skref í golfíþróttinni án þess að þurfa að ferðast langa leið á golfvöllinn.  Völlurinn mun án efa reynast fleirum mikill happafengur þar sem eldri borgarar geta nýtt sér þessa aðstöðu, svo og er hann stutt frá tjaldstæðinu. Þannig verður enn einn afþreyingar valkostur fyrir gesti bæjarins (ekki má gleyma því að púttvöllurinn yrði samofinn vellinum).
Einnig mun það geta nýst almennum kylfingum við æfingar og leik ekki síður en heilu fjölskyldunum sem getur átt þar saman góðar stundir.  Sem sagt góð afþreying fyrir unga sem aldna, alla fjölskylduna eða kylfinga við æfingar.  Í okkar huga fellur þetta vel inn í það skipulag þróttasvæðisins sem fyrir er, þ.e. tjaldsvæði, sundlaug, íþróttasvæði, fjölnotahús og púttvöllur.

21.mars
Vinnudagar í sumar

Áætlað er að hafa fáeina vinnudaga á vellinum í sumar. Af mörgu er að taka en það sem liggur brýnast fyrir er að rífa klæðningu af golfskálanum okkar.  Sá vinnudagur varf fyrirhugaður nú strax í aprílmánuði en á stjórnarfundi þann 18. mars var ákveðið að fresta þessum framkvæmdum þar til í september/október nk. vegna þess hve stutt er í að golfvertíðin heflist.  Það sem hafði áhrif á þessa ákvörðun er að golfklúbburinn má ekki við því að vinnupallar og slíkt umlyki húsið þegar opin mót og gestakomur eru að hefjast á vellinum. Það eitt og sér væri slæm auglýsing.  Leitað verður útboða og þegar hafa útboðsgögn verið unnin. 
Einnig verður sérstakur hreinsunar og vinnudagur á vellinum.  Þar verður unnið við stígagerð, sandgryfjur og fleira.
Þá eru nokkrir vinnudagar hugsaðir í sambandi við stækkun vallarins því eins og mönnum er eflaust ljóst, þá skiptir það okkur miklu máli að félagar taki þátt í grjóthreinsun og fleira er viðkemur stækkuninni.  Sú vinna sem þeir inna af hendi í sjálfboðavinnu reiknast til tekna fyrir klúbbbinn.  Það fjármagn gerir okkur kleift að sinna fleiri málum en ella.  Því er það gríðarlega mikilvægt að menn hjálpist að og leggi sitt á vogarskálarnar.  VIð vitum að klúbburinn stendur og fellur með okkur meðlimum. Setjum á okkur hanskana og tökum á þessu í sameiningu.  Margar hendur vinna létt verk.

21.mars
Stækkun Húsatóftavallar
Hannes Þorsteinsson golfvallahönnuður tekur til starfa

Undanfarnar vikur hefur Golfklúbbur Grindavíkur átt í viðræðum við Hannes Þorsteinsson golfvallarhönnuð varðandi stækkun vallarins í 18 holur.  Það er ekki vafi á að Hannes mun reynast okkur mikill happafengur þar sem hugmyndir hans samrýmast í flestum atriðum framtíðarsýn stjórnar klúbbsins.  Hannes hefur sýnt áhuga á kynna sínar hugmyndir fyrir félagsmönnum á opnum fundi, síðan að ganga völlinn með félögum G.G. og útskýra hugmyndir sínar um leið.  Þá geti menn komið með athugasemdir og rætt tillögur Hannesar frekar.

Hugmyndafræði Hannesar varðandi hugsanlegan 18 holu golfvöll að Húsatóftum:
Við ættum ekki stefna að löngum ”Pro” velli heldur einblína á þann hóp sem gefur mest þ.e. menn með forgjöf fyrir ofan meistaraflokk og uppúr.  Laga fyrirhugaða stækkun að landslaginu sem fyrir er og ekki rembast við of langar brautir.   Markaðssetja völlinn fyrir 1. flokk og uppúr, mátulega krefjandi brautir og ”Old Course” völl eins og þekkist víða erlendis.   Vissulega væri kostnaðarsamt að stækka völlinn í 18 holur, en þar sem við værum nú þegar komin tæplega hálfa leið með 13 holur væri það vel framkvæmalegt.  Boðað verður til fundar fyrsta laugardag í apríl í golfskálanum.  Við viljum hvetja félagsmenn til að fjölmenna á fundinn og koma skoðunum sínum á framfæri.  Að kynningum loknum verður kosið í 5 manna framkvæmdanefnd um stækkun vallar.  Nefndin mun síðan alfarið hafa umsjón með verkinu og öllum samskiptum við Hannes.   Nánar verður farið í þau mál á fundinum.

15.mars
Stjórnarfundur 18. mars

Stjórnarfundur Golfklúbbs Grindavíkur verður miðvikudaginn 18. mars nk. kl. 20:00 að Leynisbraut 13c.  Dagskrá fundarins er svohljóðandi: Smellið hér.
 


Eldri fréttir
 














Golfklúbbur Grindavíkur 2009 vefumsjón: paller@grindavik.is