Fréttir
september 2009

27. sept
Gulir, glærir og glaðir - Texas scramble

Það var ansi napur vindur sem kylfingar þurftu að kljást við í mótinu en þeir sem mættu létu það ekki á sig fá því fjöldi þátttakenda skráði sig til þátttöku. Sólin skein skært og náði að halda hitastigi sæmilegu. Góð tilþrif sáust meðal kylfinga sem mættu uppdúðaðir á teig eins og myndirnar sýna. Völlurinn skartaði sínu fegursta og var það á margra orði að flatirnar væru með eindemum góðar, þéttar með góðu rennsli. Myndir frá mótinu eru á myndasíðunni - smellið hér  Annars urðu úrslitin sem hér segir:

Nafn Forgjöf Fyrri Seinni Samtals   
Laxdal 1 33 32 64 3. sæti
Hafsteinn og Guðmundur  6 36 36 66  
Jóli  6 41 37 72  
Hinrik Andrés Hansen  7 38 37 68  
Skytturnar  5 37 37 69  
Halldór Hjartarson  6 40 37 71  
104 hverfið  4 37 36 69  
Svanirnir  7 40 42 75  
Guðlaugur Eyjólfsson  7 40 41 74  
tippalingarnir  5 39 42 76  
Stefán Leifur Sigurðsson  6 43 39 76  
Frímann Ólafsson  9 42 46 79  
Ólafur Ingólfsson  9 38 43 72  
Maggi og Kjartan  4 36 35 67  
Gunni best  7 36 37 66  
Jón Halldór Gíslason  4 41 39 76  
Guðmundur Baldursson  6 40 40 74  
LöggeBjörn  5 41 40 76  
Orri Freyr Hjaltalín  7 37 39 69  
Gunnar Borg Jónsson  4 37 37 70  
SYNIR GUÐJÓNS  2 36 38 72  
Gylfi Þór Pétursson  7 37 34 64 2. sæti
Gylfi Þór Pétursson  10 43 40 73  
langbest  4 35 38 69  
Næstbest  1 36 34 69  
Látrar  8 46 42 80  
Nágranar  6 36 37 67  
Leó Jónsson  8 41 44 77  
Viktor Jónsson  6 39 40 73  
Annel Jón Þorkelsson  4 38 37 71  
Daníel Einarsson  5 39 34 68  
Björn Ragnar Morthens  4 34 39 69  
Eyþór Ágúst Kristjánsson  -1 31 33 65 4. sæti
Haltur leiðir þunnan 3 38 38 73  
Jón Guðmundsson  -2 30 31 63 1 sæti
Hilmar Örn Þórlindsson  8 35 42 69  
yngri & þyngri  6 43 38 75  

Námundarverðlaun á 8. holu:  Jón Guðmundsson, 512cm frá holu.
Námundarverðlaun á 13. holu: Þröstur Ástþórsson, 162cm frá holu.

Við þökkum kærlega fyrir þátttökuna og vonumst til að þið takið þátt með okkur í tilrauninni næstu helgi í 13 holu Texas móti.

Kveðja,
Golfklúbbur Grindavíkur

25. sept
Bæjarstjórn Grindavíkurbæjar kynna sér stækkunarframkvæmdir

Fimmtudaginn þann 24. september bauð stjórn golfklúbbsins fulltrúum bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar á kynningarfund um stækkun Húsatóftavallar.  Eins og flestum er eflaust kunnugt, þá hefur Grindavíkurbær stutt vel við bakið golfklúbbnum undanfarin ár með miklum myndarskap.  Á síðastliðnu ári styrkti Grindavíkurbær klúbbinn um 51 milljón króna til uppbyggingar á 18 holu golfvelli. Styrkur þessi er greiddur út á þremur árum, sú fyrsta árið 2008. Síðastliðna mánuði hafa staðið yfir framkvæmdir við stækkun á vellinum og eru þær í samræmi við áætlanir.  Af því tilefni ákvað stjórnin að bjóða bæjarfulltrúum á fund til að kynna fyrir þeim hvernig framkvæmdum er háttað, hver framtíðarsýn klúbbsins er og ekki síst að sjá með eigin augum hvernig styrktarfénu sem bærinn lét af hendi, með miklum rausnarskap, er varið.  Fundurinn hófst á því að formaður klúbbsins fór yfir þá þætti og áætlanir sem hafðar eru til hliðsjónar varðandi stækkunina og þá helstu kostnaðarliði sem vænta má við slíkt verk.  Að kynningu lokinni gengu bæjarfulltrúar með stjórnarmönnum um svæðið til að sjá með eigin augum stöðu framkvæmda undir leiðsögn Páls Erlingssonar, formanns golfklúbbsins.  Góður rómur var gerður að þessu framtaki klúbbsins og voru bæjarfulltrúar sammála um að stærð og umfang stækkunarinnar hafi komið þeim á óvart og að vel hafi til tekist með þær framkvæmdir sem þegar hafa unnist.  Voru menn mjög bjartsýnir á að völlurinn muni verða allur hinn glæsilegasti þegar fram líða stundir enda um mjög metnaðarfullt verk að ræða. Sjá myndir

24. sept
Hávarður sigraði ferfalt í sumar

Hávarður Gunnarsson tók fernuna þetta árið og verður ekki hægt að toppa þetta nema bæta inn nýrri keppni til að menn geti fengið þá fimmuna!! 
Stigameistarinn var tæpur hjá honum þar sem hann var í 3. sæti fyrir síðasta mótið, 6 stigum á eftir 1. og 2. sætinu, en hann spilaði best þann daginn og klifraði í efsta sætið á meðan þeir sem voru í efstu tveimur sætunum áttu slæman dag.
Hann vann meistaramótið með 5 höggum.  Gunnlaugur Sævarsson hafði verið í baráttunni við hann og munaði 2 höggum á þeim þegar 14 holur voru eftir.  Þá fór eitthvað úrskeiðis hjá Gunnlaugi á meðan Hávarður hélt sínu striki og kláraði mótið.
Hann spilaði á móti Sigurgeir Guðjónssyni í bikarúrslitunum og var fljótlega kominn með góða forystu , átti 3 holur eftir 5 og hélt dampi þar og vann leikinn 5-3.
Í úrslitum Tóftabóndans sem fóru fram í gær mætti hann Gunnlaugi Sævarssyni.  Hávarður vann fyrstu 3 holurnar og náði Gulli að aldrei að koma til baka eftir það og lauk leik á 15. holu.
Það er því ljóst að Hávarður er ótvíræður meistari klúbbsins og greinilega besti kylfingur Grindavíkur.  Til að toppa þetta hjá honum fór hann einnig holu í höggi í sumar í sveitakeppninni á Húsavík þ.a. þetta verður sumar sem rennur honum seint úr minnum.
Stjórn G.G. óskar honum innilega til hamingju með árangur sumarsins

13. sept
Betri boltinn í Grindavík búinn - Texas eftir hálfan mánuð!

Það voru 80 manns sem tóku þátt í Opna Golfbúðarmótinu í Grindavík í dag, sumir í smá úða....aðrir í dálítilli rigningu....og sumir sluppu síðustu 5 holurnar við rigninguna en enginn slapp alveg við bleytuna.  Úr varð þó hið ágætasta mót þar sem Kári var ekkert að trufla okkur neitt hérna í Grindavík eins og vanalega! ;o)

1. verðlaun í mótinu hlutu Birgir Hermannsson og Jóhann Einarsson, þeir skiluðu sér inn á 44 punktum.
2. verðlaun hlutu þeir Ólafur Már Guðmundsson og Guðlaugur Eyjólfsson á 43 punktum.
3. verðlaun kom í hlut Erlings Jónssonar og Brynjar Steins Jónssonar en þeir komu einnig í hús á 43 punktum en slakari seinni 9 en Óli og Gulli.
4. verðlaun hlutu þeir Finnur Leifsson og Sigurður F. Sigurðarson á 41 punkti.

Námundarverðlaunin hlutu eftirfarandi aðilar:

8. hola:  Sigurður Þór Birgisson 137,5cm frá.
13. hola:  Hrönn Jónsdóttir 472cm frá.
4./17. hola Jón Guðmundsson 25 cm frá!!

Við viljum þakka þátttakendum kærlega fyrir þátttökuna og vonumst til að sjá ykkur eftir hálfan mánuð í Texas mótinu okkar, Gulir glærir og glaðir.

Öll úrslitin:

Nafn

Klúbbur: 3/4 forgj. Fyrri Seinni Samtals
Rósinkar Snævar Ólafsson GS 18 16 16 32
Sigurður S. Szarvas GSG 15
Auðunn Svafar Guðmundsson GG 8 18 20 38
Stefán Leifur Sigurðsson GG 7
Gísli B Blöndal GR 11 19 18 37
Gunnlaugur Ragnarsson GK 5
Þór Ríkharðsson GSG 7 21 18 39
Magnús Ríkharðsson GSG 10
Kristján Valtýr K Hjelm GSG 11 19 11 30
Guðmundur M Sigurðsson GVS 18
Páll Sigurðsson GÓS 18 15 19 34
Heimir Lárus Hjartarson GS 10
Jónas Gunnarsson GR 4 15 18 33
Hafsteinn Viðar Jensson GR 10
Páll Antonsson GSG 9 17 18 35
Snorri Jónas Snorrason GSG 8
Snorri Hlíðberg Kjartansson GKJ 15 17 20 37
Sveinn Jóhannesson GKJ 16
Guðmundur Ingibergsson GK 5 19 14 33
Ólafur Danivalsson GK 6
Finnur Leifsson GKJ 8 22 19 41
Sigurður Freyr Sigurðarson GA 12
Þorvaldur Freyr Friðriksson GO 10 16 15 31
Jón Páll Pálmason GK 5
Ásgeir Ingvarsson GKG 18 14 16 30
Helgi Róbert Þórisson GKG 18
Sigurþór Sævar Einarsson GKM 18 15 18 33
Gunnar Rafn Pálsson GKG 17
Sigurður Jónsson GG 16 24 17 41
Bjarki Guðmundsson GG 8
Ólafur Már Guðmundsson GG 6 21 22 43
Guðlaugur Eyjólfsson GG 17
Ingunn Gunnarsdóttir GKG 2 22 17 39
Jón Guðmundsson GKG 2
Sævar Björn Baldursson GR 18 15 16 31
Ásgeir Ingólfsson GR 15
Leifur Guðjónsson GG 5 21 18 39
Ingvar Guðjónsson GG 4
Einar G. Guðmundsson GKG 7 20 18 38
Sverrir S. Magnússon Gk 8
Þórmundur Blöndal GKG 11 19 18 37
Hinrik Árni Bóasson GKG 14
Kristinn Reyr Sigurðsson GR 6 17 14 31
Sigurður Sigurgeirsson GR 8
Taechol Óskar Kim GVS 18 19 19 38
Yuzuru Ogino GG 7
Erlingur Jónsson GSG 5 23 20 43
Brynjar Steinn Jónsson GSG 9
Guðmundur Ólafsson GKG 11 21 16 37
Þorvaldur Heiðarsson GKG 10
Þröstur Ástþórsson GS 1 19 20 39
Jón Ingi Ægisson GS 3
Karitas Sigurvinsdóttir GS 21 17 12 29
Þóranna Andrésdóttir GS 19
Jóhann G Sigurbergsson GS 14 17 19 36
Snorri Jóhannesson GS 13
Jón Halldór Gíslason GG 11 17 16 33
Bjarni Andrésson GG 5
Birgir Hermannsson GG 11 24 20 44
Jóhann Freyr Einarsson GG 7
Sigurberg Guðbrandsson GK 2 21 19 40
Þórdís Geirsdóttir GK 1
Viktor Jónsson GG 18 10 15 25
Hrönn Jónsdóttir GG 10
Jón Gauti Dagbjartsson GG 18 20 17 37
Orri Freyr Hjaltalín GG 7
Páll Axel Vilbergsson GG 17 15 18 33
Ólafur Ingólfsson GKG 14
Ásgeir Steinarsson GS 9 20 18 38
Gunnlaugur Kristinn Unnarsson GS 5
Ingólfur Karlsson GS 8 14 16 30
Jóhann Björn Elíasson GS 6
Annel Jón Þorkelsson GSG 2 20 19 39
Halldór Rúnar Þorkelsson GSG 13
Sigurjón Ragnar Rögnvaldsson GBO 11 22 18 40
Jón Trausti Sverrisson GBB 14
Sigurður Þór Birgisson GG 6 20 19 39
Gunnar Már Gunnarsson GG 8
Eggert Bjarnason GK 8 17 16 33
Ingólfur T Garðarsson GSE 5

6. sept
Kóngsklöpparmótinu - Þorbjörn hf. lokið

Nýlokið er Kóngsklapparmótinu í veðurblíðu í Grindavík.  Þetta mun vera 28. árið sem þetta mót er haldið og er það Þorbjörn hf sem styrkir þetta mót að venju og er þeim þakkað kærlega fyrir síðustu tæpu 3 áratugi með klúbbnum.

Það voru ansi góð skor sem litu dagsins ljós í punktakeppninni og þar sem þetta var 7/8 punktamót verður að segjast að það sé nokkuð stórkostlegt að sigra á 44 punktum.  Okkur grunar að hann Ólafur Örn Ólafsson frá GR sé ekki enn lentur á jörðinni eftir þennan hring og verði lengi vel í skýjunum með þennan hring hjá sér í Grindavíkinni.  Lengi vel leit út að hann hefði tekið höggleikinn án fgj. líka(átti þó ekki möguleika á báðum verðlaununum) en Guðmundur Sveinbjörnsson GO kom inn í síðasta holli á 73 höggum og náði því þeim verðlaunum.

Önnur verðlaunasæti voru eftirfarandi:
2. sæti punktak.:  Pétur Þórarinsson GKB á 41p
3. sæti punktak.:  Ólafur G. Ragnarsson GK á 39p
4. sæti punktak.:  Sigurður Þór Birgisson GG á 39p
5. sæti punktak.:  Guðjón Steinarsson  GO á 38p

Námundarverðlaunin fengu:
4./17. hola:  Árni Dan GK  52,5 cm frá holu
5./18. hola:  Finnbogi Steinarsson GÞ  160 cm frá holu
8. hola:  Valdimar Einarsson GG  202 cm frá holu
13. hola:  Ólafur Ragnarsson 214 cm frá holu

Við óskum vinningshöfum til hamingju með sigurinn og þökkum um leið þátttakendum fyrir þátttökuna.
Viljum við minna í lokin á Opna Golfbúðarmótið sem verður haldið laugardaginn. 13. september og verður spilaður BETRI BOLTI, tveir og tveir saman í liði.  Skráning er hafin á golf.is.

Kveðja,
Mótanefnd Golfkl. Grindavíkur

5. sept
Kóngsklöppin - Þorbjörn hf. á morgun

Á morgun, sunnudaginn 6. sept. verður Kóngsklapparmótið haldið á Húsatóftavelli. Leikið verður með 7/8 punktafyrirkomulagi. Veitt verða verðlaun fyrir efstu fimm sætin í punktakeppni og einnig veitum við verðlaun fyrir besta skor í höggleik án forgjafar. Sá/sú er vinnur án fgj. getur ekki unnið líka í punktakeppninni og verður því að afsala sé án fgj. verðlaunum verði hann/hún í tveimur efstu sætum í punktakeppninni.
Hámarksforgjöf KVK 24 og KK 21 eftir niðurskurð. Þar sem stendur "frátekið" er vegna þess að þörf er að gera hlé á rástíma.
Þátttökugjald er 3.500 kr.- per haus. Súpa og brauð innifalið í gjaldi.

Verðlaun í mótinu eru eftirfarandi:
1. sæti höggl. án fgj.: 15þús kr.- gjafabréf frá Golfbúð Hafnarfjarðar.

1. sæti punktak.: Fjölskylduárskort í Bláa Lónið, að verðmæti 36þús
2. sæti punktak.: 20 þús kr.- gjafabréf frá Golfbúð Hafnarfjarðar.
3. sæti punktak.: 15 þús kr.- gjafabréf frá Golfbúð Hafnarfjarðar.
4. sæti punktak.: 10 þús kr.- gjafabréf frá Golfbúð Hafnarfjarðar.
5. sæti punktak.: 8 þús kr.- gjafabréf frá Golfbúð Hafnarfjarðar.
Námundarverðlaun á öllum par 3 holum og einnig eftir 2. högg á 5./18. holu(ein verðlaun - 2 tækifæri), 8.000 kr. gjafabréf frá Golfbúð Hafnarfjarðar. á hverri holu.

Kveðja,
Mótanefnd

  • Eldri fréttir
     














  • Golfklúbbur Grindavíkur 2009 vefumsjón: paller@grindavik.is