Fréttir
apríl 2010

29. apríl
Sumaropnun miðvikudaginn 5. maí

Miðvikudaginn 5. maí verður formleg sumaropnun okkar á Húsatóftavelli að því tilskyldu að veðrið verði okkur hliðhollt.  Nú er um að gera að fara að dusta rykið af kylfunum og æfa sveifluna fyrir komandi golftíð.  Stjórnin vill ítreka það við félaga að greiða ársgjaldið eða semja við gjaldkera um afborganir.  Þeir sem ekki hafa gert hreint fyrir sínum dyrum fyrir 15. maí að öðrum kosti þurfa þeir að greiða vallargjald og fá ekki þátttökurétt í mótum.  Muna að pokamerkið þarf að vera sjáanlegt á golfpokanum að öðrum kosti er litið á að viðkomandi hafi ekki greitt ársgjaldið.

29. apríl
Innanfélagsmót laugardaginn 1. maí

Laugardaginn 1. maí munum við taka forskot á sæluna og halda innanfélagsmót.  Rástímar verða frá kl. 11-13 og leikið verður á vetrargrínum.  Þátttökugjald er kr. 1.000

29. apríl
Kvennastarfið hefst að nýju 3. maí

Kvennastarfið hefst að nýju mánudaginn 3. maí kl. 18:00.  Kvennanefnd golfklúbbsins verður reglulega með spiladag fyrir allar konur, jafnt byrjendur sem vana kylfinga.  Ákveðið hefur verið að hafa spiladaginn á mánudögum og ráðgert að hefja leik kl. 18:00 á mánudaginn.  Við viljum hvetja konur til að mæta á mánudögum og njóta þessa að leika völlinn í góðum félagsskap.  tekin var ákvörðun innan nefndarinnar að hafa ekki nein formleg stigamót þetta árið þar sem svo margar konur eru byrjendur í íþróttinni.  Þess í stað hittast konur á fyrrgreindum tíma til að spila saman og njóta samverunnar án nokkurrar keppni.  Konur... nú er lag... sjáumst hressar á vellinum

29. apríl
Ítrekun til klúbbfélaga vegna ársgjalda 2010

Stjórn GG vill koma þeim upplýsingum á framfæri við klúbbfélaga að eindagi ársgjalda er 15. maí nk. Þeir félagar sem ekki hafa gert ráðstafanir varðandi greiðslu hjá gjaldkera þurfa frá og með 16. maí að greiða flatargjöld og fá ekki að taka þátt í mótum á vegum klúbbsins.  Þeir einstaklingar sem greiða fyrir 15. maí fá afhent pokaspjöld og forgjafarskírteini í skálanum.   Félaga komið ykkur hjá óþarfa ónæði og gangið frá greiðslum hið fyrsta.
Við viljum einnig ítreka það að allir eiga að skrá sig í skála áður en þeir hefja leik, engar undantekningar gerðar.  Allir félagar eiga að hafa pokamerkin sín sjáanleg á golfpokunum sínum.  Þeir sem ekki hafa golfpokamerki eftir 15. maí verða rukkaðir um flatargjöld óháð því hvort þeir hafi greitt ársgjaldið sitt..

22. apríl
Nýr golfkennari ráðinn hjá GG

Golfklúbbur Grindavíkur hefur ráðið Jóhann Kristján Hjaltason PGA sem nýjan golfkennara fyrir sumarið 2010.  Hann mun hafa yfirumsjón með kennslu og þjálfun barna og unglinga.  Hann mun einnig stjórna golfskólanum okkar en nánar á eftir að skipuleggja það í samvinnu við knattspyrnudeildina.  Hann hefur þegar hafið vinnu við samræmingu á æfinga- og kennslutíma í samráði við Eystein Hauksson yfirþjálfara yngri flokka knattspyrnudeildarinnar.
Jóhann hefur mikla reynslu við kennslu og þjálfun barna og unglinga Hann byrjaði að fást við golfkennslu fyrir alvöru sumarið 2005 og var þjálfari og unglingaleiðtogi Golfklúbbs Reykjavíkur sumarið 2006. Þjálfaði unglinga og afrekshópa GR 2008 – 2009. Jóhann kennir golf á afreksbraut íþóttaakademíunnar í Borgarholtsskóla. Golfklúbburinn væntir mikils af störfum hans og til að mynda mun hann fara af stað með markmiðasetningu varðandi uppbyggingu og mótun afrekskylfinga fyrir framtíðina.

16. apríl
Golfklúbburinn semur við Bláa Lónið

Golfklúbbur Grindavíkur hefur samið að nýju við Bláa Lónið um styrk til starfsins.  Bláa Lónið hefur verið mikilvægur styrktaraðili í okkar starfi á undanförnum árum.  Golfklúbburinn fagnar því að Bláa Lónið sé að nýju meðal velunnara klúbbsins og býður það velkomið að nýju til samstarfs. Berum við miklar væntingar til þess.  Því má einnig bæta við að Opna Bláa Lóns mótið verður endurvakið að nýju en það hefur ekki verið haldið á Húsatóftavelli undanfarin ár.  Það er því fagnaðarefni að fá mótið að nýju inn í okkar mótaskrá því Opna Bláalónsmótið var upphaflega haldið á Húsatóftavelli áður en aðrir klúbbar komu inn í það starf.  Mun ekkert til sparað til að gera mótið sem veglegast, en Bláa Lónið skuldbindur sig til að byggja mótið upp í samstarfi við klúbbinn með veglegum vinningum og glæsilegri umgjörð.

15. apríl
Golfklúbburinn semur við Landsbankann

Golfklúbbur Grindavíkur hefur samið að nýju við Landsbankann um styrk til starfsins.  Landsbankinn hefur verið stór styrktaraðili undanfarin ár, að undanskildu síðasta ári, og fagnar Golfklúbburinn þessum samningi ásamt því að bjóða Landsbankann velkominn að nýju sem góðan og sterkan styrktaraðila.  Berum við miklar væntingar til samstarfsins og sem hefur reynst okkur mjög gæfuríkt á undanförnum árum.  Samningurinn gildir til ársins 2012 en er með endurskoðunarákvæði fyrir hvert ár.

15. apríl
Mótamál - Verið er að vinna í mótaskrá

Þessa dagana er verið að leggja lokahönd á mótaskrá fyrir komandi sumar.  Örlitlar breytingar munu eiga sér stað á stigamótum GG að þessu sinni.  Í stað höggleiks verða stigamótin með punktakeppnis- fyrirkomulagi.

 

Eldri fréttir

 










Golfklúbbur Grindavíkur 2010 vefumsjón: paller@grindavik.is