Fréttir
maí 2010

28. maí
Opnað fyrir skráningu á Sjóarann síkáta open

Nú hefur verið opnað fyrir skráningu í Sjóarann Síkáta, hið vinsæla golfmót Grindvíkinga sem hefur verið haldið um sjómannahelgina.  Að þessu sinni verða mótin tvö talsins;  annars vegar opið mót með Texas Scramble fyrirkomulagi og hinsvegar opið öldungamót.  Eins og undanfarin ár verða frosnar fiskafurðir ásamt öðrum veglegum vinningum.  Nú er um að gera að missa ekki af þessu einstaka tækifæri og samtvinna golfmót við Sjóarann Síkáta, skemmtun okkar Grindvíkinga, sem hefur verið að festa sig í sessi sem ein af stóru hátíðum okkar landsmanna.

22. maí
Ástand flata

Nú eru flatirnar að jafna sig eftir tappagötun sem framkvæmd var miðvikudag og fimmtudag (19.-20. maí). Sökum vélabilanna og manneklu tók framkvæmdin lengri tíma en gert var ráð fyrir og því náðist ekki að sanda flatir fyrir helgina þrátt fyrir þrotlausa vinnu. Lokið verður við söndun í næstu viku ásamt því að gata yfir flatirnar aftur með mjög mjóum teinum sem hjálpa við að loka þeim götum sem eru nú þegar í flötunum.

Flatir eru einnig töluvert loðnar og stafar það af því að verið er að stækka þær, en þær hafa minnkað mikið undanfarin ár með þeim afleiðingum að margar holustaðsetningar voru “horfnar”. Ekki hefur verið hægt að lækka sláttuhæði á flötum neðar en í 8 mm þar sem að gras í köntum höndlar ekki of hraða lækkun á slætti.

Hæglosandi áburður var borin á flatirnar á föstudaginn(21. maí), sem losar næringarefni yfir þryggja mánaða tímabil. Þessi áburður var ekki búinn að leysast nægilega vel upp í morgun (laugardag 22. maí) og var ekki hægt að slá flatir án þess að hætta því að áburðurinn skemmdist (sem gæti þýtt of hraða losun áburðar sem leiðir af sér ofvöxt í grasinu).

Þessir þættar gera það að verkum að flatir eru ekki sérlega góðar í dag og biðst ég velvirðingar á því. Þessi aðgerð er nauðsynleg fyrir langtíma heilbrigði flatanna, en þær hafa þurft að þola mikinn ágang sjúkdóma sem drepið hafa mikið af grasi. Tímasetningin núna er mjög góð fyrir grasið og því er farið í þessa aðgerð nú.

Ég vona að kylfingar sýni þessu ástandi skilning þar sem þetta er nauðsynlegur hlutur í að geta boðið upp á góðar flatir yfir lengri tíma ár hvert.

Virðingarfyllst
Bjarni Þór Hannesson M.Sc.
Vallastjóri

22. maí
Úrslit í Opna Texas scramble mótinu - Veiðafæraþjónustan
 

Það var mildur morgungráminn sem heilsaði þeim kylfingum sem ræstu snemma um morgun í mótinu.  Þykk þokan hafði lagst yfir Húsatóftavöll og áttu þátttakendur erfitt með að greina boltann í hvert skipti eftir höggin sín.  Það breyttist þó þegar líða tók á morguninn, því sólin ruddi sér leið og skein skært á keppendur það sem eftir var dags.  Sumir sem ekki voru vanir sólarglennum áttu erfitt með að verjast sólbruna í blíðunni. 
Mjög gott skor náðist í mótinu og þeir sem hlutskarpastir voru léku völlinn á 57 höggum með forgjöf.  Það voru þeir Hjalti Atlason GKB og Haraldur Þórðarson GJÓ sem sýndu þessa frábæru takta.  Þess má geta að þeir náðu 13 fuglum og 5 pörum á hringnum.  Glæsileg frammistaða.
Í öðru sæti urðu þeir Davíð Arthur Friðriksson GG og Helgi Dan Steinsson GL á 61 höggi með forgjöf.  Í því þriðja urðu Sigurbjörn G. Ragnarsson GÞ og Jón Karl Björnsson GK á 63 höggum eins og Björgvin Sigmundsson og Bragi Jónsson, báðir úr GS, en Jón Karl og Sigurbjörn voru á betra skori með forgjöf á síðar 9 holunum.

8. braut var Hólmar Waage 1,48 metra.
13. braut var Haraldur Þórðarson 0,56 metra.
Verðlaunin voru Mizuno Thermo peysa og frímiði í Bláa Lónið.

Verðlaunin voru eftirfarandi:
1. sæti 2x 30.000 kr gjafabréf í Golfbúð Hafnarfjarðar.
2. sæti 2x Nike pútterar, dúsín af Callaway golfboltum og 2 frímiðar í Bláa Lónið að verðmæti rúmlega 20.000 kr
3. sæti 2x Mizuno termo peysa, dúsín af Callaway golfboltum og 2 frímiðar í Bláa Lónið að verðmæti rúmlega 10.000 kr.

Vinninganna er hægt að vitja í golfskálanum á opnunartíma vallarins

En úrslitin öll má sjá hér:

Nafn liðs: Forgjöf: Fyrri 9 Seinni 9 Samtals 
Kristján Valtýr 8 42 41 75
Hjalti Atlason 1 31 27 57
Orri Freyr 6 37 36 67
Garðar Páll  6 35 35 64
Júlíus Margeir 4 39 38 73
Björgvin Sigmundsson 1 33 31 63
Júlíus Hallgrímsson 0 37 29 66
Guðmundur Valur 5 39 40 74
Pétur Már Pétursson 5 41 34 70
Gísli Sigurgeirsson 6 40 39 73
Eyþór K. Einarsson 0 32 34 66
Adam Örn Stefánsson 4 37 36 69
Hinrik Árni Bóasson 6 39 35 68
Hólmar Waage 2 33 34 65
Bergvin Ólafarson 7 38 39 70
Sigurður Helgi Magnússon 4 36 32 64
Bjarki Guðmundsson 5 36 39 70
Hávarður Gunnarsson 3 35 34 66
Gísli Karel Eggertsson 7 42 39 74
Axel Þórir Alfreðsson 4 36 35 67
Örn Tryggvi Gíslason 3 36 35 68
Jóhann Sigurbergsson 6 36 36 66
Einar Ingvar Jóhannsson 5 39 35 69
Hinrik Þráinsson 5 35 39 69
Bjarni Andrésson 4 37 38 71
Sigurbjörn G. Ragnarsson 4 37 30 63
Guðmundur Liljar Pálsson 6 36 37 67
Bjarnþór Þorláksson 6 39 35 68
Davíð Arthur Friðriksson 0 30 31 61
Ólafur Ágúst Ingason 3 35 34 66
Björn Steinar Brynjólfsson 7 37 37 67
Gunnar M. Gunnarsson 3 33 34 64
Birgir Sigurjónsson 9 38 39 68
Guðmundur G. Geirdal 5 38 36 69
Gaui Steinars 7 38 33 64
Eggert Ísfeld Rannveigarson 4 39 34 69
Michael Jónsson 8 44 41 77
Sigþór Óskarsson 2 32 35 65
Gerða Hammer 11 42 39 70

17. maí
Frá Vallarstjóra
Framkvæmdir - tappagötun flatanna þessa vikuna

Vikuna 17.-21. maí munu flatir verða tappagataðar til að losa við óhóflegt magn af lífrænu efni (þæfi, e. thatch) sem er í yfirborði flatana. Þessi aðgerð er aldrei vinsæl hjá kylfingum, af skiljanlegum ástæðum, en er því miður nauðsynleg til að hægt sé að bjóða upp á góðar flatir í sem lengstan tíma ár hvert.

Uppbygging þæfis í yfirborði flatanna hefur verið mikil í gegnum árin. Þegar þæfið er orðið verulegt (meira en 15 mm) þá getur það farið að hafa neikvæð áhrif á flatir, svo sem:

• Aukið sjúkdóma í flötum sem drepa gras (mjög mikið af grasi hefur drepist í vetur vegna ýmissa sjúkdóma).
• Hægir á rennsli á flötunum og ýtir undir að flatir „skallist“ við slátt.
• Dregur úr spírun nýrra fræja, þar sem þau þurfa helst að komast í snertingu við jarðveg.
• Dregur úr loftflæði um jarðveginn sem dregur úr starfsemi mikilvægra örvera í jarðvegi og kemur í veg fyrir eðlilegan rótarvöxt (getur kæft rætur sé vandamálið alvarlegt)
• Hægt á flæði vatns í gegnum yfirborðið.
• Dreift vatnsflæði þannig að svokallað „fingra flæði“ á sér stað þannig að þurrka blettir myndast (svokallaðir LDS) sem erfitt er að bleyta aftur upp í.

Með því að fjarlægja þetta lag með tappagötun getum við aukið magn æskilegra grasategunda í flötunum og hjálpað við að draga úr sjúkdómamyndun í flötunum sem er að stytta þann tíma sem flatirnar eru vel leikhæfar.

Ég vona að kylfingar sýni þessari óvinsælu, en nauðsynlegu aðgerð skilning. Við munum reyna allt sem við getum gert til að óþægindi vegna hennar vari sem styðst.

Virðingarfyllst
Vallastjóri
Bjarni Þór Hannesson M.Sc.

17. maí
Erfiðar aðstæður í Blue Lagoon Open - úrslit

Það voru mjög erfiðar aðstæður sem mættu kylfingum í mótinu á Húsatóftavelli í gær, fremur kaldur norðan strekkingur, enda var skorið í samræmi við það. Kylfingarnir létu það ekki á sig fá og mættu samtals 87 til leiks sem telst nokkuð gott miðað við aðstæður.  Völlurinn var í mjög góðu ástandi þó flatirnar léku marga kylfinga grátt, voru fremur hraðar og harðar. Það voru frekar þreyttir og veðurbarðir kylfingar sem komu í hús að loknum 18 holunum sigri hrósandi að hafa tekist að sigrast á erfiðum aðstæðum, fegnir því að fá heita súpu og brauð til að ylja sér að lokinni þrekrauninni.
Halldór Þórólfsson GK bar sigur úr býtum á 40 punktum með forgjöf en án forgjafar sigraði Guðlaugur Kristjánsson GKG á 77 höggum. Í öðru sæti var Guðlaugur á 34 punktum en þar sem hann gat ekki unnið til verðlauna í báðum flokkum varð Gunnar Oddgeir Sigurðsson GG í 2. sæti einnig á 34 punktum.  Í þriðja sæti varð Birgir Hermannsson GG á 33 punktum og í 4. sæti varð Jóel Kristinsson einnig á 33 punktum og í 5. sæti Páll Guðmundsson GÞH á 33 punktum.
Eftirfarandi voru næstir holu á:
4./17. braut var Magnús Stefánsson GG og Örn Ævar Hjartarson GS 7,10 metra (Magnús sigraði með hlutkesti) .
8. braut var Bjarni Andrésson GG 3,71 metra.
13. braut var Stefán Sveinsson GVS 0,99 metra.

Verðlaunin voru eftirfarandi:
1. sæti með forgjöf var fjölskylduárskort í Bláa Lónið og Mizuno termo peysa.
1. sæti án forgjafar var fjölskylduárskort í Bláa Lónið og Mizuno termo peysa.
2. sæti með forgjöf var Cleveland hybrid kylfa og Mizuno termo peysa.
3. sæti með forgjöf var Nike pútter og Mizuno termo peysa.
4. sæti með forgjöf var Mizuno termo peysa og dúsin af Callaway golfboltum.
5. sæti með forgjöf var Mizuno termo peysa.
Fyrir að vera næstur holu var máltíð á Salthúsinu að verðmæti kr 10.000.

Mótið á eflaust eftir að festa sig í sessi á næstu árum og gaf það gær fögur fyrirheit varðandi fjölda kylfinga og þeirra verðlauna sem í boði voru.
Þeir kylfingar sem unnu til verðlauna geta nálgast þau í golfskálanum á opnunartíma hans alla daga.  Upplýsingar eru í síma 426-8720.

13. maí
Sex holu par 3 völlur opnaður við Víðihlíð

Fyrr í dag voru teigar og flatir slegnar á Rollutúninu við Víðihlíð.  Það voru stjórnarmenn sem létu hendur standa fram úr ermum og settu sex holur víða um svæðið ásamt því að slá fyrr nefnda teiga og flatir. Þessi völlur hefur margþætt hlutverk.  Í fyrsta lagi verður nú auðveldara fyrir ungu kynslóðina að fara út á golfvöllinn og spila í stað þess að fara alla leið út á Húsatóftavöll.  Í öðru lagi er völlurinn í ákjósanlegri fjarlægð frá Dvalarheimili aldraðra að Víðihlíð og ekki síður tjaldstæðinu. Síðast en ekki síst er hann opinn öllum bæjarbúum og gestum að án endurgjalds.  Vonumst við til að allir nýti sér hann og að golfíþróttin eflist til muna með þessari viðbót.  Það eru ekki mörg bæjarfélög hér á landi sem geta státað af par 3 velli nálægt miðbæ sínum. Á vellinum mun verða æfingar og kennsla fyrir börn og unglinga í umsjá Jóhanns Kristjáns Hjaltasonar PGA kennara.  Nú er um að gera að rölta saman á völlinn, munda kylfurnar og taka léttan hring. 


12. maí
Úrslit í stigamóti I - Tryggingamiðstöðin

Fyrsta stigmót sumarsins var haldið miðvikudaginn 12. maí í sól en strekkingi.  Þáttaka í mótinu var ágæt miðað við aðstæður en 27 kylfingar tóku þátt að þessu sinni.  Nokkuð gott skor leit dagsins ljós og þrír efstu menn spiluðu til lækkunar.  Þóroddur Halldórsson lék best á 43 punktum og sigraði því með forgjöf.  Í öðru sæti varð Bjarni Andrésson á 37 punktum og í því þriðja varð Þorlákur G. Halldórsson einnig á 37 punktum.  Besta skor án forgjafar átti Davíð Arthúr Friðriksson á 74 höggum.

Mótanefndin


 

10. maí
Blue Lagoon Open er sunnudaginn 16. maí

Sunnudaginn 16. maí verður Blue Lagoon Open endurvakið eftir nokkurra ára dvala og ekkert er til sparað að gera það sem hið veglegasta. Áætlað er að vinningar og teiggjafir nemi um 220-250.000 kr
Mótsgjald er kr. 4.000
Innifalið er súpa, brauð og teiggjafir frá styrktaraðilum.

Verðmæti vinninga er áætlað um 185.000 kr

1. sæti Verðlaun m/forgjöf að verðmæti um 45.000 kr
2. sæti Verðlaun m/forgjöf að verðmæti um 30.000 kr
3. sæti Verðlaun m/forgjöf að verðmæti um 20.000 kr
4. sæti Verðlaun m/forgjöf að verðmæti um 10.000 kr
5. sæti Verðlaun m/forgjöf að verðmæti um 5.000 kr

1. Verðlaun án forgjafar að verðmæti um 45.000 kr

Nándarverðlaun á 4./17. holu að verðmæti um 10.000 kr
Nándarverðlaun á 8. holu að verðmæti um 10.000 kr
Nándarverðlaun á 13. holu að verðmæti um 10.000 kr

10. maí
Geymsluskápar í golfskála - eindagi greiðslna er 1. júní

Undanfarin ár hefur klúbbfélögum staðið til boða að leigja sér geymsluskáp í golfskálanum hvert ár.  Þeir sem skráðir eru með skápa þurfa að greiða í síðasta lagi 1. júní nk.  að öðrum kosti missa þeir sinn skáp og hann endurleigður til annara félaga.  Gjaldið fyrir skápinn er 6.000 kr þetta árið.
Hægt er að hafa samband við gjaldkera eða formann til að komast á biðlista eftir lausum skáp.  Stjórnin hefur einnig ákveðið að einungis kylfingar eldri en 16 ára fá leigða út skápa þetta árið (þeir sem greiða ársgjald til klúbbsins). Það er gert til að veita þeim sem greiða árgjald möguleika á betri þjónustu.  Börn 16 ára og yngri þurfa ekki að greiða árgjald og því liggur beinast við að leyfa þeim er greiða árgjald að ganga fyrir með skápa.

Stjórnin


 

10. maí
Stigamót I - Tryggingamiðstöðin

Fyrsta stigmót sumarsins verður miðvikudaginn 12. maí.  Hægt er að hefja leik frá kl. 13:00 - 18:30 þá daga sem stigamótin eru haldin.  Breytingar hafa verið gerðar á stigamótunum þetta árið að í stað höggleiks verður punktakeppni. Þá punkta sem viðkomandi fær út úr mótinu safnar leikmaður í stigatöfluna sína og punktahæsti leikmaðurinn í lok mótaraðarinnar hlýtur nafnbótina stigmeistari Golfklúbbs Grindavíkur.  Með þessu móti er verið að verða við óskum margra klúbbfélaga um breytingar á leikfyrirkomulagi.  Vonumst við til að það veki góðar tektir og fólk fjölmenni í stigamótin.  Mótsgjaldið er eftir sem áður 1.500 kr þetta árið.

Mótanefndin


 

5. maí
Opið öldungamót laugardaginn 8. maí

Opið öldungamót verður haldið laugardaginn 8. maí á Húsatóftavelli í Grindavík. 
Leikið verður aldursflokkunum 55+ karla og 50+ konur. 

Mótanefnd áskilur sér rétt til að sameina flokka ef þurfa þykir.

Samhliða mótinu verður LEK mót fyrir karla 70+ og konur 65+ og er Öldungamót LEK viðmiðunarmót sem gildir til stigagjafar í landslið LEK.

Nándarverðlaun er á 4./17. (tvö tækifæri en ein verðlaun) 8. og 13. holu.
Verðlaun eru veitt fyrir 3 efstu sætin með forgjöf og besta skor án forgjafar.

Þátttökugjald í mótið er kr. 3.500 kr


 

5. maí
Skráning á póstlista - nöfn féllu út

Þó nokkrir félagar hafa skráð sig á póstlista að undanförnu en því miður féll út nafnalisti þeirra þar sem gagnagrunnur sem innihélt upplýsingar þeirra eyðilagðist.  Þeir sem voru búnir að skrá sig eru vinsamlegast beðnir um að gera það að nýju og beðist er velvirðingar á ónæðinu sem það veldur.

3. maí
Golfskálinn opnar miðvikudaginn 5. maí

Golfskálinn okkar opnar miðvikudaginn 5. maí og verður opinn sem hér segir:

Virkir dagar kl. 12:00- 21:00
Helgar
kl. 11:00 - 19:00

Þær Bubba og Gréta munu eins og áður, taka vel á móti gestum og bjóða upp á góðar veitingar á vægu verði. 


Eldri fréttir
 










Golfklúbbur Grindavíkur 2009 vefumsjón: paller@grindavik.is