|
|
||
|
|
Fréttir 22. mars Dagskrá:
16. mars Á aðalfundi GG í desember síðastliðnum lagði Jón Guðmundsson (Jón pípari) fram hugmyndir af teikningum að nýjum skála sem yrði staðsettur þar sem íbúðarhús og tækjageymsla okkar er í dag. Jón lét gera þessar teikningar á sinn eigin kostnað með framtíðarsýn á nýju vallarstæði í huga. Kunnum við honum bestu þakkir fyrir framtakið. Þess ber að geta að aðeins er um að ræða hugmyndir aðhugsanlegum skála en engin ákvörðun hefur verið tekin af félagsmönnum hvað það varðar. Miðað við stækkunartillögur frá Hannesi golfvallahönnuði og sem verkáætlun byggir á, er skálinn hugsaður þar sem íbúðarhúsið er nú staðsett. Hér má sjá tekningarnar. Smelltu á til að stækka þær.
7. mars
Bjarni Þór Hannesson var í gær ráðinn
vallarstjóri á Húsatóftavelli hjá Golfklúbbi Grindavíkur. Bjarni
skrifaði undir samning til loka október á þessu ári með ákvæði um
áframhald á starfi hjá klúbbnum ef vel gengur. Það er óhætt að segja að Bjarni sé mikill
hvalreki fyrir lítinn klúbb eins og Golfklúbb Grindavíkur sem telur rétt
rúmlega 200 meðlimi. Bjarni býr yfir mikilli þekkingu á golfvallarfræðum
og hefur m.a. unnið á St. Andrews og Sunningdale völlunum í Bretlandi.
5.mars Leifur Guðjónsson hefur tilkynnt stjórn Golfklúbbs Grindavíkur að hann hafi ákveðið að hætta í stjórn frá fimmtudeginum 4. mars að telja. Stjórn Golfklúbbsins óskar honum velfarnaðar í framtíðinni.
4 mars Ingimar Waldorff hefur tilkynnt stjórn Golfklúbbs Grindavíkur að hann hafi ákveðið að hætta í stjórn frá sunnudeginum 28. febrúar að telja. Hann mun þó ekki alveg segja skilið við stjórnina þar sem hann mun aðstoða þann sem tekur við gjaldkerastöðunni að komast inn í gjaldkeramálin. Ingimar hefur undanfarið ár verið gjaldkeri golfklúbbsins og stjórn Golfklúbbsins þakkar honum góð störf og óskar honum velfarnaðar í framtíðinni.
3 mars Dómaranefnd GSÍ hefur skipulagt golfdómaranámskeið nú á
útmánuðum hér á höfuðborgarsvæðinu. Staðsetning verður ákveðin
eftir fjölda þátttakenda og kemur til greina að halda námskeiðin í
golfklúbbunum ef þátttakendur skiptast með þeim hætti. Staðsetning
verður kynnt fljótlega eftir að skráning liggur fyrir. Golfklúbbur
Grindavíkur hvetur áhugasama félaga til að hafa samband við Pál formann
á gggolf@gggolf.is . Það er
klúbbnum nauðsynlegt að hafa félaga innan okkar raða með dómararéttindi.
Golfklúbburinn greiðir fyrir þann kostnað sem útleggst vegna
námskeiðsins.
Stjórnarfundur GG
fimmtudaginn 4. mars Stjórnarfundur GG verður í golfskálanum að Húsatóftum kl. 20:00 fimmtudaginn 4. mars. Dagskrá
|
|
|
Golfklúbbur Grindavíkur 2010 vefumsjón: paller@grindavik.is |
||