Fréttir
september 2010

23. sept
Gulir, Glærir og Glaðir frestað til laugardags 2. okt

Gulir, Glærir og Glaðir-Texas scramble móti Golfklúbbs Grindavíkur hefur verið frestað til laugardagsins 2. október vegna mjög slæmrar veðurspár.  Biðjum við kylfinga forláts á því að þurfa að fresta því um viku. Þeir kylfingar sem skráðir voru í mótið þurfa því að skrá sig að nýju ef þeir ætla að taka þátt.

Mótanefnd GG

23. sept
Umfjöllun um Húsatóftavöll í Fréttablaðinu

Í Fréttablaðinu í dag birtist nokkuð greinargóð umfjöllun um Húsatóftavöll, stækkun hans og framtíðarsýn okkar félagsmanna.  Hér fyrir neðan er umfjöllunin:

Golfklúbbur Grindavíkur hugsar til hins almenna kylfings
"Rífandi gangur" er í stækkun á Húsatóftavelli við Grindavík sem verður 18 holur.

 

"Rífandi gangur" er í stækkun á Húsatóftavelli við Grindavík sem verður 18 holur. Formaður Golfklúbbs Grindavíkur segir stækkunina til að mæta þörfum félagsmanna en vonast til að höfða til kylfinga af höfuðborgarsvæðinu.

Miklar framkvæmdir hafa verið við Húsatóftavöll í Grindavík upp á síðkastið þar sem verið er að stækka völlinn upp í fullgildan 18 holu völl. Vinna hefur gengið afar vel og er vonast til að hægt verði að opna völlinn árið 2012.

Nú er búið að ryðja út þær fimm brautir sem bætt var við og sá í bæði brautir og flatir.

"Það er ekkert hálfkák í íþróttamálum hér í Grindavík og það er búinn að vera rífandi gangur í þessu í sumar," segir Páll Erlingsson, formaður Golfklúbbs Grindavíkur. Hann vill þakka sérlega vallarstjóranum Bjarna Þór Hannesssyni fyrir skörulega framgöngu, en einnig bæjaryfirvöldum sem hafa styrkt verkefnið myndarlega.

Húsatóftavöllur liggur skammt utan við bæjarmörk Grindavíkur og var lengst af níu holur. Fjórum holum var svo bætt við í tilefni af 20 ára afmæli klúbbsins 2001 og segir Páll að vonast sé til að völlurinn verði búinn að taka sig nógu vel næsta sumar svo að hægt verði að taka forskot á sæluna og halda þar 30 ára afmælismót.
"Því það er með ólíkindum hvað þetta hefur gróið vel. Þetta er líka mjög næringarríkur jarðvegur."
Hönnun nýju brautanna var í höndum Hannesar Þorsteinssonar, sem sá líka um síðustu stækkun.

Páll segir að þrátt fyrir að vera komnir með fullgildan 18 holu völl sé stefnan ekki sú að fá þangað stór mót.
"Við erum frekar að hugsa um hinn almenna kylfing sem getur komist úr ys og þys borgarinnar hingað í sveitasælu í frábæru umhverfi. Spilað sitt golf í rólegheitum og átt góðan dag. Svo er þetta líka auðvitað til að þjóna okkar félagsmönnum betur."
Páll segir augljóst að vellir á höfuðborgarsvæðinu séu sprungnir. Erfitt sé að fá rástíma og Húsatóftavöllur geti verið góður valkostur í þeim efnum. Leiðin sé styttri en margan grunar. "Það er til dæmis styttra til Grindavíkur en inn í Leiru."

Sérstaða vallarins liggur í umhverfinu, segir Páll. "Við erum hér, innan þessara 18 brauta, í raun með þrjá velli. Við erum með strandvöll, almennan túnvöll og svo með hraunvöll."
Völlurinn sé auk þess ekki mjög langur og eigi að henta öllum.
"Við lítum á það þannig að fólk komi hingað og eigi góðan dag, skori misjafnlega eins og gengur, en fari með þá tilfinningu að hafa átt góðan dag."

22. sept
Gulir, Glærir og Glaðir - Texas scramble
sunnudaginn 26. september

Hið árlega Texas Scramble mót Golfklúbbs Grindavíkur sem ber heitið Gulir Glærir og Glaðir verður haldið sunnudaginn 26. september næstkomandi.  Veðurspá lofar góðu fyrir daginn og er mótið haldið af því tilefni að keppnistímabili knattspyrnunnar er lokið

Sjá nánari lýsingu í mótaskrá.

Aðalstyrktaraðili er Sparisjóður Keflavíkur, dyggur stuðningsaðili Golfklúbbsins til margra ára.

21. sept
Úrslit úr Kóngsklapparmótinu 18. september

Kóngklapparmótið var haldið laugardaginn 18. september í ágætisveðri hér í Grindavík.  63 þátttakendur voru skráðir í mótið að þessu sinni.  Leikið var með punktafyrirkomulagi, 7/8 forgjöf. Sigurvegari með forgjöf varð Guðmundur Hreiðarsson GL með 39 punkta.  Í öðru sæti varð Atli Þór Karlsson GSG á 38 punktum ásamt Birgi Hermannssyni GG (3. sætið) og Gunnari Má Gunnarssyni GG (4. sætið) en með fleiri punkta á síðari 9 holunum. Í fimmta sæti með forgjöf varð Bjarki Guðmundsson GG á 37 punktum. Efstur án forgjafar varð Jakob Már Böðvarsson GK á 74 höggum.  Nánari úrslit má sjá hér.  Næsta mót Golfklúbbs Grindavíkur er Gulir, Glærir og Glaðir sunnudaginn 26. september.  Leikið verður með Texas Scramble fyrirkomulagi.

15. sept
Kóngsklapparmótið verður 18. september

Hið árlega Kóngsklapparmót Golfklúbbs Grindavíkur sem vera átti sunnudaginn 4. september hefur verið fært til laugardagsins 18. september. 

Veglegir vinningar eru í boði í mótinu sem er 7/8 punktamót.  Sjá nánari lýsingu í mótaskrá.

Aðalstyrktaraðilar eru eftirfarandi: Útgerðarfyrirtækið Þorbjörninn og Bryggjan Café.  Glæsilegur veitingarstaður við höfnina í Grindavík

15. sept
Úrslit úr stigamótum sumarsins - Bergvin meistari 2010

Úrslit úr stigmótaröð sumarsins eru kunn.  Það var gaman að sjá hversu margir tóku að meðaltali þátt í mótunum, sérstaklega þegar á leið sumar allt að 40 manns mætu í hvert skipti. Baráttan um sigurinn var hörð en svo fór þó að lokum að Bergvin Ólafar sigraði með 45,5 stig og í 2. sæti varð Andrew Wissler með 37 stig.   Í því þriðja varð Davíð Arthúr með 33,5 stig.  Annars má sjá heldarstigagjöfina og einstaka mót með því að smella hér á:  Úrslit úr stigamótum GG 2010

4. sept
Kóngsklapparmótinu frestað

Golfklúbbur Grindavíkur hefur ákveðið að fresta Kóngsklapparmótinu sem vera átti á morgun, sunnudaginn 5.sept. vegna lítillar þátttöku.  Veðurspáin spilar þar inn í og vegna þessa hafa aðeins 11 kylfingar skráð sig til leiks að þessu sinni.  Ný dagsetning á mótinu verður tilkynnt síðar.

 

  • Eldri fréttir
     














  • Golfklúbbur Grindavíkur 2009 vefumsjón: paller@grindavik.is