Fréttir
apríl 20
11

28. apríl
Sumaropnun 1. maí

Sunnudaginn 1. maí verður formleg sumaropnun okkar á Húsatóftavelli.  Nú er um að gera að fara að dusta rykið af kylfunum og æfa sveifluna fyrir komandi golftíð.  Stjórnin vill ítreka það við félaga að greiða ársgjaldið eða semja við gjaldkera um afborganir.  Þeir sem ekki hafa gert hreint fyrir sínum dyrum fyrir opnunina þurfa að öðrum kosti þurfa þeir að greiða vallargjald og fá ekki þátttökurétt í mótum.  Muna að pokamerki og félagsskírteinin verða afhent í skálanum.  Pokamerkið þarf að vera sjáanlegt á golfpokanum að öðrum kosti er litið á að viðkomandi hafi ekki greitt ársgjaldið.

28. apríl
Vorboðinn mikli - innanfélagsmót 1. maí

Loksins er komið að því að opna völlinn á sumargrínum. Af því tilefni verður innanfélagsmót með punktafyrirkomulagi. Mótið hefst kl. 12 og er með sama sniði og stigamótin.
Þátttökugjald er kr. 1500

Verðlaun eru fyrir 1 sæti án forgjafar og 1.-3. sæti með forgjöf.

Nándarverðlaun eru á 13. holu.

Mætum hress og kát og bjóðum golfsumarið velkomið á viðeigandi hátt.

Stjórnin

Golfæfingar í Hraunkoti

Golfæfingar verða í Hraunkoti sunnudaginn 17. apríl kl. 16:00.  Jóhann K. Hjaltason PGA golfkennari mun sjá um kennsluna þetta árið.  Hann er öllum hnútum kunnugur hjá okkur þar sem hann var golfkennari okkar á síðasta ári og hefur verið með æfingar frá því í janúar fyrir krakkana.
Æfingarnar verða eftirleiðis í Hraunkoti á sama tíma fram í miðjan maí.  Eftir það munu æfingar hefjast skv. skipulagi golfkennara á rollutúninu fyrir yngri krakkana en á Húsatóftavelli fyrir þau eldri.  Vinsamlegast hafið samband við Jóhann K. Hjaltason golfkennara til að fá nánari uplýsingar.  Sími Jóhanns er  897- 4198.

Stjórnin

 

Eldri fréttir
 










Golfklúbbur Grindavíkur 2011 vefumsjón: paller@grindavik.is