Fréttir
janúar 201
1

2.feb
Stjórnarfundur GG - dagskrá fundarins

  1. Barna- og unglingastyrkur Grindavíkurbæjar
  2. Styrktaraðilar
  3. Samstarf milli klúbbanna GS, GSG,GVS og GG
  4. Kaup á prentara, plöstunarvél og plasti
  5. Innheimtur árgjalda
  6. Framkvæmdir á Barðahúsi. 
  7. Rekstrarsamningur við Grindavíkurbæ
  8. Bílakaup - vallarbíll
  9. Önnur mál

21. jan
Æfingar í Hópinu hefjast sunnudaginn 23. jan

Golfæfingar barna- og unglinga hefjast sunnudaginn 23. janúar kl. 19 í Hópinu.  VIð hvetjum alla krakka til að mæta.  Jóhann K. Hjaltason PGA golfkennari mun sjá um kennsluna.  Fyrirhugað er að hafa einnig æfingar einu sinni í viku í Hraunkoti, Hafnarfirði.  Upplýsingar um það er að fá hjá Jóhanni.

Stjórnin

18. jan
Grindavíkurbær ákveður að frysta stækkunarstyrk GG

Grindavíkurbær hefur ákveðið að frysta úthlutun á styrk til Golfklúbbs Grindavíkur á árinu 2011 vegna stækkunar Húsatóftavallar í 18 holur. Þetta eru slæm tíðindi fyrir kylfinga í Grindavík enda mun þetta hafa þau áhrif að hægjast mun á framkvæmdum hjá klúbbnum.

Framkvæmdir eru nú á lokastigi og er vonast til að hægt verði að leika völlinn sem 18 holur á 30 ára afmæli klúbbsins í haust. GG ætlar að leggja fram það fé og standa undir þeim kostnaði sem hlýst af framkvæmdunum á þessu ári og vonast klúbburinn til að styrkurinn frá Grindavíkurbæ skili sér í upphafi árs 2012.

Um 220 meðlimir eru nú í GG og hefur þeim fjölgað ört á undanförnum árum. Á síðasta ári tókst að brjóta 200 meðlima múrinn hefur takmarkið verið sett að fjölga meðlimum enn frekar.

Fjárhagsleg staða klúbbsins er mjög góð því skammtímaskuldir nema aðeins 3,7 milljónum en eigið fé klúbbsins er samtals 7,1 milljón króna. Klúbburinn og Grindavíkurbær gerðu samning árið 2008 þar sem klúbburinn fékk 51 milljón króna styrk til að fara í stækkun vallarins. GG fékk leyfi til nota hluta þeirrar fjárhæðar til að borga niður óhagstæð erlend lán. Einnig stendur til að klúbburinn færi sig í nýtt klúbbhús innan skamms og hefur stefnan verið sett á að taka í notkun nýtt klúbbhús á næsta ári þegar Húsatóftavöllur er orðinn 18 holur

  • Eldri fréttir
     










  • Golfklúbbur Grindavíkur 2011 vefumsjón: paller@grindavik.is