|
|
||
|
|
Fréttir 28. júní Undanfarin ár hefur borið á því að einstaklingar, sem ekki eru klúbbfélagar, hafa verið að læða sér á völlinn án þess að greiða vallargjald. Það er með öllu ólíðandi að menn skuli vera svo óprúttnir að leika völlinn án greiðslu. Nú hefur stjórn Golfklúbbs Grindavíkur ákveðið að taka hart á þessum málum og þeir sem verða uppvísir að slíku fá sendan gíróseðil heim til greiðslu á vallargjaldinu. Öll starfsemi Golklúbbs Grindavíkur byggist á ársgjöldum félaga og flatargjöldum gesta hans og er það engan veginn ásættanlegt að óheiðarlegir einstaklingar komi sér hjá því að greiða umrædd flatargjöld. Einnig hefur stjórnin ákveðið að herða eftirlit á kvöldin eftir hefðbundinn opnunartíma skála þar sem umræddir einstaklingar gera það að leik sínum að spila völlinn þegar starfsmenn eru farnir heim. Við viljum einnig benda klúbbfélögum á að fylgjast með þessu athæfi manna og tilkynna það í skála. júní 2011 28. júní Hið árlega styrktarmót Hérastubbs Bakara og vina hans verður laugardaginn 9. júlí á Húsatóftavelli. Verðlaunin eru ekkert slor!!!
1.verðlaun 2x Taylor Made Burner
Driver verðm. 2 * 70.000 kr. Stórglæsileg nándarverðlaun á öllum par 3 holunum ásamt teiggjöfum og
fleiri glaðningum. Verðlaun eru fyrir óheppnasta parið, besta lúkkið og
flottustu innkomuna. Sýnið viljann í verki og takið þátt til styrktar stúlkunum
24. júní Jónsmessumóti GG hefur verið frestað til laugardagsins 2. júlí vegna af óviðráðanlegum orsökum. Mótanefnd 21. júní Stigamóti 6 hefur verið frestað til morgundagsins 22. júní vegna bikarleiks Grindavíkur og HK sem leikinn verður í kvöld í Grindavík. 20. júní Björk Bergsdóttir hefur verið ráðin í hlutastarf sem
framkvæmdastjóri GG. Hennar starfssvið verður yfirumsjón með
skála, styrktarmál, kynningarmál og auglýsingar, hópabókanir og
önnur umsýsla tengd golfklúbbnum. Með þessu opnar skálinn fyrr
á morgnana virka daga, þ.e. kl. 10. Björk er félögum vel
kunnug þar sem hún hefur verið félagi í klúbbnum í mörg ár.
Björk hefur nýlega lokið prófi í viðskiptafræði og bæði nám hennar
og starfsreynsla mun án efa nýtast Golfklúbbi Grindavíkur við
markaðssetningu á honum. 16. júní Bikarkeppni GG var þriðjudag og miðvikudag 14.-15. júní. Þáttakendur voru 39 og er það fjölmennasta bikarkeppni GG í um árabil. Þeir sem lentu í sæti 26-39 taka þátt í forkeppni um sæti í 32 manna úrslitum. Í dag var dregið um hverjir lenda saman í forkeppninni og listinn er á tilkynningartöflu í skálanum. Þessum leikjum skal lokið í síðasta lagi þriðjudaginn 21. júní. Dregið verður um úrslit þeirra sem ekki ljúka leik á fyrir þann tíma. Hér eftir er leikin holukeppni með 3/4 forgjöf.
9. júní Húsatóftavöllur fær góða kynningu og umfjöllun í Fréttabæaðinu í dag, 9. júní. Þar er farið yfir stækkunarframkvæmdir sem GG stendur í ásamt framtíðarplönum ásamt ýmislegu er varðar klúbbinn og söguna okkar. Sjá Fréttablaðið í dag með að smella hér
9. júní Styrktarmót fyrir mfl. kvenna í Grindavík hefur verið frestað fram á sumar vegna fámennrar þátttöku. Þegar hefur verið haft samband við felsta sem skráðu sig í mótið og vonumst við til að velunnarar mæti tvíefldir til leiks þegar það verður auglýst að nýju. Með kveðju
8. júní Það var ágætis veður, dálítill vindur, sem heilsaði kylfingum á stigamóti 5 - Metal, enda ber skor þátttakenda þess vitni. Af 40 keppendum voru 24 á „gráa svæðinu“ eða betra skori, sem er nokkuð góður árangur. Bestur meðal jafningja var Ellert Sig. Magnússon á 41 punkti. Í öðru sæti, einnig á 41 punkti, varð Daníel Eyjólfsson og í því þriðja varð Páll Axel Vilbergsson á 40 punktum. Besta skor án forgjafar átti Davíð Arthúr en hann lék völlinn á einu undir pari vallarins. Næstur holu varð Þorlákur Halldórsson með 1,89m. Nánari úrslit má sjá á golf.is. Stöðuna í stigamótunum eftir 5 umferðir er hægt að sjá hér:
4. júní Það var ágætis fjöldi sem tók þátt í Sjóaranum Síkáta open sem
Þorbjörninn ehf styrkti. Sjötíu og sjö keppendur voru skráðir til leiks
en 74 luku keppni. Í fyrsta sæti með forgjöf varð Halldór Ingi
Lúðvíksson á 39 punktum líkt og Bergvin Friðberg Ólafarson en með fleiri
punkta á síðari 9 holunum. Lúðvík hlýtur að launum einstaklings
árskort í Bláa Lónið ásamt 10 kg af fiskafurðum frá Þorbirninum.
Bergvin hlýtur að launum Cleveland hybrid kylfu og 5 kg af fiskafurðum
frá Þorbirninum. Í þriðja sæti á 38 punktum varð Hjalti
Sigvaldason Mogensen og hlýtur hann að launum gjafabréf frá Golfbúð
Hafnarfjarðar að verðmæti 15.000 kr og 5 kg af fiskafurðum frá
Þorbirninum. Í fjórða sæti varð Jósef Kristinn Ólafsson á 37
punktum líkt og 5 aðrir keppendur, en Jósef lék síðari 9 holurnar á
flestum punktum. Hann hlýtur tvö pör af Callaway Warbird
golfhönskum, Nike regnhlíf og 5 kg af fiskafurðum frá Þorbirninum. Nánari úrslit má sjá á golf.is.
2. júní Það var ágætis veður sem heilsaði kylfingum á stigamóti 4 - Íslyft, enda ber skor þátttakenda þess vitni. Af 40 keppendum voru 28 á „gráa svæðinu“ eða betra skori, sem er nokkuð góður árangur. Bestur meðal jafningja var Steinþór Júlíusson á 41 punkti. Í öðru sæti varð Sigurður Helgi Hallfreðsson á 40 punktum og í því þriðja varð Páll Axel Vilbergsson á 39 punktum, líkt og Ásgeir Ásgeirsson en Páll lék síðari 9 á 20 punktum á móti 19 hans Ásgeirs. Besta skor án forgjafar átti Davíð Arthúr en hann lék völlinn á parinu. Nánari úrslit má sjá á golf.is.
1. júní Nú hefur verið opnað fyrir skráningu í Sjóarann Síkáta- Þorbjörninn
ehf, hið vinsæla
golfmót Grindvíkinga sem hefur verið haldið um sjómannahelgina. Mótið
er með punktafyrirkomulagi.
|
|
|
Golfklúbbur Grindavíkur 2011 vefumsjón: paller@grindavik.is |
||