Fréttir
maí 20
11

31. maí
Stigamóti 4 frestað vegna slæmrar veðurspár

Stigmót 4 sem vera átti í dag, þriðjudag, hefur verið frestað til morgundagsins vegna slæmrar veðurspár.  Gert er ráð fyrir allt að 15 metrum á sekúndu og rigningu eftir hádegið en á morgun, miðvikudag er veðurspáin mun hagstæðari.

Mótanefnd GG

29. maí
Úrslit úr opna Texas scramble - Veiðafæraþjónustan

Það var ágætis veður sem tók á móti flestum kylfingum í dag.  Logn í byrjun, en þegar leið á morguninn byrjaði að hvessa.  Eftir hádegið lægði en síðan tók vindurinn sig aftur upp og gerði mönnum erfitt fyrir.  Þáttakendur voru 66, eða 33 pör, sem er sæmileg þátttaka, en betur má ef duga skal því völlurinn er í frábæru standi og margir kylfingar gjörsamlega heillaðir af öllu sem honum viðkemur.  Góður vitnisburður þar!!!  Skorið var með ágætum og þrjú efstu sætin voru á sama nettó skori, 64 höggum.  Hávarður Gunnars og spilafélagi léku best síðari hringinn og urðu því í 1. sæti.  Í öðru sæti urðu Gunnar Ingi Björnsson og félagi á sama höggafjölda.  Í því þriðja varð Hotel California.
Nándarverðlaun á 8. holu hlutu Gunnar Ingi Björnsson og félagi með 3,96m
Nándarverðlaun á 13. holu hlutu Íris og bróðir með 2,77m.
Hægt er að vitja vinninga í skálanum við hentugt tækifæri á opnunartíma hans.
Vinningar eru ekki sendir á viningshafa.
Öll úrslit má sjá hér: 

Nafn liðs: Forgjöf: Fyrri 9 Seinni 9 Samtals  Sæti:
Hávarður Gunnars 2 36 30 64 1
Hotel California 1 32 33 64 3
Einar Hannes 8 40 37 69  
Eggert Daði 10 43 37 70  
Gunnar Ingi Björnsson 3 35 32 64 2
Íris og bróðir hennar -1 33 33 67  
Sigvaldi Þorsteinsson 9 41 39 71  
Ragnar Lárus Ólafsson 4 38 34 68  
Þorvaldur Kristleifsson 5 38 34 67  
Guðmundur Stefán Jónsson 3 37 36 70  
Eiríkur Jónsson 9 43 41 75  
Ellert Sigurður Magnússon 8 42 37 71  
Bjarni Andrésson 4 39 37 72  
Halldór Smárason 6 40 34 68  
Björn Steinar  6 38 36 68  
Eysteinn M. Guðmundsson 8 42 36 70  
Gestur Sæmundsson 7 40 36 69  
Steingrímur Hjörtur Haraldsson 7 39 38 70  
Þorlákur G. Halldórsson 5 37 34 66  
Garðar Páll Vignisson 6 38 36 68  
Gísli Rúnar Eiríksson 4 35 34 65  
Karen Sævarsdóttir 2 36 35 69  
Hjálmar Hallgrímsson 5 39 38 72  
Gunnar M. Gunnarsson 4 35 38 69  
Páll Erlingsson 4 37 36 69  
Þóroddur Halldórsson 9 44 37 72  
Gerða Hammer 8 39 41 72  
Svana Hammer 8 45 40 77  
Arnar Helgi Jónsson 7 38 38 69  
Svanþór Laxdal 2 35 32 65  
Guðfinnur G. Vilhjálmsson 3 37 31 65  
Jaxlarnir 6 36 37 67  
Steinunn Björk Eggertsdóttir 4 40 38 74  

27. maí
Frábær árangur á áskorendamótaröð barna og unglinga

Um síðustu helgi fór fram fyrsta stigamót unglinga. Golfklúbbur Grindavíkur átti 5 keppendur sem tóku þátt á áskorendamótaröð Arion banka. Þetta voru þeir, Aron Snær Friðriksson  Bragi Guðmundsson, Ingvi Þór Guðmundsson, Lárus Guðmundsson og Sigurður Helgi Hallfreðsson. Krakkarnir stóðu sig með sóma og má þess geta að yngsti meðlimur mótsins var okkar maður Bragi Guðmundsson, 7 ára gamall. Svo sannarlega efnilegur kylfingur þar á ferð sem skilaði sér í hús á 115 höggum. Ljóst er að krakkarnir koma vel undan vetri. Þess má geta að Lárus Guðmundsson sigraði sinn aldursflokk og Sigurður Helgi Hallfreðsson hafnaði í 3 sæti.  Krakkarnir léku flott golf í ágætis veðri og voru klúbbnum og sjálfum sér til sóma.

27. maí
Opið Texas scramble mót Veiðafæraþjónustunnar á sunnudaginn!!

Opið Texas scramble mót Golfklúbbs Grindavíkur verður á sunnudaginn.  Veðurspá er góð og völlurinn í frábæru standi.
Verðmæti vinninga er um 160.000 kr.  Nú er um að gera að hendast í Grindavík og taka þátt í skemmtilegu móti á stórgóðum velli.

21. maí
Opna Texasmóti Veiðafæraþjónustunnar frestað!!

Texas scramble - Opna Veiðafæraþjónustan hefur verið frestað til sunnudagsins 29. maí vegna of lítillar þátttöku.  Þeir kylfingar sem hafa verið skráðir detta sjálfkrafa út og þurfa að skrá sig að nýju í mótið.  Því miður voru aðeins 20 pör skráð og það nægir ekki til að halda mótið.  Eflaust hafa margir verið hvekktir út af veðráttunni sem verið hefur undanfarna daga, þó útlit hafi verið með gott veður á sunnudaginn.  Völlurinn er því opinn fyrir almenna kylfinga á morgun, sunnudag.

Mótanefndin

20. maí
Áhugi á kvennagolfi í sumar?
Ekki spurning - látum hlutina gerast

Mikill áhugi er meðal kvenna í golfklúbbnum að hittast einu sinni í viku og leika golf.  Undanfarin ár hafa konurnar hist á virkum degi til að njóta þess að vera sama og leika golf.  Nú hafa Svana Hammer og Þuríður Halldórs boðist til að halda utan um kvennagolfið og meðal hugmynda er að hafa nokkurs konar stigamót kvenna ásamt því að reyna að halda eitt opið kvennamót á Húsatóftavelli.  Þeir sem áhuga hafa á að mynda kvennahóp spila saman er beðnir um að hafa samband við Svönu í síma 868-7234 eða netfangið hammer@simnet.is
Athugið að þetta er hugsað fyrir allar konur í klúbbnum óháð getu, enda fyrst og fremst ánægja og skemmtun sem markmið.  Að sjálfsögðu hvetjum við allar konur sem ekki eru í klúbbnum að skrá sig í hann og taka þátt.

12. maí
Golfæfingar barna og unglinga í sumar
hefjast 16. maí


Kæru börn og foreldrar,

Barna- og unglingastarfið er hafið að fullum krafti. Skipulögð golfkennsla fyrir börn og unglinga hefst miðvikudaginn 1 júní fyrir yngri hópinn. (sjá æfingatöflu)
Í fyrra var mikill áhugi fyrir golfæfingum og það er okkar von að gera enn betur þetta árið.  Er þetta því frábært tækifæri fyrir alla krakka til að njóta fyrsta flokks leiðsagnar og kennslu, án endurgjalds.

Markmið með þessum æfingum er:

  • Að leyfa börnum og unglingum að prófa og kynnast golfíþróttinni.
  • Að kenna undirstöðuatriði íþróttarinnar(agi, tækni, reglur og leikskilningur)
  • Síðast og ekki síst að hafa gaman að golfi, því golfíþróttin er mikil skemmtun.

Æfingartímar í sumar eru eftirfarandi.

  • Krakkar 12 ára og yngri  þriðjudaga og fimmtudaga frá kl 15-16 (staðsetning á Rollutúni v/Víðihlíð) ath. hefst 1. júní
  • Unglingar og afrekskylfingar mánudaga,  þriðjudaga og fimmtudaga  kl kl 16:15 (staðsetning golfvöllur) ath hefst 16 maí.

Ath það kostar ekkert á þessar æfingar og því um að gera að prófa.
Kylfur og boltar eru á staðnum fyrir þá sem ekki eiga kylfur, en þeir sem eiga þær endilega koma með þær.
Munið að koma klædd eftir veðri og mæta tímanlega.

Í sumar verða haldin 6 innanfélagsmót fyrir krakka 12 ára og eldri. Keppt verður á golfvellinum og verða spilaðar 18 holur með og án forgjafar. Í lok hvers móts verður svo grillaðar pylsur að hætti Jóa.

Sveitakeppnin verður svo 19.-21. ágúst og stefnum við sjálfsögðu á að taka þátt.

Ég hlakka mikið til að vinna með ykkur í sumar og vonandi sjá flestir sér fært um að taka þátt í öflugu uppbyggingarstarfi GG.

Með kveðju,
Jóhann Kristján Hjaltason
PGA golfkennari  

Nánari upplýsingar veita:
Friðrik Ámundason s: 8494044 eða frikkia@mi.is
Jóhann K. Hjaltason s: 8974198 eða joihjalta@hotmail.com

8. maí
Gerða Hammer sigraði á Blue Lagoon Open

Vindurinn lék kylfinga grátt í dag þegar Blue Lagoon Open var haldið á Húsatóftavelli.  Sól skein í heiði og ágætur hiti í lofti en kylfingar þurftu að berjast við norðan rokið sem gerði mörgum hverjum lífið leitt.  Samt sem áður voru menn ánægðir að fá að spila á góðum vellinum og voru menn sammála um að flatir voru alveg magnaðar miðað við árstíma, hraðar, og tóku vel við boltum.  „Þetta voru bara eins og Ameríkuflatir“ komst einn þátttakandi að orði. Í fyrsta sæti var heimamaðurinn Gerða Hammer á 39 punktum, í öðru sæti varð Sólveig Jakobsdóttir GK á 36 punktum líkt og Óli Kristján Benediktsson, en skoraði fleiri punkta á síðari 9 holunum. Í fjórða sæti varð Hlynur Þór Stefánsson GO á 35 punktum.  Í því fimmta varð Hjörleifur Bergsteinsson GK á 34 punktum.

Í höggleik án forgjafar sigraði Hlynur Þór Stefánsson á 75 höggum líkt og Rúnar Geir Guðjónsson en Hlynur lék síðar 9 á færri höggum.
Næstur holu á 8. holu var Grímur Þórisson GÓ með 354cm. Á 13 holu var Þorvaldur Freyr GK með 275cm. Á 4./17. holu Haukur Hilmarsson GR með 237cm.   Hljóta þeir að launum gjafabréf á Veitingastaðinn Salthúsið í Grindavík að verðmæti 10.000 kr.

Hægt er að vitja verðlaunanna í golfskálanum á opnunartíma.
Alls tóku 106 kylfingar þátt í mótinu og er það fjölmennasta mótið síðastliðin ár.  Það gefur góð fyrirheit um sumarið því Húsatóftavöllur er í frábæru standi og kylfingar ekki sviknir af því að leggja leið sína til Grindavíkur og leika golf við bestu aðstæður.


Já, þó vindur hafi sett strik í reikning margra og skorið var almennt ekki gott voru menn sammála um að ferðin hafi alveg verið þess virði.  Menn munu amk. sofna vært í kvöld eftir erfiðar raunir, vind og veðurbarðir.  Golfklúbbur Grindavíkur þakkar Bláa Lóninu, styrktaraðila þessa móts, fyrir ómetanlegan stuðning í formi glæsilegra verðlauna og teiggjafa.

4. maí
Tappagötun 9.-11. maí
 


Strikið til hægri sýnir þæfi sem er c.a. 50 mm þykkt, en tiltölulega sandblandað (eftir söndunar aðgerðir).  Vinstra stikið sýnir bersýnilega skilin á milli sendins undirlags og hreins þæfis.
(tekið á 13. Flöt).

Mánudaginn 9. maí hefjumst við handa við að tappagata flatirnar.  Ég reikna með því að við náum að gata allar flatir og hreinsa af þeim á tveim dögum.  Eftir það, berum við sérstakan áburð á og söndum flatirnar til að fylla upp í holurnar sem myndast eftir götunina.  Það ætti að taka flatirnar um viku að jafna sig almennilega. 
Mótahald hefur verið skipulagt með hliðsjón af þessari aðgerð, þannig að götunin á ekki að hafa áhrif á nein mót.     
Aðgerðin er skiljanlega ekki vinsæl meðal kylfinga, þar sem að flatirnar verða ósléttar á eftir.   Götunin er hinsvegar afskaplega mikilvæg til að tryggja langtíma gæði flatanna.  Í yfirborði flatanna er of mikið magni af þæfi (hálfniðurbrotið lífrænt efni), en tilgangur götuninnar er að fjarlægja eins mikið af því og hægt er.  Þetta þæfi er mjög mikilvægt, en það á þó ekki að vera mikið meira en 15 mm að þykkt.  Eins og sést á myndinni hér að neðan,  þá er það rúmir 80 mm þykkt(!).  Þetta veldur margvíslegum vandamálum við viðhald flatanna.  Fyrir ykkur kylfingana er vandamálið það að völlurinn verður seinna til á vorin og það er erfiðaðar að spila lengur inn í haustin.  Það þarf aukna áburðargjöf og vökvun ef flatirnar eru með þetta miklu þæfi, sem er dýrt, þá sérstaklega fyrir lítinn klúbb eins og GG. 

4. maí
Sigurður Jónsson sigraði á fyrsta stigamótinu

Sigurður Jónsson sigraði á fyrsta stigamóti sumarsins sem haldið var í ágætisveðri á Hûsatóftavelli. Hann lék hringinn á 37 punktum líkt og Kristinn Sörensen en var á betra skori á síðari 9 holunum. Þess má geta að Kristinn lék völlinn á 72 höggum og var það besta skorið án forgjafar. Í þriðja sæti varð Ellert Magnússon á 36 punktum eins og nokkrir aðrir en var á besta skorinu á síðari 9. Völlurinn er allur að koma til og gaman að sjá svo marga taka þátt í mótinu ásamt þeim gestum sem nutu þess að spila við góðar aðstæður. Flatir hafa verið sandaðar og borinn á áburður sem hefur haft góð áhrif á sprettuna. Það má með sanni segja að völlurinn kemur vel undan vetri og er í betra ásigkomulagi en í fyrra enda fagmenn sem sinna vallarmálum hér í Grindavík. Þetta lofar góðu fyrir framhaldið og menn almennt mjög ánægðir hvernig staðan er á vellinum. Völllurinn er að sjálfsögðu opinn fyrir almenning og stutt er frá höfuðborgarsvæðinu þannig að kylfingar væru ekki sviknir af því að kíkja til Grindavíkur og spila völlinn. Næsta mót er sunnudaginn 8. maí og -  Blue Lagoon open sem er með punktafyrirkomulagi.

2. maí
Jón Gauti sigraði loksins!!!

Jón Gauti sigraði loksins í móti á vegum Golfklúbbs Grindavíkur.  Hann hafði lengi beðið eftir því að hrósa sigri og var orðinn fremur vondaufur að sá draumur yrði að veruleika.  En viti menn!!! Hann spilaði eins og engill í blíðskaparveðri á meðan snjór huldi alla golfvelli á Reykjavíkursvæðinu.  Jón Gauti lék hringina á 39 punktum og þýðir lækkun, og það í fyrsta móti.  Í öðru sæti varð Ellert Magnússon á 38 punktum og í því þriðja varð Þorlákur Halldórsson.  Davíð Arthúr Friðriksson lék best án forgjafar á 72 höggum.  Næsta mót er stigamót GG þriðjudaginn 3. maí.  Að sjálfsögðu er Húsatóftavöllur opinn almenningi og er í góðu standi.

Eldri fréttir
 














Golfklúbbur Grindavíkur 2011 vefumsjón: paller@grindavik.is