|
|
||
|
|
Fréttir 3. mars Golfklúbbur Grindavíkur auglýsir eftir starfsfólki frá og með 1. maí. Starfið er tímabundið, a.m.k. 4 mánuði. Starfið fellst í umhirðu og uppbyggingu Húsatóftavallar ásamt öðrum svæðum í umsjón GG. Leitað er eftir sjálfstæðum og metnaðarfullum einstaklingum sem áhuga hafa á störfum við golfvallaumhirðu. Æskilegt er að umsækjendur hafi vinnuvélapróf og almenn ökuréttindi. Ósk um nánari upplýsingar sendist á gggolf@gggolf.is eða í síma
6939065 eftir kl. 16 á daginn.
Fh. Stjórnar Golfklúbbs Grindavíkur
1. mars Stjórn GG hefur fengið í hendurnar teikningar að framtíðar golfskála okkar. Hafa ber í huga að þetta eru aðeins tillögur að endurbótum og stækkun en ekki lokaútgáfa. Það sést glögglega að stækka þarf skálann um 60-70 fermetra til að rúma eldhús, salernisaðstöðu, ræsisherbergi og fleira. Myndinar segja þó meira en mörg orð..
|
|
|
Golfklúbbur Grindavíkur 2011 vefumsjón: paller@grindavik.is |
||