15.
sept
Góð þátttaka í opna afmælismóti GG




Það var ekki kræsilegt veður sem mætti fyrstu kylfingum
dagins í opna afmælismóti GG en þeir létu það ekki á sig fá,
heldur nutu þess að leika Húsatóftavöll sem var í frábæru
standi. En veðurguðirnir voru á okkar bandi því brátt fór
að stytta upp og sólin að skína, þó gola væri. Mjög góð
þátttaka var í mótinu enda voru verðlaunin glæsileg. Það
má þakka styrktaraðilum mótsins; útgerðarfélagið Þorbjörn ehf.,
útgerðafélagið Vísi ehf., Samhentir umbúðalausnir og Nettó með
veglegum styrkjum. Veitt voru verðlaun fyrir átta fyrstu
sætin með forgjöf ásamt 13. sæti, 21. sæti, 59. sæti og 75.
sæti. Einnig voru nándarverðlaun fyrir 4./17. holu, 8.
holu og 13. holu. Andri Marteinsson lék manna best í dag,
því hann fékk hvorki fleiri né færri en 45 punkta, en næstur á
eftir var með 42 punkta. Úrslitin urðu sem hér segir:
1. sæti með forgjöf - 50.000 kr gjafakort í Nettó - Andri
Marteinsson
2. sæti með forgjöf - 40.000 kr gjafakort í Nettó - Steinþór Óli
Hilmarsson
3. sæti með forgjöf - 30.000 kr gjafakort í Nettó - Svanhvít
Helga Hammer
4. sæti með forgjöf - 25.000 kr gjafakort í Nettó - Ingvar
Hafsteinn S. Hreinsson
5. sæti með forgjöf - 20.000 kr gjafakort í Nettó - Jóhann
Þorgrímur Hallgrimsson
6. sæti með forgjöf - 15.000 kr gjafakort í Nettó - Ari Gylfason
7. sæti með forgjöf - 15.000 kr gjafakort í Nettó - Sigurður
Gunnar Ragnarsson
8. sæti með forgjöf - 15.000 kr gjafakort í Nettó - Halldór
Þórður Oddsson
13. sæti með forgjöf - 10.000 kr gjafakort í Nettó - Erlingur
Jónsson
21. sæti með forgjöf - 10.000 kr gjafakort í Nettó - Hávarður
Gunnarsson
59. sæti með forgjöf - 10.000 kr gjafakort í Nettó - Guðmundur
Bjarni Harðarson
75. sæti með forgjöf - 10.000 kr gjafakort í Nettó - Páll
Erlingsson
Nándarverðlaun á 4./17. holu - Jóhann S. Ólafsson 2,44
Nándarverðlaun á 8. holu - Jóhann Þorgrímur Hallgrímsson 1,67m
Nándarverðlaun á 13. holu - Bjarni Andrésson 0,54 m

15.
sept
Magma Energy styrkir Golfklúbb Grindavíkur
Í gær, fimmtudaginn 15. september skrifaði Golfklúbbur
Grindavíkur og Maggma Energy undir styrktarsamning.
Styrktarsamnignurinn kveður á aðfjárhæðinni sé verið fyrst og
fremst í barna og unglingastarfið hjá klúbbnum. Samningurinn er
til tveggja ára. Þetta kemur sér svo sannarlega vel fyrir
golfklúbbinn og mun nýtast vel í því uppbyggingarstarfi sem
ráðist hefur verið í síðastliðin sumur. Kunnum við Magma
bestu þakkir fyrir þennan stuðning og um leið bjóðum við þá í
hóp velunnara félagsins.

13.
sept
Afmælismót GG sunnudaginn 18. september
Golfklúbbur Grindavíkur heldur opið afmælismót á
Húsatóftavelli sunnudaginn 18. september.
Mótið er með punktafyrirkomulagi.
Vegleg verðlaun eru í boði í mótinu ásamt því
að kylfingar fá teiggjöf í upphafi leiks:
1. sæti með forgjöf - 50.000 kr gjafakort í
Nettó
2. sæti með forgjöf - 40.000 kr gjafakort í Nettó
3. sæti með forgjöf - 30.000 kr gjafakort í Nettó
4. sæti með forgjöf - 25.000 kr gjafakort í Nettó
5. sæti með forgjöf - 20.000 kr gjafakort í Nettó
6. sæti með forgjöf - 15.000 kr gjafakort í Nettó
7. sæti með forgjöf - 15.000 kr gjafakort í Nettó
8. sæti með forgjöf - 15.000 kr gjafakort í Nettó
13. sæti með forgjöf - 10.000 kr gjafakort í Nettó
21. sæti með forgjöf - 10.000 kr gjafakort í Nettó
59. sæti með forgjöf - 10.000 kr gjafakort í Nettó
75. sæti með forgjöf - 10.000 kr gjafakort í Nettó
Nándarverðlaun á öllum par 3 holunum 10.000 kr gjafakort í
Nettó.
Heildarverðlaun og teiggjafir í mótinu eru um
450.000 kr
Kylfingar fá teiggjafir í upphafi leiks.
Samhentir, útgerðarfélagið Þorbjörninn ehf., útgerðarfélagið
Vísir ehf og Nettó styrkja mótið af miklum myndarskap.
Þátttökugjald í mótið er 4.000 kr

12.
sept
Góð skor í Kóngklapparmótinu
Kylfingar
fengu frábært veður til að njóta sín í Kóngsklapparmótinu sem
haldið var í gær á Húsatóftavelli. Þrátt fyrir 7/8 forgjöf voru
margir að spila undir sinni forgjöf. Best lék þó Haraldur
Jóhannesson GG á hvorki meira né minna en 48 punktum. Í öðru
sæti varð Jón Gunnar Gunnarsson GK á 40 punktum líkt og Hinrik
Árni Bóason GKG , en einum punkti betur á síðari 9 holunum. Í
fjórða sæti varð Ásgeir Ásgeirsson GG á 39 punktum eins og
Finnbogi Einar Steinarsson en á einum punkti betur á síðari 9
holunum. Á besta skori án forgjafar sigraði Sigurbjörn
Þorgeirsson GÓ nokkuð sannfærandi, eða á parinu (71) en næstur
kom á 75 höggum. Nándarverðlaun á par 3 holunum:
4./17. hola - Guðmundur Hilberg Jónsson GK 5,05m
8. hola - Skarphéðinn Ingason GKM 1,56m
13. hola Ásgeir Ásgeirsson GG 1,71m
Vinninga er hægt að vitja í golfskálanum eða hafa samband á
netfanginu gggolf@gggolf.is
Vinningar voru eftirfarandi:
1. sæti án forgjafar fjölskylduárskort í Bláa Lónið og 10.000 kr
gjafabréf í Golfbúð Hafnarfjarðar
1. sæti með forgjöf fjölskylduárskort í Bláa Lónið og 10.000 kr
gjafabréf í Golfbúð Hafnarfjarðar
2. sæti m.forgj. Callaway Diablo hybrid kylfa
3. sæti m.forgj. 20.000 kr gjafabréf í Golfbúð Hafnarfjarðar
4. sæti m.forgj. 10.000 kr gjafabréf í Golfbúð Hafnarfjarðar
5. sæti m. forgj. Timberland golfsólgleraugu (PGA)

4.
sept
Góð þátttaka í afmælismóti GG
Í gær, laugardaginn 3. september hélt
Golfklúbbur Grindavíkur upp á 30 ára afmæli klúbbsins.
Golfklúbburinn var þó stofnaður 14. maí 1981en ákveðið var að
halda síðbúið afmælismót þar sem hægt væri að halda það með því
að spila 18 holurnar. Það mæltist gríðarlega vel fyrir
meðal félagsmanna og hvorki fleiri né færri en rúmlega 100
kylfingar og boðsgestir skráðu sig til leiks.
Veðurguðirnir voru sannarlega með okkur GG-mönnum því allan
daginn var einmuna blíða, sól og 17 stiga hiti. Skorið var
aði misjafnt en allir brostu sínu breiðasta af ánægju með að fá
að leika nýja völlinn eins og hann verður að meistu í
framtíðinni. Enginn lék þó betur en Svanhvít Helga Hammer,
en hún lék á 44 punktum. Í öðru sæti á 42 tveimur punktum
varð Andrew Jarred Wissler. Í því þriðja varð Guðmundur
Bragason á 40 punktum, líkt og Sigurður Helgi Hallfreðsson en
með skor á seinni 9 holunum. Að mótinu loknu var haldið
afmælishóf í framtíðar skála okkar GG manna og voru margir
heiðraðir fyrir sitt framlag til klúbbsins. Bjarni Þór Hannesson
og Hannes Þorsteinsson fengu mikið lófaklapp fyrir þeirra störf
við stækkun og umhirðu vallarins. Án þeirra framlags værum
við ekki að ljúka framkvæmdum við stækkun í 18 holu golfvöll sem
vekur eftirtekt meðal kylfinga af öllu landinu.
Þeir sem fengu gullmerki klúbbsins voru: Aðalgeir Georg
Daði Johansen, Arnar Sigurþórsson, Bjarni Andrésson, Bragi
Ingvason, Kristín Ingeborg Mogensen, Hjálmar Hallgrímsson og
Gunnar Már Gunnarsson. Tveir aðilar voru heiðraðir af GSÍ
og fengu gullmerki þess: Halldór Ingvason og Aðalgeir Georg Daði
Johansen fyrrum formenn GG. Að síðustu heiðruðu félagar
klúbbsins Jón Guðmundusson (Jón Píp) og gerðu hann að
heiðursfélaga fyrir óeigingjarnt starf og fórnfýsi í þágu
klúbbsins. Að auki má geta þess að golfklúbbnum bárust
margar góðar gjafir og þar má nefna að Grindavíkurbær gaf GG
250.000 krónur, eftirlifandi eiginkona Þórarins í
útgerðarfélaginu Þrótti gaf forláta skipsbjöllu til varðveislu,
Bubba og Gréta gáfu vöfflujárn sem mun koma að góðum notum.
Þess má geta að Gréta átti afmæli þennan sama dag og óskum við
henni innilega til hamingju með afmælið. Golfklúbburinn
gaf helstu styrktaraðilum sínum gegnum árin innrammað þakkarbréf
fyrir einstakan stuðning og styrk. Myndir frá mótinu og hófinu
birtast síðar.

1.
sept
Hlé gert á kennslu og æfingum barna og unglinga
Tekin hefur veirð sú ákvörðun að gera hlé á
kennslu og æfingum barna og unglinga fram eftir haustinu.
Jóhann K. Hjaltason golfkennari hefur séð um æfingarnar með
miklum sóma og góð þátttaka ungu kylfinganna hefur sýnt sig að
nauðsynlegt er að hlúa vel að þessum þætti klúbbastarfsins.
Auglýst verður síðar hvenær æfingar hefjast að nýju.
