Skýrsla gjaldkera fyrir árið 2011

Góða kvöldið félagar.

Ársreikningur liggur hér frammi til  skoðunar . Og er hann á sömu nótum og í fyrra.  
Rekstrartekjur hækka um kr. 2 .000.000 þar af félagsgjöld um kr. 800.000. 
Félagsgjöldin eru nú kr. 5.457.900 sem dreifast á um 170 félagsmenn en það gera um kr. 32.000 að meðaltali á félaga en þeir eru samkvæmt síðustu talningu  208 talsins. 
Flatargjöld hækka einnig umtalsvert milli ára og kemur þar tvennt til, meiri aðsókn og betri skráning á flatargjöldum . En vörusala í sjoppu dregst saman um kr. 1.000.000. 
Gjöld hækka um kr. 4.900.000 og munar þar mestu að launagreiðslur eru hærri sem og rekstur mannvirkja sem er m.a viðhald á vélum.  
Skrifstofukostnaður er einnig helmingi hærri og er það vegna þess að keypt var plöstunarvél til að plasta forgjafar- og félagsskírteini.

Árið 2008, þegar bærinn ákvað að styrkja klúbbinn með kr. 51.000.000 til stækkunar í 18 holu völl höfðu menn ekki neina hugmynd um hvað slík stækkun kostaði en nú hillir undir lok stækkunarinnar og skv. áætlun sem Bjarni vallarstjóri hefur gert um kostnað við það sem eftir er og hljóðar hún upp á um kr. 12.500.000 milljónir. 
Heildarkostnaður við stækkunina kemur því til með að verða kr. 53 til 54 milljónir

Klúbburinn hefur framkvæmt fyrir um kr. 41 milljón frá því 2008. Það ár fór styrkurinn að hluta til í að borga upp kr. 7.000.000 skuld klúbbsins og eins töpuðust um 5 milljónir í peningamarkaðssjóði.  
þetta samanlagt gerir um 53 milljónir. Á árinu 2011 var framkvæmt fyrir um kr. 8.000.000. 
Bærinn hefur lagt til í beinan framkvæmdastyrk kr. 45.700.000 en bæjarstjórn ákvað að frysta styrkinn í ár þar til núna í lok ársins að við fengum kr. 1.500.000 og það sem upp á vantar skilst mér að við fáum í byrjun næsta árs, sem eru kr. 5.300.000.

Framtíðargolfskáli okkar er líka á góðri leið. Búið er að rífa innan úr gamla húsinu, byggja 80 fm viðbót og nú stendur til að fara að klæða að innan og setja upp milliveggi .  
Kostnaður er sem komið er um kr. 8.500.000 og má búast við að það sé  um helmingur af því sem hann á eftir að kosta  en við stefnum að því að flytja upp eftir í vor.

Allar þessar framkvæmdir kosta að sjálfsögðu mikla peninga, tekið var lán hjá landsbankanum upp á kr. 7.000.000 nú í haust  til að standa straum af því sem komið er.

En þrátt fyrir allar þessar stóru upphæðir erum við ekki að fara neitt fram úr okkur og ég tel ástæðuna vera þá að við, ásamt Bjarna, höfum haft góða yfirsýn yfir framkvæmdirnar á vellinum og góðan mannskap sem vinnur hörðum höndum að breytingum við nýja skálann í sjálfboðavinnu.Með því að halda áfram  á sömu braut tel ég að við fáum frábæran 18 holu völl með glæsilegum skála fyrir miklu minni pening enn nokkurn hafi órað fyrir í upphafi. Megi allir golfunnendur vel njóta.

Ársreikningur GG 2011
Fyrningarskýrsla 2011

 

Sigvaldi Þorsteinsson
Gjaldkeri Golfklúbbs Grindavíkur

 


 













 

Golfklúbbur Grindavíkur 2011 vefumsjón: paller@grindavik.is