Skýrsla stjórnar GG
fyrir árið 2011

Góða kvöldið góðir félagar.   

Það má með sanni segja að árið 2011 hafi verið mjög viðburðarríkt hjá Golfklúbbi Grindavíkur. 

Nokkur endurnýjun átti sér stað í stjórn GG þar sem þrír stjórnarmenn gáfu ekki kost á sér til áframhaldandi starfa.  Það voru þeir Gerða Hammer, Leifur Guðjónsson,Hafþór Skúlason og Ingimar Waldorff á fyrri hluta tímabilsins.  Kunnum við þeim þakkir fyrir þeirra framlag í þágu klúbbsins.   Í stað þeirra voru eftirtaldir kosnir: Jón Júlíus Karlsson og Jón Guðmundsson. Til vara voru Halldór Jóel Ingvason og Gunnar Oddgeir Sigurðsson.
Stjórnarfundir voru fastsettir fyrsta þriðjudag hvers mánaðar og oftar ef þurfa þótti.

Leit stjórnin því þannig út:
Páll Erlingsson – formaður
Jóhann Freyr Einarsson – varaformaður og með yfirumsjón með stækkunarnefnd
Sigvaldi Þorsteinsson– gjaldkeri
Gunnar Oddgeir Sigurðsson – meðstjórnandi með yfirumsjón með mótanefnd
Jón Guðmundsson – meðstjórnandi með yfirumsjón yfir byggingarnefnd
Páll Þorbjörnsson – meðstjórnandi og með yfirumsjón yfir vallarnefnd
Jón Júlíus Karlsson -  ritari og með yfirumsjón yfir mótanefnd
– varastjórn Halldór Jóel Ingvason með yfirumsjón yfir bygginganefnd og Friðrik Ámundason með yfirumsjón yfir barna- og unglingastarfinu.

Að þessu sinni hefur Páll Þorbjörnsson ákveðið að gefa ekki kost á sér að nýju í stjórn fyrir árið 2011 og þökkum við honum góð störf.  Án hans hefðum við ekki náð að auka við starfsmannafjöldann með svo litlum tilkostnaði.

Eins og menn muna frá árinu 2008 studdu bæjaryfirvöld dyggilega við bakið á Golfklúbbi Grindavíkur með styrkveitingu að upphæð 51 milljón króna.  Í dag hefur Grindavíkurbær greitt 45.7 milljónir af styrknum.  Stjórn Golfklúbbsins kann bæjaryfirvöldum miklar þakkir fyrir rausnarlegt framlag.

Stækkunarframkvæmdum var framhaldið á árinu og nú er svo komið að sáð hefur verið í allar nýjar flatir og brautir.  Sama gildir um framkvæmdir við stígagerð og heildrænt útlit á 18. holu velli eru farnar að skila sér svo um munar.  Þar má þakka Bjarna Hannessyni fyrir ósérhlífni og ómælda vinnu því án hans eljusemi hefðum við ekki staðið í góðum sporum. 

Nú er svo komið að það hyllir undir opnun 18 holu golfvallar sem mun koma kylfingum virkilega á óvart.  Það fengu félagsmenn og velunnarar að reyna í síðbúnu 30 ára afmælismóti sem haldið var í byrjun september.  Þá var völlurinn í fyrsta sinn leikinn sem 18 holu völlur og nálægt því sem framtíðarskipulagið sagði til um.  Það var í einmunablíðu, sól og hita, sem kylfingar fengu loksins að reyna á hæfileikana sína og berja nýju holurnar augum.  Menn héldu ekki vatni yfir því hvernig til hafi tekist og allir brostu sínu breiðasta þó árangurinn í mótinu væri ærið misjafn.  Félagar kepptust við að lofa þessar breytingar og margir hverjir voru eins og lítil börn að opna jólapakkann sinn eftir langa og óþreyjufulla bið.  Að móti loknu var haldið afmælishóf í framtíðar golfskála GG-manna.  Þar voru m.a. annara félagar heiðraðir fyrir störf sín í þágu klúbbsins og golfíþróttarinnar. 
Þeir sem fengu gullmerki klúbbsins voru:  Aðalgeir Georg Daði Johansen, Arnar Sigurþórsson, Bjarni Andrésson, Bragi Ingvason, Kristín Ingeborg Mogensen, Hjálmar Hallgrímsson og Gunnar Már Gunnarsson.  Tveir aðilar voru heiðraðir af GSÍ og fengu gullmerki þess: Halldór Ingvason og Aðalgeir Georg Daði Johansen fyrrum formenn GG. 
Að síðustu heiðruðu félagar klúbbsins Jón Guðmundusson (Jón Píp) og gerðu hann að heiðursfélaga fyrir óeigingjarnt starf og fórnfýsi í þágu klúbbsins

Afmælismótið var aðeins forsmekkurinn að því sem koma skyldi.  Því ákveðið hafði verið að halda Opið afmælismót síðar í septembermánuði.
Sérstök afmælisnefnd var fengin til að halda utan um og afla verðlauna fyrir mótið.  Það var haldið með miklum glæsibrag.  Heildarverðlaun í mótinu voru rúmlega 400 þúsund krónur.  Um 108 manns tóku þátt í ágætisveðri. 
Afmælisnefndina skipuðu Kristín Mogensen, Halldór Jóel Ingvason,  Jón Halldór Gíslason og Bjarni Andrésson.  Kunnum við þeim bestu þakkir fyrir.
Helstu styrktaraðilar mótsins voru Þorbjörninn, Vísir, Samhentir og Nettó.  Þessi fyrirtæki eiga miklar þakkir skyldar fyrir sitt framlag.

Samhliða stækkuninni hafa nokkrir vaskir einstaklingar unnið við að endurbyggja og stækka íbúðarhús í eigu golfklúbbsins.  Markmiðið að þar verði framtíðar golfskáli okkar félagsmanna tekinn í notkun sumarið 2012 og mun verða bylting í aðbúnaði og á aðstöðu fyrir félaga og gesti golfklúbbsins. 

Stækkunin og endurbæturnar kosta að sjálfsögðu þó nokkurn skildinginn en kostnaði hefur verið haldið í algjöru lágmarki með sjálfboðavinnu og miklum velvilja fyrirtækja og einstaklinga.  Þar ber sérstaklega að nefna Halldór Ingva, Jón píp, Gísla Jóns, Eðvarð Sigmars, Willar Óla, Sveinn Ísaks, Steinþór Þorvalds, Sigvalda, Birgi Bjarna, Tomma í TG raf, Magga í Grindinni og fleiri sem hafa gefið sína vinnu.  Kostnaður við skálann er kominn í 8.5 milljónir.  Tekið var lán að upphæð 7 milljónir króna til að halda verkinu gangandi og lítur vel út með framhaldið.  Viðbygging við íbúðarhúsnæðið er um 80 m2 sem gerir að verkum að heildarflöturinn er um 180 m2 og allt á einni hæð.

Allt gengur því samkvæmt áætlun og völlurinn er að taka á sig betri mynd eftir því sem dagarnir líða. 
Það er með ólíkindum hversu mikið við höfum náð að framkvæma á árinu 2011, sérstaklega þegar tekið er tillit til þess að Grindavíkurbær greiddi einungis 1.5 milljónir í stækkunarstyrk á árinu og ákvað að fresta síðustu styrktargreiðslunum.  Enn á eftir að greiða út 5.3 milljónir af styrknum.  
Keypt var lítil beltagrafa á 1.2 milljónir króna og vinnubíll fyrir völlinn á 1 milljón, auk pallbíls sem IAV seldi okkur með miklum afslætti á 550 þúsund.
Þess vegna má segja að það sé kraftaverki nær að við höfum náð að halda úti áformum okkar í stækkunarmálum og gott betur án opinbers fjármagns á þessu ári. 

Einnig má geta þess að við að hluta til endurgreitt þær tæpu 7 milljónir króna sem fengnar voru til að greiða niður óhagstæð langtímalán í lok árs 2008 auk þess að greiða tapið sem varð á peningamarkssjóðnum að upphæð rúmlega 5 milljónum. Samtals um 12 milljónir króna. Það náum við með hagræðingu, vinnuframlagi ófárra manna við stækkunarframkvæmdirnar og afgangi af rekstrarfé.
Við höfum náð að framkvæma og vinna vel úr því fjármagni sem okkur hefur verið ætlað, þó enn sé nokkuð eftir á leið okkar.  Má þar nefna sandgryfjur, ný teigaskilti, bekki og slíkt sem er á teigum ásamt fleiri atriðum sem munu koma nánar í ljós.  Reiknast til að kostnaður við fullgerðan völlinn muni fara fram úr 51 milljón, þar sem áætlun gerir ráð fyrir um 12 milljón króna viðbótarkostnaði á árunum 2012-13.

Þegar litið er yfir þau verk sem unnin hafa verið í gegnum tíðina mætti halda að golfklúbburinn væri með félagatal á við stærstu klúbba landsins.  Þess vegna er það líka aðdáunarvert og eftir því tekið hversu stórhuga menn eru í öllum verkum.  Það gerist þó ekki án mikils og ómetanlegs stuðnings fyrirtækja hér í bæ.  Þau eiga miklar þakkir skildar fyrir tiltrú og velvilja í verki. 

Í haust bárust stjórn GG þær fréttir að núverandi golfskáli er ekki skráður í eigu golfklúbbsins.  Árið 2008 færði Fjársýsla ríkisins húsnæðið undir sína eign.  Eins og flestir félagar vita, þá hafði Golfklúbburinn fengið húsnæðið að gjöf frá ríkinu og byggði núverandi golfskála upp með sínu fjármagni og sjálfboðavinnu.  Því miður er ekki til neinn samningur sem sannar okkar eignarhald á skálanum og því erfitt að sækja það mál.  Þó eru aðilar á vegum golfklúbbsins að skoða þau mál fyrir okkur.  Vonumst við til að farsæl lausn fáist í þetta vandræðamál og eignarhaldið verið ótvírætt okkar. Á meðan það er óljóst er fásinna að fara í viðgerðir eða endurbætur á húsnæðinu.

Eins og áður hefur verið nefnt er það mikilvægt golfklúbbnum að regluleg nýliðun félaga eigi sér stað. Á síðastliðnu starfsári setti stjórn GG sér það takmark að ná inn á hverju ári um 10-15 nýjum félögum undir 16 ára aldri.  Það hefur reynst þrautinni þyngra því mikil samkeppni er um ungviðið í íþrótta- og æskulýðsstarfi.  En til að svo megi verða þarf þessi hópur gott aðhald og góða kennslu.  Um síðustu áramót var ákveðið að ráða Jóhann Kristinn Hjaltason PGA kennara til að sinna þessum málum og mynda heildræna stefnu í barna- og unglingastarfi.  Kennslan fór að mestu fram á Rollutúninu en eldri og reyndar krakkarnir æfðu þó á æfingasvæðinu við Húsatóftavöll.  Rollutúnið sannaði sig rækilega því með þessu náðist að mynda 20-30 manna kjarna sem stundaði æfingar og kennslu af kappi en heildartala þeirra með þeim sem mættu óreglulega var nálægt 40 krökkum. 

Í lok sumars tók unglingasveit GG tók þátt í sveitakeppni GSÍ á Flúðum.  Árangurinn var mjög viðunandi en það sést vel að við eigum enn óunnið verk fyrir höndum til að nálgast sveitir á höfuðborgarsvæðinu og voru menn á því að góður efniviður er fyrir hendi.  Það eitt og sér segir til um þær væntingar og metnað sem lagður er í þennan þátt GG. 

Þess má geta að stjórn GG hvatti yngri kylfinga sína til þátttöku á Áskorendamótaröð GSÍ og voru að meðaltali 2-3 unglingar sem tóku þátt í hverju móti.  Sá einstæði árangur náðist að Sigurður Helgi Hallfreðsson sigraði í heildarstigakeppninni í sínum aldursflokki á Áskorendamótaröðinni.  Sannarlega góður árangur og gefur góð fyrirheit.

Árið 2008 sótti þáverandi stjórn um að fá „Rollutúnið til afnota undir par 3 völl sem væri öllum opinn án endurgjalds.  Skemmst er frá því að segja að par 3 völlurinn hefur svo sannarlega hitt í mark og reglulega sjást bæjarbúar á öllum aldri rölta um völlinn sér til ánægju við æfingar og leik.  Golfklúbburinn samdi við Grindavíkurbæ um viðhald á vellinum í sumar ásamt því að sjá um slátt á púttvelinum við Víðihlíð.  Það eitt og sér hefur sannað gildi sitt gagnvart aukinni þjónustu við bæjarbúa og gesti bæjarins og mun eftir sem áður einnig gegna lykilhlutverki í barna- og unglingastarfi klúbbsins.  Völlurinn er staðsettur á móti tjaldsvæðinu sem þýðir aukna valkosti fyrir gesti bæjarins varðandi skemmtun og afþreyingu. 

Sá samningur ásamt sláttusamningi er nú í uppnámi þar sem Grindavíkurbær hefur hugsað sér að kaupa sláttuvél til að sjá um þau mál sjálfir.  Þar reiknast okkur til að rúmlega 2 milljóna rekstrarfé hverfi með þessari ráðstöfun bæjarins.  Það er slæmt mál, sérstaklega á þessum tímum sem mikil uppbygging og kostnaður samhliða henni hvílir á golfklúbbnum.  Sama gildir um styrktarsamning bæjarins vegna barna og unglingastarfsins.  Sú fjárhæð lækkaði úr 1.8 milljónum í 1 milljón þrátt fyrir aukna áherslu golfklúbbsins í uppbyggingastarfi barna og unglinga. 

Styrktarsamningar gegna að sjálfsögðu lykilhlutverki í starfi íþróttafélaga og er Golfklúbbur Grindavíkur engin undantekning á því.  Staða þeirra mála er mjög góð miðað við samdrátt á þessu sviði eins og gefur að skilja þar sem erfiðara hefur reynst að afla fjármagns frá fyrirtækjum og velunnurum.  Stjórnin hafði á árinu 2011 samband við og heimsótti fjölda fyrirtækja, bæði hér innan Grindavíkur og á höfuðborgarsvæðinu með það fyrir augum að ná inn fleiri styrkjum.  Það gerði það að verkum að N1, IAV, Byggingvöruverslun Ísleifs Jónssonar, Magma Energy og aðrir minni styrktaraðilar gengu til liðs við okkur.  Auk þessa hafa rótgrónir og dyggir styrktaraðilar haldið tryggð sína við okkur, má þar nefna Þorbjörninn, Vísir úgerðarfélag, Einhamar, Landsbankinn,  Hérastubbur bakarí, Veiðafæraþjónustan, Vélsmiðja Grindavíkur, Norðurál, Bláa Lónið, Vífilfell og Grindin.  Kunnum við þeim mikla þakkir fyrir dyggan stuðning.  Án þeirra værum við ekki í þeim sporum að opna bráðlega 18 holu golfvöll.  Fleiri fyrirtæki hafa gefið vilyrði fyrir samstarfi á næsta ári.  Það lítur því nokkuð vel út með hægt verði að fylla brautarsamninga á 18 holu golfvelli.  Reiknast okkur til að um 3 brautir verði lausar eftir áramótin. Sumir styrktaraðilanna eru, þrátt fyrir góða styrki, ekki með brautarsamninga.

Í dag eru 209 skráðir félagar í Golfklúbb Grindavíkur.  Það er örlítil fækkun frá því í fyrra og má finna rætur í því að félagaskráningakerfið var tekið til endurskoðunar og hreinsaðir út félagar sem ekki voru virkir og greiddu ekki félagsgjald.  Við héldum 27 mót í sumar,  þar af  18 innanfélagsmót. Stigamótin voru 12 og þátttaka að meðaltali um 40 manns í hverju móti, sem er mjög gott.  Það er svipaður fjöldi og árið 2011.  Vel gekk að fá styrktaraðila fyrir stigamótin og allan heiðurinn á Jón Halldór Gíslason sem tók að sér að afla styrktaraðila.  Það er í fyrsta skipti í nokkur ár að það náðist að fá fyrirtæki til að styrkja öll stigamótin.  

Á árinu 2011 tóku 1.270 manns þátt í mótum á okkar vegum. Það er aukning um 170 manns frá fyrra ári.  Það segir líka sína sögu þar sem nokkrum mótum var aflýst vegna dræmrar þátttöku og slæms veðurs.  Vonir standa til að mun fleiri muni taka þátt á næsta ári þegar völurinn verður 18 holur.

Völlurinn var í frábæru standi í sumar enda með mikinn fagmann við stjórnvölinn á vellinum.  Vallarstjóri síðastliðið sumar var Bjarni Þór Hannesson og þakka ég honum frábær störf en að hans sögn væntir hann mun betri árangurs af starfinu en það sem þegar hefur birst kylfingum.  Svo mikið segir það um metnað hans á þessu sviði.  Aðsókn á völlinn hefur aukist svo um munar og má þar þakka miklu og góðu umtali um völlinn og frábæru starfi vallarstjóra og hans starfsmanna.   Þó er sú tala alls ekki tæmandi þar sem gagnkvæmur samningur um 1.000 kr gjald er milli GS og GG, GSG og GG, GG og Selfoss, GG og GOB; 1.500 kr. gjald milli GG og Hellu og milli GG og Glanna, 50% afsláttur milli GG og GV.  Það er nokkur aukning í vinavallasamningum frá árinu 2010.

En heildarfjöldi frá GS á Húsatóftavelli í sumar 240 gestakomur og 70 frá GSG. Heimsóknir okkar félaga til GS voru 64 talsins en minna frá öðrum golfklúbbum.  Það er mikil breyting til batnaðar og stjórnir þessara klúbba eru sammála að góð lending hafi verið í samvinnu þeirra í milli, því í stað þess að fá ekki neitt fyrir sinn snúð fengum við um 350 þúsund kr. aukalega.
Samningur var  einnig gerður við Golfklúbbinn Odd um að þeir greiddu 235.000 kr gjald í upphafi og síðan 1.000 kr. per kylfing en 220 kylfingar frá Oddi léku völlinn í sumar.  Einnig var samningur gerður við Arion banka um að félagar þeirra fengu að leika völlinn gegn því að starfsmannafélag þeirra greiddi 2.500 kr per heimsókn.  Það gerði að lokum rúmlega 200 þúsund krónur.

Í meistaramóti klúbbsins tóku 73 manns þátt og er það aukning um 7 manns frá fyrra ári sem þó var metár. 
Davíð Arthur Friðriksson var meistari karla með nokkrum yfirburðum líkt og árið þar á undan og kvennameistari í ár var Svanhvít Helga Hammer.  Meistaramót unglinga var haldið vikuna áður og tóku 8 unglingar þátt.  Sigurvegari varð Lárus Guðmundsson en hann sigarði með miklum yfirburðum líkt og árið áður. Við óskum þeim innilega til hamingju með árangurinn.  Lokahófið var síðan haldið í sal Verkalýðsfélags Grindavíkur og tókst vel til. Það mun þó verða í síðasta sinn sem lokahóf meistaramótsins verður haldið í salarkynnum utan golfklúbbsins, því nýi skálinn mun eftirleiðis rúma það hóf. 

Stigamótsmeistari þetta árið var Kristinn Sörensen en hann sigraði nokkuð örugglega á heildarstigum.  Bikarmeistari varð Jón Júlíus Karlsson og Tóftabóndi þetta árið varð Ingvar Guðjónsson.

Sveitakeppni GSÍ í 3. deild var haldin á Húsatóftavelli um miðjan ágúst.  Í sveit Grindavíkur voru Davíð Arthúr Friðriksson, Kristinn Sörensen, Ingvar Guðjónsson,  Hávarður Gunnarsson, Þorlákur Halldórsson og  Leifur Guðjónsson.  Liðsstjóri var Gunnar Már Gunnarsson líkt og undanfarin ár. 
Það er skemmst frá því að segja að Grindavík lenti þar í þriðja sæti og var stutt frá því að komast upp í 2. deild.

Eins og áður hefur verið nefnt, hafa átt sér stað miklar framkvæmdir á Húsatóftavelli hefur mörgu verkinu verið ýtt úr vör á síðastliðnu ári og allt lítur út fyrir að margur draumurinn verði að veruleika á árinu 2012.  Brautir og flatir að taka á sig skýra mynd, stígargerð langt komin og sandgryfjur sett nýjan svip á gamlar brautir.  Allt stækkunarverkið er í öruggum höndum Bjarna vallarstjóra. 

Næsta ár mun skera úr um okkar framtíðarmöguleika.  Þrátt fyrir að fjármagn verði af skornum skammti, eru menn mjög bjartsýnir á framhaldið og hugsa stórt og vænta mikils.  Enda hefur völlurinn og umhverfið allt uppá að bjóða til að verða meðal vinsælustu golfvöllum landsins. 

Til þess að svo geti orðið mun mikið reyna á félagsmenn og að þeir aðstoði við uppbygginguna, þar má nefna þátttaka í mótahaldi, endurbyggingu íbúðarhússins og framtíðarskála ofl.  Á næstu árum þarf klúbburinn að fara í fleiri framkvæmdir, s.s. enduruppbyggingu æfingasvæðis, bílastæða við golfskála, vélageymslu og fleira.  Áttum okkur á því að styrkleiki klúbbsins byggir á ósérhlífnu sjálfboðastarfi og vilja til verka.  Er þar enginn undanskilinn.  Tökum höndum saman við að gera góðan klúbb enn betri.  Það er undir félagsmönnum komið hvaða vegleið verður farin.  Mikilvægt er að átta sig á að það er okkur dýrmætt að geta lagt af mörkum í sjálfboðastarf og um leið látið drauminn rætast að geta opnað nýjan völl með húsnæði sem hentar starfseminni. 

Með þessum orðum læt ég nægja tölu mína um það starf sem rækt var innan Golfklúbbs Grindavíkur á síðastliðnu ári.   Góðar stundir. 

 

Félagskveðja,
Páll Erlingsson
Formaður Golfklúbbs Grindavíkur


 













 

Golfklúbbur Grindavíkur 2011 vefumsjón: paller@grindavik.is