Fundagerðir 2011

Stjórnarfundur GG - 23. desember 2011
kl. 12:30 á Bryggjan Cafe


Mættir eru: Páll Erlingsson, Jón Guðmundsson, Gunnar Oddgeir Sigurðsson, Jóhann Freyr Einarsson, Páll Þorbjörnsson, Jón Júlíus Karlsson, Friðrik Ámundson, Halldór Ingvason, Sigvaldi Þorsteinsson. Fundurinn fór fram á Bryggjunni.

1. Aðalfundurinn 29. des - Þátttaka/breyting á stjórn GG
Flestir stjórnarmenn, sem eru ekki með kjör til setu á næsta ári, hyggjast bjóða sig áfram til setu í stjórn á næsta ári. Tveir stjórnarmenn eru að skoða sína stöðu. Skoðað verður með áhuga annarra félaga um að ganga í stjórn fari svo að núverandi meðlimir gefi ekki kost á sér.

Virkja þarf mótanefnd innan klúbbsins og verður leitað til félaga til að taka þátt í því starfi. Reynt verður að skipa nefndir á aðalfundi fyrir næsta starfsár. Einnig verður auglýst eftir aðilum í vallarnefnd. Á næsta ári verður einnig reynt að gefa hverri nefnd betri starfslýsingu svo félagar fái betri sýn á hlutverk hverrar nefndar. Rástímaskráning verður einnig tekinn upp næsta sumar. Það kemur í veg fyrir árekstra á álagstímum og einnig gefur það klúbbnum betri yfirsýn yfir umferð á vellinum.

2. Staða fjármála
Miðað við framkvæmdir ársins þá er fjárhagsstaða klúbbsins nokkuð góð. Klúbburinn á eftir að fá 5,3 milljónir króna frá Grindavíkurbæ. Klúbburinn tók lán á haustmánuðum í ár til að halda áfram byggingu á nýjum golfskála. Gert ráð fyrir nokkrum framkvæmdum á næsta starfsári með tilheyrandi fjárútlátum.

Sigvaldi gjaldkeri tók saman reikninga af öllum framkvæmdum við stækkun vallarins frá 2008 og nú þegar hefur sú tala náð 52 milljónir króna. Klúbburinn hefur reitt fram alla reikninga af þessum framkvæmdum til bæjarins. Ársreikningar fyrir síðasta starfsár verða birtir á aðalfundi.

3. Sláttusamningur við Grindavíkurbæ
Orðrómur er um að Grindavíkurbær ætli sér að kaupa sér nýja sláttuvél til að slá knattspyrnuvellina sjálfir. Þar með tapar klúbburinn tekjum enda hefur verið samningur við Grindavíkurbæ um þetta undanfarin ár. Engin hagræðing hlýst af þessu fyrir Grindavíkurbæ. Leitað verður eftir niðurstöðu í þessu máli.

4. Styrktarsamningar
GG og Landsbankinn hafa gert nýjan brautarsamning til þriggja ára. Styrkurinn gildir til þriggja ára. Einnig veitti Landsbankinn klúbbnum veglega afmælisgjöf til styrktar unglingastarfinu. Reynt verður að vinna að nýjum styrktarsamningnum snemma á þessu ári til að klúbburinn komi fjárhagslega sterkur inn í golfsumarið. Viðræður við önnur fyrirtæki eru áætlaðar í byrjun næsta árs.

5. Afmælisblað GG
Ákveðið var að fresta útgáfu á afmælisblaðinu í ár en stefnt er að því að gefa út blaðið snemma á næsta ári. Jón Júlíus, ritstjóri, segir að mikið af efni sé klárt í blaðið og gengið hefur verið frá tilboði í prentun. Núna þurfi að afla auglýsinga í blaðið svo að sem mestur hagnaður verði af blaðinu sem færi í framkvæmdir á nýjum skála. Félagsmenn klúbbsins er bent á að hafa samband við gggolf@gggolf.is varðandi efnistök eða jafnvel auglýsingar sem eru vel þegnar.

Fleira var ekki rætt og fundi slitið 14:00.

Stjórnarfundur GG þriðjudag 26. júlí
kl. 17:30 í golfskálanum

Mættir eru: Páll Erlingsson, Páll Þorbjörnsson, Jón Júlíus Karlsson, Friðrik Ámundsson, Jóhann Freyr Einarsson, Gunnar O. Sigurðsson, Jón Guðmundsson, Halldór Ingvason.

Dagskrá:


1. Sveitakeppni:
Klúbburinn heldur Íslandsmótið í sveitakeppni, þriðju deild, á Húsatóftavelli 12.-14. ágúst næstkomandi. Klúbburinn leggur kapp á að halda mótið með sem bestum hætti og ætlar að undirbúa mótið af kostgæfni. Mótanefnd hefur verið falið að skipa liðsstjóra sem síðan velur kylfinga í liðið, auk þriggja efstu karlkylfinga í meistaraflokki í meistaramótinu. Lögð er mikil áhersla á að undirbúa mótið vel svo vel til takist og leitar til félaga með að leggja hönd á plóg við framkvæmd mótsins. Gunnar Már Gunnarsson, hefur verið skipaður liðsstjóri og hefur valið eftirfarandi kylfinga til keppni fyrir hönd GG: Davíð Arthur Friðriksson, Hávarður Gunnarsson, Ingvar Guðjónsson, Kristinn Sörensen, Leifur Guðjónsson, og Þorlákur Halldórsson.

2. Framkvæmdastjóri - næstu skref:
Björk Bergsdóttir hefur látið af störfum sem framkvæmdastjóri klúbbsins og þarf stjórn að meta næstu skref hvað varðar ráðningu á nýjum framkvæmdastjóra. Það er mörg verkefni sem þarf að huga að og mikilvægt að fá framkvæmdastjóra til starfa til að  sinna öllum þeim mikilvægu verkefnum sem framundan eru hjá klúbbnum. Stjórn GG mun fara í viðræður um hugsanlegan arftaka á næstu dögum.

3. Afmælisblað GG:
Hugmyndir af Afmælisblaðinu eru komnar vel á leið. Kostnaðaráætlun er að verða ljós en stefnt er að því að dreifa blaðinu inn á öll heimili í Grindavík. Blaðið kemur út skömmu fyrir 30 ára afmæli klúbbsins í lok ágúst. Ritstjóri verður Jón Júlíus Karlsson og geta félagsmenn sent honum ábendingar um efnistök á jjk@vf.is eða í síma 849-0154.

4. Afmælismót - fyrirkomulag - kostnaður - heiðurstilnefningar:
Rætt var með hvaða hætti ætti að halda 30 ára afmælismót klúbbsins. Stjórn GG hefur ákveðið að bjóða félögum sínum frítt í mótið og verða leiknar 18 holur í Texas Scramble. Nýju holurnar verða leiknar í fyrsta sinn í þessu móti. Send verða út boð til velunnara klúbbsins og styrktaraðila með þátttöku í mótinu. GSÍ hefur óskað eftir heiðurstilnefningum í tilefni af afmæli klúbbsins. Sambandið veitir silfurmerki og gullmerki. Stjórn GG hyggst taka upp að veita einnig silfur- og gullmerki klúbbsins við þetta tilefni.

5. Mótamál:
Tekin hefur verið sú ákvörðun að leyfa kylfingum að leika á tveimur dögum í stigamótum GG héðan í frá. Stjórn GG telur að þetta gefi fleiri kylfingum möguleika á að taka þátt og einnig að það dragi úr álagi á vellinum um leið sem komi í veg fyrir að loki þurfa vellinum að óþörfu.
6. Skálinn - viðgerð á gamla skálanum og endurbætur á nýja:

Aukið fjármagn þarf að leggja við uppbyggingu á nýja golfskálanum. Samið hefur verið við smiði til að ganga í stærstu verkefni enda þurfa þar að vera fagmenn að verki. Áfram er stefnt að því að láta kostnað vera eins lítinn og mögulegt er. Með því móti þarf samstillt átak klúbbfélaga við uppbyggingu á nýju klúbbhúsi. Nýjan skála skal gera fokheldan fyrir vetur. Einnig þarf að huga að endurbótum á gamla skálanum. Ekki eru ennþá aðkallandi viðgerðir sem blasa við en ljóst er að skoða þarf endurbætur fyrir næsta ár til að koma í veg fyrir frekari skemmdir.

Stjórnarfundur GG miðvikudag 13. apríl kl.
Kl. 17:30 í golfskálanum

Mættir eru: Gunnar Sigurðsson, Friðrik Ámundarson, Jóhann Freyr Einarsson, Jón Guðmundsson,  Jón Júlíus Karlsson, Páll Erlingsson, Páll Þorbjörnsson, og Sigvaldi Þorsteinsson.

Dagskrá

1. Mótaskrá:
Leitað verður leiða til að fjölga nýjum og spennandi mótum í sumar. Einnig skoðað með verðlaun í mótum og var rætt um kosti og galla þess að vera með aðkeypt verðlaun, t.d. golfbúnað sem verðlaun í mótum. Jafnvel reynt að blanda saman gjafabréfum og golfbúnaði sem verðlaun í opnum mótum. Stefnt að því að gera Sjóarann Síkáta að tveggja daga móti á næsta ári þegar völlurinn er orðinn að 18 holu golfvelli. Mótið á að vera flaggskip klúbbsins í framtíðinni og verður reynt að hafa mótið líkt og Volcano Open mótið í Vestmannaeyjum.

2. Styrktaraðilar:
Það eru komnir styrktaraðilar í öll stigamótin í sumar sem er gleðiefni. Góð staða í styrktarsamningum og er enn leitað nýrra styrkja um þessar mundir. Tvær brautir eru lausar fyrir brautasamninga og því eru sóknarfæri þar.

3. Hópaskráningar – pokamerkin 2011
Nú þegar hafa komið fram nokkrar beiðnir um að fá völlinn leigðan undir hópa í sumar. Reynt verður eftir fremsta megni að koma í veg fyrir að slík hópaskráning muni bitna á félagsmönnum og því hafa hentugar dagsetningar verið fundnar fyrir hópa. Þessar hópaskráningar skila klúbbnum aukar tekjur sem eru mikilvægar í núverandi árferði.

4. Starfsmannamál:
Ljóst að klúbbnum vantar starfsmenn í sumar til að fullgera völlinn að 18 holum. Alls er talið að um 13 starfsmenn muni fást til starfa á vellinum í sumar. Flestir koma í gegnum Grindavíkurbæ og í gegnum Vinnumálastofnun. Reynt verður að móta nýja framkvæmdastjórastöðu hjá klúbbnum í framtíðinni og þarf að fara betur yfir þá stöðu á næstunni.

5. Félagsskírteini – pokamerkin 2011:
Félagaskírteini og pokamerki er tilbúin og voru þau prentuð og plöstuð af formanni. Þannig formgerð sparra klúbbnum tugi þúsunda á ári hverju. Klippikort hafa einnig vera gerð handa fyrirtækjum sem styrkja klúbbinn. Skírteinin þykja vel heppnuð.

 

Stjórnarfundur GG 23. mars 2011

Mættir eru: Gunnar Oddgeir Sigurðsson, Halldór Jóel Ingvason, Jón Guðmundsson, Jón Júlíus Karlsson og Páll Erlingsson.

Dagskrá:

  1. Starfsfólk í skála:
    Rætt var um framvindu mála með starfsfólk í skála. Ákveðið var að leita áfram til þeirra sem starfað hafa í veitingaþjónustu undanfarin ár, Bubbu og Grétu. Formaður tekur að sér að setjast niður með þeim stöllum og fara yfir stöðuna. Jafnvel rætt um að bæta við ungum starfsmanni sem gæti unnið fram eftir kvöldi. Lagt var til að lengja opnunartímann í skála og opna skálann fyrr um helgar. Stefnt er að því að hafa skálann opinn frá 11-21 á virkum dögum og 10-19 um helgar. Rætt var um að vera með heitan mat í hádeginu í skála fyrir starfsmenn vallarins. Það myndi auka hagræðingu fyrir starfsmenn enda búist við að um tólf starfsmenn starfi á vellinum á háanna tíma í sumar. Flöskusjóður verður nýttur til að fjármagna kostnað við matargerð.
  2. Auglýsingasamningar - skorkort - brautir:
    Samningar hafa náðst við ÍAV um tveggja ára samning og fær klúbburinn afnot af gámi fram á haust. Klúbburinn keypti að auki bifreið frá fyrirtækinu sem var vel niðurgreiddur. Samningurinn er mjög góður þegar allt er komið heim og saman. Prentuð verða ný skorkort fyrir sumarið og hefur söfnun styrktaraðila gegnið framar vonum. Það er ánægjuefni að nú þegar hafa fengist styrktaraðilar í öll stigamót sumarsins, en á sama tíma í fyrra voru aðeins komnir þrír styrktaraðilar. Formaður lagði fram hugmyndir um að setja upp auglýsingar við bílastæði sem gæti reynst ný tekjulind fyrir klúbbinn.
    Rætt verður við fleiri fyrirtæki, líkt og Bláa Lónið á næstunni varðandi frekari styrki.
  3. Starfsmenn á velli:
    GG hefur fengið leyfi tvo starfsmenn frá Vinnumálastofnun. Klúbburinn fær fjóra starfsmenn frá Grindavíkurbæ. Klúbburinn fær líklega tvo starfsmenn með fjárhagslegum styrk til viðbótar frá bænum. Bjarni vallarstjóri telur sig þurfa mann með reynslu til starfa og hefur nú þegar stungið upp á starfsmanni sem hefur starfað hjá GR undanfarin ár. Alls munu því um 12 starfsmann starfa á vellinum í sumar við viðhald og uppbyggingu á vellinum.
  4. Vélakaup:
    Þörf er á gröfu fyrir stækkun vallarins og uppbyggingu nýrra teiga. Vallarstjórinn hefur lagt áherslu á að slík grafa gæti reynst gríðarlega vel á næstu árum við margs konar uppbyggingu á svæðinu. Kostnaðurinn þykir hins vegar býsna hár og en sú lausn á leigu á gröfu þykir einnig kostnaðarsöm. Farið verður yfir stöðuna í heild sinni og ákvörðun tekin síðar. Engin ný vél verður keypt í sumar og ný flatarsláttuvél verður ekki keypt fyrr en á næsta ári.
  5. Mótamál:
    Rætt um að halda Reykjanes mótaröð, fjögur mót fyrir kylfinga í klúbbunum á Suðurnesjunum sem væru með sama fyrirkomulagi og stigamótin. Skoðað að vera með meira úrval verðalauna í mótum. Hugmynd kom fram með að vera með liðamótaröð GG sem leikin væru samhliða stigamótunum. Nánari útfærsla á mótaröðinni væri kynnt félögum síðar.
  6. Önnur mál:
    Formaður greindi frá rekstrarstyrk frá Grindavíkurbæ ásamt styrk fyrir barna- og unglingastarfi á árinu. Einnig eru líkur á að fyrirtæki styrki barnastarfið að hluta.
    Tillaga um að bjóða flatargjald kr. 2000 á virkum dögum fyrir kl. 13:00

Stjórnarfundur GG  í golfskálanum
miðvikudaginn 23. febrúar kl. 17:30

Mættir: Jón Guðmundsson, Halldór Jóel Ingvason, Páll Þorbjörnsson, Gunnar Oddgeir Sigurðsson, Jóhann Freyr Einarsson, Sigvaldi Þorsteinsson og Páll Erlingsson

  1. Rekstraráætlun ársins - gerð rekstraráætlunar.
    Sigvaldi lagði fram rekstraráætlun.  Gert er ráð fyrir að rekstrarkostnaður aukist um allt að 2,8 milljónir.
  2. Gerð framkvæmdaráætlunar.
    Vallarstjóri í samvinnu við vallarnefndarformann er að vinna að framkvæmdaráætlun fyrir árið 2011 og mun skila innan 3 vikna.
  3. Styrktarmál - brautarsamningar - opin mót.
    Nokkuð vantar enn upp á styrktarsamninga.  Þó má fagna því að tekist hefur að fjármagna stigamót GG fyrir tilstuðlan góðra manna.  Nokkri samningar eru lausir og þurfa stjórnarmenn að ganga hratt í þau mál og koma öllum upplýsingum um styktaraðila til Sigvalda gjaldkera sem hefur yfirumsjón með þessum málum.
  4. Framkvæmdir við nýja golfskálann.
    Framkvæmdir ganga vel.  Nú vantar einungis geymslugám til að geyma gifsplötur og fleiri hluti á meðan framkvæmdir eru.  Teikningar af skálanum voru lagðar fyrir stjórn GG og var ósk um að unnin væri kostnaðaráætlun við að gera skálann fokheldan.
  5. Útgáfa hlutabréfa til velunnara/félaga vegna framkvæmda við nýja golfskálann.
    Jón G og Halldór J.  lögðu fram hugmynd um að bjóða hlut til félaga um endurbætur á Barðahúsi.  Hlutafé verði 50.000 eða 100.000 kr per félaga.  Þessu verði hrint í framkvæmd þegar endurbæturnar verða kynntar félögum á opnum fundi um skálann og kynningu á framvindu verksins.  Stefnt er að því að gera húsið og viðbyggingu fokheld fyrir haustið 2011.  Halldór og Jón G hafa yfirumsjón með málinu.
  6. Afmælisnefnd - afmælismót GG - fjármögnun.
    Mikilvægt er að stofna afmælisnefnd GG sem mun sjá um afmælismót GG sem haldið verður 3. september 2011. Nokkur nöfn komu fram og verður haft samband við þá aðila um hvort áhugi sé fyrir verkefninu.  Þeirra hlutverk er að ákveða leikjafyrirkomulag og með form á mótinu ásamt því að leita eftir styrktaraðilum.  Mótið verður að þessu leyti ekki í höndum stjórnar, en mótanefnd mun síðan sjá um mótið í samræmi við óskir afmælisnefndar.
  7. Afmælisrit GG - ritstjórn - öflun auglýsinga og greina í blaðið 7. Mannaráðningar fyrir sumarið.
    Hugmyndir um að skipa ritnefnd í tilefni af 30 ára afmælis golklúbbsins.  NOkkur nöfn voru nefnd og verður haft samband við þá aðila. Þeir munu hafa yfirumsjón með að safna efni í ritið og auglýsingum (hægt að fá einhverja til þess á þeirra vegum).  Þegar er til efni sem var safnað fyrir blað sem koma átti út á 25 ára afmælinu og vel nýtanlegt í þetta blað.  Allar greinar, fréttir, myndir og sögur eru að sjálfsögðu meira en vel þegnar.
  8. Samningar við Grindavíkurbæ - rekstrarstyrkur - barnastyrkur - sláttusamningur
    Fundur hefur verið boðaður með GG og Grindavíkurbæ um rekstrarstyrk milli aðila.  Páll Þorbjörnsson og Sigvaldi Þorsteinsson taka að sér að leiða þær viðræður.
  9. Önnur mál.
    Golfklúbbnum hefur borist gjöf Pétri Antonssyni fyrrum formanni GG og heiðursfélaga.  Hann hefur gefið golfklúbbnum marga verðlaunabikara sem hann hefur unnið á sínum ferli.  Hann vonast til að þessir bikarar og styttur geti nýst sem verðlaunagripir í mótum á vegum GG eða annað sem klúbburinn kann að sjá fyrir sér. Honum erum færðar kærar þakkir frá stjórn GG fyrir framtakið.

Stjórnarfundur GG  í golfskálanum
miðvikudaginn 2. febrúar kl. 17:30

Mættir: Jón Guðmundsson, Halldór Jóel Ingvason, Páll Þorbjörnsson, Gunnar Oddgeir Sigurðsson, Friðrik Ámundason og Páll Erlingsson

  1. Barna- og unglingastyrkur Grindavíkurbæjar
    1. Ræddar voru tillögur UMFG gagnvart GG og samflot í samningi.  Stjórnin var samhljóða um að hafna tillögu um 965 þús krónur okkur til handa.   Formaður mun hitta formann UMFG og Ingvar Guðjónsson og athuga með annað tilboð frá þeim.
  2. Styrktaraðilar
    1. Farið var yfir styrktaraðila og hversu marga þarf í viðbót.   Þegar hafa komið inn styrktaraðilar fyrir félagsskírteinin og pokaspjöldin.  Á eftir að ganga frá við Þorbjörninn, Bláa Lónið og Sparisjóð Keflavíkur
  3. Samstarf milli klúbbanna GS, GSG,GVS og GG
    1. Fundur verður haldinn föstudaginn 4. febrúar með formönnum klúbbanna, framkvæmdastjórum og vallarstjórum.  Fara á yfir samstarf um mótamál, samnýtingu tækja, gagnkvæmt spilagjald, klippikort og sameiginlega markaðssetningu.
    2. Vinavallasamningar við Hellu og Selfoss hafa verið samþykktir  Hella-GG með gagnkvæmt spilagjald 1500 kr og Selfoss-GG með 1000 kr.  Þegar hefur Golfklúbburinn Glanni einnig samþykkt 1500 kr spilagjald.
  4. Kaup á prentara, plöstunarvél og plasti
    1. Kaup á prentara, plöstunarvél og plasti vegna pokamerkja, félagsskírteina og klippikorta.  Páll E tekur það að sér.
  5. Innheimtur árgjalda
    1. Frestað þar til á næsta stjórnarfundi.
  6. Framkvæmdir á Barðahúsi. 
    1. Framkvæmdir ganga vel.  Búið að rífa alla milliveggi og næst að fara í gólfið og rafmagnið. Ekkert sé unnið gegn greiðslu, aðeins sé greitt fyrir efniskostnaði.  Páll E tekur að sér að fá geymslugám.  Það þarf að búa til sérstakan reikning fyrir þessar framkvæmdir og leggja til amk. 1 milljón til að byrja með og Sigurgeir Guðjóns muni hafa umsjón með þeim fjármunum til framkvæmdanna.  Jón Guðmunds hefur yfirumsjón með endurbótunum.
  7. Rekstrarsamningur við Grindavíkurbæ
    1. Eldri samningur er runninn út en sláttusamnignur á enn eftir 1 ár.  Vilji er hjá bæjaryfirvöldum að endurskoða báða samninga m.t.t. stærra svæðis, par3 vallarins og púttvallar (púttvöllur var í barnasamninginum).  Stjórnin vill semja sérstaklega um götun, söndun og sáningu hjá öðrum.  Það sé sérstaklega kveðið á um það í samningi.  Engin lán verða á vélum, tækjum eða sérfræðiþjónustu frá klúbbnum nema gegn gjaldi.
  8. Bílakaup - vallarbíll
    1. Nauðsynlegt er að kaupa annan vallarbíl þar sem gamli bíllinn skemmdist mikið við bílveltu og var seldur í bílaparta.  Páll Þorbjörns og Bjarni taka það að sér en Páll E tekur að sér að ræða við ÍAV um hvort þeir hafi bifreið til sölu ásamt því að athuga með fleiri burðarbita fyrir vélageymslu.
  9. Önnur mál
    1. Mótamál – Gunnar Oddgeir sagði að mótaskrá sé í mótun og verið sé að fara yfir hana ásamt því að athuga með klúbbana hér í kring svo ekki stangist mikið á.

 

Engin önnur mál voru tekin fyrir
Fundi slitið kl. 19:00

Páll E ritaði fundargerð

Stjórnarfundur GG Golfskálanum
miðvikudaginn 12. jan. kl. 17:30

Dagskrá fundarins:

  1. Skipan í embætti
    1. Nefndir og ráð
  2. Fundartími
  3. Flatargjöld
  4. Félagsskírteini, pokamerki, klippikort fyrir flatargjöld
  5. Styrktaraðilar
    1. Brautarsamningar
    2. Skorkort – styrktaraðilar
    3. Pokamerki  - styrktaraðilar
  6. Mótaskrá
  7. Stækkunarmál
  8. Húsamál
  9. Önnur mál

 

  1. Skipan í embætti : 
    Páll Erlingsson formaður, Jóhann F. Einarsson varaformaður, Sigvaldi Þorsteinsson gjaldkeri, Jón Júlíus Karlsson ritari,  Jón Guðmundsson formaður húsa- og bygginganefndar,  Gunnar Oddgeir Sigurðsson formaður mótanefndar,  Páll Þorbjörnsson formaður vallarnefndar. Halldór Jóel Yngvason meðstjórnandi (vara), Friðrik Ámundason formaður barna- og unglinganefndar (vara)
  2. Nefndir og ráð
    Byggingarnefnd, barna- og unglinganefnd, vallarnefnd, mótanefnd, stækkunarnefnd
    Fjallað um að stofna aganefnd sem samþykkt var einróma af stjórn.
  1. Fundartími
    Fundartími framvegis fysta þriðjudag hvers mánaðar kl. 19:00 í golfskálanum og oftar ef þurfa þykir.
  2. Flatargjöld
    Stjórnin samþykkir 500 kr hækkun á flatargjöldum
  3. Félagsskírteini, pokamerki, klippikort fyrir flatargjöld
    Páll E. kynnti hönnun sína á pokamerkjum, félags- og forgjafarskírteinum ásamt klippikortum.
    Óþarfi er að sækja styrktaraðila þar sem Einhamar styrkir útgáfuna.  Einungis þarf að kaupa plöstunarvél, plöst og litaprentara.  Samþykkt af stjórn að fylgja þessu eftir og Páll taki verkið að sér.  Mikill sparnaður getur hlotist af þessu ásamt því að félagar fái pokamerki og félagsskírteini mun fyrr en áður.
  4. Styrktaraðilar
    1. Brautarsamningar 
      Yfirfara þá brautarsamninga sem eru að renna út ásamt því að tala við fyrirtæki:  Páll Þorbjörns tala við **** Halldór Jóel við ***, *** og ***
    2. Skorkort – styrktaraðilar
      Samþykkt að tala aftur við sömu styrktaraðila.  Verðið hækkar úr 30 í 40 þús fyrir svæðið. 1/6 af fletinum.
    3. Pokamerki  - styrktaraðilar
      Einhamar hefur samþykkt að styrkja útgáfuna.
  5. Mótaskrá
    Gunnar Oddgeir og Jón Júlíus taka að sér að setja upp mótaskrá. Samþykkt að halda stigamótin í flestum tilfellum á þriðjudegi en ef það rekst á við knattspyrnuna, skuli færaog einnig ef veðurspá sé slæm
  6. Stækkunarmál
    Vel gengur í stækkunarmálum.  Páll E. tilkynnti stjórn að bæjarstjórn Grindavíkur hefur ákveðið að frysta greiðslur til klúbbsins vegna stækkunarmála og hefur það í för með sér að hægist á framkvæmdum vegna þessa sem er slæmt mál þegar komið er á lokastig stækkunarframkvæmda.  En á meðan mun klúbburinn samt sem áður leggja til fé í stækkun og reyna að halda tímaáætlun, þ.e. opna formlega völlinn með öllu tilheyrandi vorið 2012 en sækja síðan þennan kostnað til Grindavíkurbæjar árið 2012.  Hafa ber í huga að Grindavíkurbær hefur enn ekki lokið greiðslu vegna ársins 2009.
  7. Húsamál
    Stjórnin samþykkir að húsanefnd geri kostnaðaráætlun til að vinna með og dreifa álagi vegna kostnaðar á ákv. tímabil til vors 2012
  8. Önnur mál
    Golfklúbbur Suðurnesja sendi samning að eigin frumkvæði til stjórnar GG um að breyta fríspili milli klúbbanna í 1.000 kr gagnkvæmt spilagjald.  Stjórn gerir engar athugsemdir og samþykkir fyrir sitt leyti.  Spurning um að hafa einnig samband við GSG og koma á sambærilegum samningi.

Ekki fleira gert
 Fundi slitið kl. 19:25
Ritari
Páll Erlingsson


 









Golfklúbbur Grindavíkur 20vefumsjón: paller@grindavik.is