Mót á næstunni


Stjórnarfundur
12. mars 2013 - Fundargerð

Opnunartími golfskála:
Mán-fim
9:00- 21:00
Fös-sun
9:00- 19:00

Sími í golfskála er
426-8720










23. maí - fimmtudagur - Síminn/Skipti - kl 13:00 - 40 manns - ræst út á sama tíma.- 24. maí - föstudagur - O Kaaber 20+ manns  kl. 14:00-15:00


 

23. maí
Sjóarinn síkáti open - opnað fyrir skráningu

Hið árlega mót í tenglsum við sjómannahátíð bæjarins - Sjóarinn síkáti open verður haldið laugardaginn 1. júní.
Mótið verður með punktafyrirkomulagi og verða veitt verðlaun fyrir 4 efstu sætin með forgjöf og efsta sæti án forgjafar.
Nándarverðlaun verða á öllum par 3 brautunum. Teiggjafir í boði NÓA-SÍRÍUS, Verðlaunin er vegleg og hafa verið aukin frá fyrri árum þar er m.a. að finna fiskafurðir, matarúttektir hjá NETTÓ, út að borða á SALTHÚSINU Restaurant, fjölskylduárskort í Bláa Lónið, KAI hnífasett frá Pro Gastro og margt fleira.
Nú er um að gera að njóta helgarinnar í Grindavík á einni glæsilegustu sumarhátíð landsins og taka þátt í skemmtilegu golfmóti á frábærum velli sem kylfingar hafa verið ósparir á að hrósa í hástert.

Þátttökugjald er aðeins 3500 kr

Skráning er á golf.is, gggolf@gggolf.is eða í síma 426-8720

21. maí
Ógreidd félagsgjöld - greiðsla flatargjalda

Enn ber nokkuð á því að félagar hafi ekki greitt félagsgjöldin sín fyrir árið 2013.  Þeir hinir sömu hafa verið gerðir óvirkir í félagaskrá þannig að þeir geta ekki skráð sig á rástíma né spilað á vellinum án þess að greiða flatargjald.  Það er auðvelt að kippa þessu í liðinn með því að hafa samband við gjaldkera klúbbsins Sverrir.Audunsson@dhl.com og semja um greiðslu.  Þeir sem ekki greiða félagsgjaldið fyrir 1. júní verða teknir af félagaskrá.

19. maí
Útsala á golffatnaðir í skálanum

Golfklúbbur Grindavíkur selur glæsilegan golffatnað á mjög hagstæðu verði. Til að rýma fyrir nýjum vörum höfum við ákveðið að allur fatnaður í skálanum seljist á 3.000 krónur.  Einstakt tækifæri á að eignast góða boli eða peysur á mjög lágu verði.  Allar þessar vörur eru hágæðamerki s.s. Ashworth, Antiqua, Mizuno, Oakley Firethorn. Þessar vörur eru til afgreiðslu í golfskálanum.

12. maí
Tappagötun á Húsatóftavelli hefst mánudaginn 13. maí

Tappagötun á flötum hefst mánudaginn 13. maí. - kylfingar vinsamlegast sýnið umburðarlyndi þar sem þetta er nauðsynleg aðgerð til að viðhalda góðum gæðum flata. Áætlað er að flatirnar jafni sig fullkomlega á 7-10 dögum.

12. maí
Hressar GR konur í óvissuferð á Húsatóftavelli

Það ansi fjölmennur hópur af hressum GR-konum sem heimsóttu okkur á Húsatóftavöllí gær.  Heimsóknin var liður í árlegri óvissuferð þeirra. Þær voru komnar til að leika golf og njóta matar.  Heildarfjöldi þerra var rúmlega 100 og með ólíkindum hvers vel tókst til að látta svo mikinn fjölda leika á sama tíma.  Ræst var út á öllum teigum en þær létu það ekki á sig fá þó fjöldinn væri mikil og nutu félagsskaparins.  Að móti loknu var þeim boðið í kvöldverð í skálanum þar sem verðlaunaafhending fór fram að kvöldverði loknum.  Gaman að fá svona hressan og skemmtilegan hóp í heimsókn.

9. maí
Frábær dagur að baki - 170 gestir með bros á vör

Frábær dagur að baki á Húsatóftavelli. Fjöldi kylfinga sótti okkur heim í bliðskaparveðri. Það voru samtals 205 einstaklingar sem léku völlinn í dag og þar af um 175 gestir sem er frábært. Hver kylfingurinn á fætur öðrum hrósaði vellinum í hástert. Flatirnar voru frekar hraðar en tóku vel við bolta og haft var eftir einum kylfingi að þær séu þær einu sem nálgast að vera eins og í útlöndum. Ekki slæm ummæli þar, en satt er það með hversu frábær völlurinn er. Takk fyrir frábæran dag!!!

5. maí
Fjöldi kylfinga lagði leið sína á Húsatóftavöll

Það var sannarlega góður dagur á Húsatóftavelli í dag. Fjöldi kylfinga lagði leið sína á völlinn og naut þess að leika völlinn sem kemur frábærlega undan vetri. Rúmlega 100 skráðir einstaklingar voru skráðir á rástíma framan af degi og er það mjög góð nýting. Flatirnar eru í mjög góðu standi og fjöldi gesta hrósaði vellinum í hástert þó það hafi byrjað að blása aðeins á kylfing þegar leið á daginn.

18. apríl
Leikið á sumarflötum

Kæru kylfingar.  Í gær var fært yfir á sumarflatir að nýju og eru kylfingar beðnir um að virða að gróður er enn viðkvæmur og þess vegna nota flatargaffla til að gera við boltaföt og laga torfusnepla eftir kylfuför. 

8. apríl
Fært yfir á vetrarflatir í dag

Kæru kylfingar.  Í dag verður fært yfir á vetrarflatir þar sem veðurspá gerir ráð fyrir frosti næstu daga og er það sjálfgefið að vernda flatirnar sem eru í viðkvæmu ástandi.  Tilkynnt verður þegar sumarflatir verða að nýju teknar í notkun.

Vallarstjóri

6. apríl
Úrslit í vormóti GG

Um 40 kylfingar tóku þátt í Opnu vormóti sem fram fór á Húsatóftavelli í dag. Heldur kalt var í veðri og vindur. Aðstæður voru því erfiðar. Fannar Jónsson úr GR sigraði í höggleiknum en hann lék á 78 höggum eða átta höggum yfir pari.

Í punktakeppninni var það Pétur Már FInnson úr GR sem sigraði en hann fékk 29 punkta. Ólafur Sigurjónsson úr GR varð annar og Árni Bergur Sigurjónsson úr GKG varð þriðji.

Efstu menn í höggleik:
1. Fannar Jónsson GG 78 +8
2. Jón Kristbjörn Jónsson GVG 81 +11
3. Árni Freyr Sigurjónsson GR 84 +14

Efstu menn í punktakeppni:
1. Pétur Már Finnsson GR 29
2. Ólafur Sigurjónsson GR 29
3. Árni Bergur Sigurðsson GKG 27
4. Vitor Manuel Guerra Charrua GKJ 27

Nándarverðlaun:
7. braut - Hallgrímur Ólafsson GK, 2,5m
18. braut – Gerða Hammer GG, 6,73m

Nánari úrslit má finna á golf.is. Vinninga má nálgast í vikunni í golfskálanum á Húsatóftavelli. Ábendingar og athugasemdir berist á gggolf@gggolf.is

29. mars
Úrslit í páskamóti

Um 110 kylfingar tóku þátt í Páskamóti Golfklúbbs Grindavíkur sem fram fór í dag á Húsatóftavelli. Fjölmargir kylfingar létu kulda ekki á sig fá og léku á fínum Húsatóftavelli sem kemur vel undan vetri.

Í höggleik var það Aron Snær Júlíusson úr GKG sem lék best en hann lék hringinn á 71 höggi eða einu höggi yfir pari. Ágúst Ársælsson úr GK varð annar á 72 höggum. Þeir Tómas Sigurðsson úr GKG og Guðmundur Sveinbjörnsson úr GK urðu jafnir í 3.-4. sæti á 75 höggum.

Í punktakeppninni var það Sigurjón Gunnarsson úr GKG sem sigraði en hann nældi sér í 37 punkta. Helgi Axel Sigurjónsson úr GVS varð annar á 36 punktum. Helstu úrslit má sjá hér að neðan.

Golfklúbbur Grindavíkur vill þakka öllum þeim kylfingum sem tóku þátt í mótinu kærlega fyrir þátttökuna og vonum að þeir hafi notið golfhringsins.

Efstu kylfingar í höggleik:
1. Aron Snær Júlíusson GKG 71 +1
2. Ágúst Ársælsson GK 72 +2
3. Tómas Sigurðsson GKG 75 +5
4. Guðmundur Sveinbjörnsson GK 75 +5

Efstu kylfingar í puntkakeppni:
1. Sigurjón Gunnarsson GKG 37
2. Helgi Axel Sigurjónsson GVS 36
3. Ágúst Ársælsson GK 34
4. Jörundur Sveinn Matthíasson GR 34

Nándarverðlaun:
7. braut: Camilla Tvingmark – 1,85m
18. braut: Steinþór Júlíusson, GG – 2,83m

25. mars 2013
Opið mót á föstudaginn langa - opið á sumarflatir frá skírdegi til 1. apríl

Golfklúbbur Grindavíkur mun standa fyrir opnu golfmóti næstkomandi föstudag, 29. mars. Leiknar verða 18 holur og er ræst út á milli 09:00 og 14:00. Keppt verður í höggleik án forgjafar og einnig punktakeppni.

Veitt verða verðlaun fyrir fjögur efstu sætin í punktakeppni og efsta sætið í höggleik án forgjafar. Einnig verða veitt nándarverðlaun á 7. og 18. braut.

Verðlaun án forgjafar:
1. sæti - Vörur frá Vífilfell að verðmæti 20.000 kr.-

Punktar með forgjöf
1. sæti - Vörur frá Vífilfell að verðmæti 20.000 kr.-
2. sæti - Vörur frá Vífilfell að verðmæti 15.000 kr.-
3. sæti - Vörur frá Vífilfell að verðmæti 10.000 kr.-
4. sæti - Vörur frá Vífilfell að verðmæti 8.000 kr.-

Nándarverðlaun.
7. braut - Vörur frá Vífilfell að verðmæti 10.000 kr.-
18. braut - Vörur frá Vífilfell að verðmæti 10.000 kr.-

Skráning er hafin á golf.is og hvetjum við alla til að taka þátt. Flatir voru slegnar og valtaðar í dag þannig að búast má fínum hraða á flötunum á föstudag.

Þess má geta að völlurinn verður opinn inn á sumarflatir alla páskahelgina. Völlurinn verður opnaður á fimmtudagsmorgun og verður opin inn á sumarflatir yfir páska. Kylfingar geta skráð rástíma á netinu.

25. mars 2013

Frá stjórn GG
Félagsgjöld - skápagjöld og skuldir við skála

Kæri félagi

Nú fer að líða að golfsumrinu og um leið að eindaga á félagsgjöldum.  Eindagi félagsgjalda er 1. apríl.  Þeir sem þrufa að gera ráðstafanir vegna greiðslu ársgjalda eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við gjaldkera á netfangið Sverrir.Audunsson@dhl.com. Ef greitt er eftir eindaga bætast dráttarvextir við upphæðina.  Þeir sem ekki hafa greitt fyrir 1. maí verða teknir af félagaskrá og þurfa að greiða vallargjald..
Þeir sem skráðir eru með skápa í skálanum þurfa einnig að hafa samband við gjaldkera hvort þeir vilji endurnýja leiguna.  Hafa skal samband á netfangið Sverrir.Audunsson@dhl.com.  Skápagjaldið er sama og í fyrra; kr 6.000.
Enn ber á ógreiddum skuldum við skálann frá í fyrra.  Þeir sem enn skulda reikninga fyrir veitingar í skálanum eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við gjaldkera og semja um greiðslu skuldarinnar.

Í sumar verður ekki hægt að skulda reikning við skála lengur en sem nemur næstu mánaðarmótum, þ.e. úttektir í maí skulu gerðar upp í síðasta lagi 3. júní.

Félagsmönnum er bent á að sum stéttarfélög og atvinnurekendur styrkja starfsmenn sína við íþróttaiðkun og telst félagsaðild í GG vera styrkhæf.

Með golfkveðju
Stjórn GG

22. mars  2013
Dómaranámskeið

Ágætu félagar

Meðfylgjandi eru upplýsingar um golfdómara námskeið sem fram fara í apríl. Vinsamlega auglýsið þau í klúbbunum og komið á framfæri þar sem við á.
Mikilvægt er að allir golfklúbbar hafi yfir dómurum að ráða og því nauðsynlegt að efla áhuga félagsmanna á mikilvægi þess að hafa menntaða golfdómara.
Héraðsdómaranámskeiðin fara fram með þeim hætti að haldnir eru 4 fyrirlestrar þar sem farið er í ákveðnar reglur og síðan er prófdagur þar sem farið er almennt yfir störf dómara. Hægt er að úr tveimur mismundandi prófdögum. 

Héraðsdómaranámskeið:

1. fyrirlestur: þriðjudaginn 9. apríl kl. 19:30 - 22:00. Reglur 1, 2, 3, 6, 9, 10, 13 og 15
Fyrirlesarar: Hörður Geirsson og Sigurður Geirsson, alþjóðadómarar í golfi

2. fyrirlestur: fimmtudaginn 11. apríl kl. 19:30 - 22:00. Reglur 4, 5, 11, 16, 18, 19 og 20
Fyrirlesarar: Þórður Ingason og Þorsteinn Svörfuður, alþjóðadómarar í golfi

3. fyrirlestur: mánudaginn 15. apríl kl. 19:30 - 22:00. Reglur 7, 8, 21, 22, 24 og 25
Fyrirlesarar: Hörður Geirsson og Aðalsteinn Örnólfsson, alþjóðadómarar í golfi

4. fyrirlestur: miðvikudaginn 17. apríl kl. 19:30 - 22:00. Reglur 12, 14, 17, 23, 26, 27 og 28
Fyrirlesarar: Hörður Geirsson og Aðalsteinn Örnólfsson, alþjóðadómarar í golfi

Fyrri próf og lokafyrirlestur: laugardaginn 20. apríl kl. 10:00 - 12:30. Störf dómara og próf
Fyrirlesarar og prófdómarar: Sigurður Geirsson og Þorsteinn Svörfuður, alþjóðadómarar í golfi.

Síðara próf og lokafyrirlestur: þriðjudaginn 30. apríl kl. 19:30 - 22:00. Störf dómara og próf
Fyrirlesarar og prófdómarar: Sigurður Geirsson og Hörður Geirsson, alþjóðadómarar í golfi.
(ath. að hægt er að velja að taka próf 20. apríl eða 30. apríl.)

Landsdómaranámskeið – próf:

Verður haldið 13. apríl 2013 og stendur frá kl. 10 til klukkan 16. Fyrirlesarar og prófdómarar verða Aðalsteinn Örnólfsson og Þorsteinn Svörfuður, alþjóðadómarar í golfi.

Gert er ráð fyrir að milli kl. 10 og 12 verði fyrirlestur um áhugaverða úrskurði R&A um golfreglum en landsdómaraprófið hefjist kl. 13 og lýkur kl. 16. Þeir sem áhuga hafa á því að þreyta þetta próf þurfa að gera ráð fyrir nokkru sjálfsnámi með því að kynna sér efni bókarinnar Decisions on the Rules of Golf fyrir námskeiðið.

Skráning er í netfangið info@golf.is og eins er hægt að hringja á skrifstofu GSÍ 514-4050 og skrá sig. Skráningafrestur fyrir bæði héraðsdómaranámskeið og landsdómaranámskeið er mánudagurinn 8. apríl.

23.febrúar  2013
Nýr vallarstjóri ráðinn

Róbert Halldórsson hefur verið ráðinn nýr vallarstjóri hjá Golfklúbbi Grindavíkur. Hann tekur við starfinu af Bjarna Hannessyni sem var ráðinn vallarstjóri hjá Golfklúbbnum Keili síðastaliðið haust.Samningur milli Róberts og GG var undirritaður í dag í golfskálanum.

Róbert hefur undanfarin ár starfað sem vallarstjóri á Garðavelli fyrir Golfklúbb Reykjavíkur. Eftir að Leynir tók aftur við Garðavelli í var ákveðið að endurskipuleggja rekstur klúbbsins og helstu starfsmönnum klúbbsins sagt upp störfum. Róbert var einn þeirra sem sótti um starfið hjá Golfklúbbi Grindavíkur og hreppti starfið. Hann mun hefja störf hjá klúbbnum þann 1. mars næstkomandi.

Róbert hefur farið víða á ferli sínum sem golfvallastarfsmaður. Hann er menntaður frá Skotlandi og hefur unnið á völlum í Bandaríkjunum, Noregi, Skotlandi og einnig í Írlandi þar sem hann vann á K-Club vellinum fræga þar sem Ryder-bikarinn fór fram árið 2006. Hann var aðstoðarvallarstjóri í tvö ár á Grafarholtsvelli áður en hann tók við Garðavelli.

Stjórn GG ber miklar væntingar til samstarfsins og telur mikinn metnað ríkjandi innan raða stjórnarinnar að halda áfram því góða uppbyggingarstarfi sem einkennt hefur starfsemina undanfarin ár.  Það sést best á menntun og reynslu sem Róbert hefur hvað varðar stjórnun og rekstur vallar. Við bjóðum Róbert hjartanlega velkominn til starfa.

3.janúar  2013

Innheimta félagsgjalda fyrir árið 2013
(greiðsluseðlar hafa verið sendir út)

Kæri félagi

Ég vil fyrir hönd stjórnar Golfklúbbs Grindavíkur óska þér gleðilegs árs og þakka samstarfið á nýliðnu ári.

Nú er viðburðarríkt ár á enda runnið og nýtt ár hafið með nýjum vonum og væntingum.
Það má segja að árið 2012 hafi markað þáttaskil í starfi Golfklúbbsins. Í dag geta félagar Golfklúbbs Grindavíkur bent á með stolti að Húsatóftavöllur er orðinn 18 holu golfvöllur með nýju og glæsilegu klúbbhúsi sem rúmar allt að 100 manns í sæti.

Aðalfundur Golfklúbbbs Grindavíkur var haldinn laugardaginn 29. desember síðastliðinn.
Á fundinum var samþykkt að engar breytingar yrðu gerðar á ársgjöldum frá árinu 2012 að því undanskildu að nýliðagjald skyldi lækkað í 32.000 kr. Það er í samræmi við samþykkt aðalfundar árið 2011 að gera engar breytingar á félagsgjöldum þessa árs.

Stækkunarframkvæmdum var að mestum hluta lokið þegar nýr og stórglæsilegur 18 holu golfvöllur var tekinn í notkun í júlíbyrjun. Þrátt fyrir það er starfinu hvergi nærri lokið, þar sem enn á eftir að vinna í ýmsum þáttum sem fylgja stækkunarframkvæmdum. Þar má nefna gerð brautarskilta, bekki við teiga og ruslfötur, göngustíga, aðgengi að golfvellinum og bílastæði ásamt því að halda áfram við nýsáningar á nýju brautunum.

Allt þetta kostar sitt, en vel hefur verið haldið á spilunum og allt fjármagnið sem aflað hefur verið rann beint í starfsemi klúbbsins að nýju.

Þess vegna er mjög mikilvægt að félagar bregðist skjótt við og greiði félagsgjöld sín við fyrsta tækifæri því hver eyrir skiptir klúbbinn máli í rekstri hans og lækkar vaxtagjöld sem GG er þegar að greiða.

Gjalddagi meðfylgjandi greiðsluseðils er 3. mars en eindagi er 1. apríl.  Hægt er að greiða inn á félagsgjaldið þegar hentar.

Með golfkveðju
P'all Erlingsson formaður GG

 

29. des 2012
Staða GG traust þrátt fyrir miklar framkvæmdir og aukna skuldsetningu
Frá aðalfundi  29. des. 2012

Ágætis rekstrarár er að baki hjá Golfklúbbi Grindavíkur og nemur tap ársins um 2 milljónum króna. Rekstrartekjur ársins voru um 39,2 milljónir sem er hækkun um 14 milljónir frá árinu 2011 en rekstrargjöld um 40,7 milljónir.  Heildarskuldir golfklúbbsins eru samtals um 18 milljónir króna en eftir er að skuldfæra styrki á móti efnisúttektum.  Verðmætaaukning er 28,5 milljónir kr. 

Aðalfundur klúbbsins fór fram í golfkskálanum 29. des síðastliðinn og var hann vel sóttur.
Um 209 meðlimir eru nú í GG og stendur fjöldinn í stað frá í fyrra. 
Enn standa yfir stækkunarframkvæmdir á vellinum og má gera ráð fyrir um 4-5 milljón króna kostnaði til að ljúka þeim.   Einnig hefur verið lögð mikil vinna við stækkun og endurbætur á framtíðarskála GG sem nú er að mestum hluta lokið.
Sjá skýrslu stjórnar fyrir árið 2012

Ákveðið var að hafa félagsgjöld óbreytt frá síðasta aðalfundi að undanskildu að nýliðagjald lækki í 32.000 kr. Það er gert til að tryggja enn betur rekstrargrundvöll golfklúbbsins og samræma gjaldflokkana  Þess ber að geta að Golfklúbbur Grindavíkur er stoltur af því að bjóða sérstök námsmannagjöld, einnig fyrir örorkulífeyrisþega aldraða, nýliðagjöld og hjónagjöld sem eru með þeim lægstu á landinu. Einnig ber að hafa í huga að félagsgjöldin verða áfram með þeim lægstu miðað við 18 holu golfvelli landsins. Sjá gjaldskrá árið 2013
Fjárhagsáætlun 2013
Páll Erlingsson var endurkjörinn formaður klúbbsins en hann hefur setið sem formaður undanfarin fimm ár. Stjórn GG árið 2013 er því eftirfarandi: Páll Erlingsson (formaður), Halldór Einir Smárason, Sverrir Auðunsson (nýr í stjórn), Jón Guðmundsson, Gunnar Oddgeir Sigurðsson, Jón Júlíus Karlsson, og Sigmar Eðvarðsson. Í varastjórn eru Halldór Jóel Ingvason og Jóhann S. Ólafsson
sjá stjórnarskipan.
Sigvaldi Þorsteinsson og Jóhann Freyr Einarsson gáfu ekki kost á sér til endurkjörs.  Friðrik Ámundason sagði sig úr stjórn í águst 2012. Golfklúbbur Grindavíkur kann þeim miklar þakkir fyrir mjög gott starf.

Frestun á aðalfundi Golfklúbbs Grindavíkur til 29. des
 

Description: Description: http://www.gggolf.is/frettir/09/nov/gglogo.gif

Aðalfundur Golfklúbbs Grindavíkur frestast til laugardagsins 29. desember kl. 13:00 í Golfskálanum.
Ástæða þess er að ekki verður hægt að ljúka við ársreikninga 2012 og fjárhagsáætlun fyrir árið 2013 fyrr en 29. des.

Stjórnin

Í tilefni af byggingu golfskálans

 Kvöldverður til heiðurs þeim sem unnu að skálabyggingunni

Á þessu ári var brotið blað í sögu Golfklúbbs Grindavíkur þegar Húsatóftavöllur varð formlega 18 holu golfvöllur.  Ásamt því var tekinn í notkun nýr og glæsilegur golfskáli sem Grindvíkingar geta verið stoltir af. 
Núverandi golfskáli hefur gengið í gegnum mikla breytingar á síðastliðnum tveimur árum.  Húsnæði sem var áður rétt rúmir 100 fermetrar hefur verið stækkað í um 170 fermetra, með glæsilegri veitinga- og salernisaðstöðu. 
Það er mál manna að mjög vel hafi til tekist og gestir Húsatóftavallar keppst við dásama þessar breytingar.  Þegar litið er til baka koma eftifarandi orð fyrst upp í huganum sem lýsa vinnu þeirra einstaklinga lögðu hönd á plóginn: þrekvirki, ósérhlífni, fórnfýsi og félagsandi

Hafa ber í huga að klúbburinn er ekki fjölmennur; aðeins rúmlega 200 félagar en hann er sannarlega með stórt hjarta og mikla sál. Þar er hlutur þinn mikill og öðrum til eftirbreytni.

Draumurinn hefði aldrei orðið að veruleika nema fyrir ómetanlegt vinnuframlag þitt við stækkunina.

Til að sýna þakklæti okkar hefur stjórn GG ákveðið að halda veislu til heiðurs þeim og mökum þeirra sem að skálabyggingunni komu. 
Hófið verður laugardaginn 15. desember og hefst það kl. 18:00 með fordrykk.

 Vinsamlegast tilkynnið þátttöku eða forföll til Páls Erlingssonar eða á netfangið ggolf@gggolf.is fyrir kl. 12:00 þriðjudaginn 11. desember

Stjórnin

Aðalfundur Golfklúbbs Grindavíkur
fimmtudaginn 27. desember

Description: Description: http://www.gggolf.is/frettir/09/nov/gglogo.gif

Aðalfundurinn verður fimmtudaginn 27. desember kl. 19:30 í Golfskálanum

Dagskrá aðalfundarins er svohljóðandi:

  1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
  2. Bjarni Hannesson og Hannes Þorsteinsson - erindi um völlinn og framtíðarsýn hans
  3. Skýrsla stjórnar
  4. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til samþykkis
  5. Kosning formanns
  6. Kosning stjórnar og varastjórnar
  7. Fjárhagsáætlun fyrir árið 2013 lögð fram
  8. Ársgjöld 2013
  9. Önnur mál

Auglýst er eftir góðu fólki í stjórn klúbbsins og í nefndir á vegum hans. Ábendingar og tilkynningar sendist til gggolf@gggolf.is , merkt aðalfundur GG 2012.

Stjórnin

6. nóv
Skuldir klúbbfélaga við veitingasölu

Í september síðastliðnum voru félagar sem skulduðu í veitingasölu beðnir um að gera upp sína reikninga.  Komið hefur í ljós að margir félagar hafa enn ekki gert upp sínar skuldir og er það mjög bagalegt fyrirkomulag.  Komið hefur í ljós að þessar útistandandi skuldir eru 283.564 kr og munar nú um minna. Sumar skuldir eru allt frá máimánuði og er það engan veginn ásættanlegt.  Á næstu dögum munu þeir félagar fá sendan gíróseðil fyrir þeirri upphæð sem skuld þeirra nemur.  Er þeir vinsamlegast beðnir um að greiða hana sem allra fyrst. 

Eldri fréttir

 

 


Hópabókanir 2013

Rástímaskráning á golf.is

















Golfklúbbur Grindavíkur
Uppfært 22. apríl 2013
vefumsjón: gggolf@gggolf.is

 

Hit Counter