Staðarreglur Golfklúbbs Grindavíkur

  1. Vallarmörk afmarkast af girðingum, hvítum hælum og hvítmáluðum steinum. Vítishælar á milli 9. og 10 brautar gilda aðeins fyrir 9. braut.
     

  2. Jarðfastir steinar á snöggslegnu svæði á leið, fjarlægðahælar, vökvunarkerfi, hælar sem merkja legu þess og lok á ræsum eru óhreyfanlegar hindranir (Regla 24-2).
     
  3. Frídropp af vegslóða á 7. og 8. braut.
    Færsla um kylfulengd á braut 3 á snöggslegnu svæði, þó aldrei nálægt holu. (regla 25-1b).
     
  4. Nýframkvæmdir (nýsáð svæði) eru grund í aðgerð þaðan sem leikur er bannaður.  Afmarkað svæði við 7. braut meðfram vallarmörkum er grund í aðgerð þaðan sem leikur er bannaður og skal fara stystu leið út í átt að braut þó aldrei nær holu. 
    Allt upprót eftir vallarstarfsmenn og upprót vegna vatnslagna er grund í aðgerð.   Lausn samkvæmt reglu 25-1b(i).  
    Uppstilling leyfð í grund (innan kylfulengdar) eða frídropp utan grundar, þó ekki nær holu.
    Bolti sem liggur í eða við nýlagt torf má lyfta og leggja aftur innan kylfulengdar frá þeim stað sem hann lá upphaflega, en þó aldrei nær holu.
     
  5. Jarðfastir steinar á snöggslegnu svæði á leið, ofanáliggjandi vatnslagnir og vatnskranar, fjarlægðarhælar, malarbornir stígar, vegir, trébekkir, brautarmerkingar og ruslafötur eru óhreyfanlegar hindranir (regla 24-2).  Öll mannvirki, önnur en þau sem hér hafa verið nefnd, eru hluti vallarins.
     
  6. Rafeindarbúnarður til fjarlægðarmælinga, s.s. GPS og Laser, er leyfður samkvæmt heimild í úrskurði 14-3/0.5 í Decisions of the Rules on Golf 2006-2007.  Ef á meðan fyrirskipuð umferð er leikin og leikmaður notar tæki sem er hannað til að mæla eða meta aðrar aðstæður sem geta haft áhrif á leik hans svo sem halla, vindhraða, hitastig osfrv er leikmaður brotlegur við Reglu 14-3.  Víti fyrir það er frávísun án tillits til hvort slík viðbótarhlutverk tækisins voru hagnýtt í raun.  
     
  7. Steinar í glompum eru hreyfanlegar hindranir (Regla 24-1). 

Golfbílum er óheimilt að koma nær flötum en 15 METRUM

Víti fyrir brot á staðarreglu: 
Holukeppni: holutap
Höggleikur: 2 högg 
 

Að öðru leyti gilda almennar golfreglur um hvernig skal úrskurða um röð keppenda þegar úrslit eru reiknuð.

Golfarar eru beðnir um að ganga vel um völlinn, nota flatargaffla, laga torfuför og ganga vel um glompur.  Æfingahögg á teig eru ekki leyfð.
 











 

Golfklúbbur Grindavíkur 2011vefumsjón: paller@grindavik.is