UMGEGNISREGLUR HÚSATÓFTAVALLAR

Við viljum að allir kylfingar njóti þess að leika Húsatóftavöll við góðar aðstæður. Við biðjum alla gesti og félagsmenn að sýna öryggi, tillitssemi og virðingu fyrir vellinum, öðrum kylfingum og starfsfólki.

1. Öryggi umfram allt

  • Sýnið ávallt fyllstu varúð þegar þið sveiflið kylfunni og gangið úr skugga um að enginn sé í höggfæri.

  • Kallið „FORE!“ ef hætta er á að boltinn geti hitt aðra.

  • Vallarstarfsmenn við vinnu hafa forgang. Fylgið fyrirmælum þeirra og bíðið eftir skýru merki áður en þið sláið.

  • Sýnið öðrum kylfingum og starfsfólki tillitssemi, prúðmennsku og kurteisi.

2. Klæðaburður

  • Kylfingar skulu klæðast snyrtilegum golffatnaði.

  • Notið golfskó eða annan viðeigandi skófatnað sem veldur ekki skemmdum á flötum eða öðrum viðkvæmum svæðum vallarins.

3. Leikhraði og leikskipulag

  • Fylgið leiðbeiningum um leikhraða og haldið góðu flæði á vellinum.

  • Kylfingar eru hvattir til að taka boltann upp hafi þeir slegið fleiri högg en tvöfalt par á holu.

  • Yfirgefið flötina um leið og leik er lokið og skráið skor á næsta teig.

4. Umhirða og umgengni um völlinn

  • Haldið vellinum hreinum og setjið allt rusl í ruslatunnur.

  • Virðið afmörkuð og viðkvæm svæði.

  • Setjið torfusnepla aftur í kylfuför þar sem því verður við komið.

  • Gerið tafarlaust við boltaför á flötum með flatargafli.

  • Rakið glompur eftir notkun og leggið hrífuna aftur ofan í glompuna í höggstefnu.

  • Farið ekki með golfpoka eða golfkerrur inn á flatir eða teiga.

  • Æfingar á vellinum eru aðeins heimilar á tilgreindum æfingasvæðum.

5. Teigar og val á teigum

  • Kylfingar eru hvattir til að velja teiga sem hæfa getu sinni og forgjöf. Það stuðlar að betra leikhraða og ánægjulegri upplifun fyrir alla.

  • Virðið merkingar og leiðbeiningar um hvaðan heimilt er að leika hverja holu.

6. Eftirlit og viðurlög

  • Vallarstarfsmenn hafa eftirlit með leikhraða, öryggi og umgengni á vellinum.

  • Kylfingum ber að staðfesta rástíma í veitingasölu áður en leikur hefst, félagsmenn framvísa GSÍ korti í Mitt Golf appi GSÍ, gestir greiða fyrir rástíma.

  • Brot á umgengnisreglum, siðareglum eða fyrirmælum starfsfólks geta leitt til brottvísunar af svæði golfklúbbsins og eftir atvikum frekari viðurlaga samkvæmt reglum klúbbsins og viðeigandi reglum GSÍ.

Takk fyrir að ganga vel um Húsatóftavöll og sýna öðrum kylfingum tillitssemi.