Um golfklúbb Grindavíkur

Golfklúbbur Grindavíkur var stofnaður 14. maí 1981

Upphaf og uppbygging Húsatóftavallar

Upphaf golfíþróttarinnar í Grindavík má rekja til Jóhanns Möller, sem lagði fjögurra holu golfvöll við sumarbústað sinn í Staðarhverfi og hvatti heimamenn til að taka höndum saman og stofna golfklúbb. Þar var lagður grunnurinn að þeirri golfstarfsemi sem síðar átti eftir að vaxa og dafna í Grindavík.

Mikil tímamót urðu árið 2009 þegar hafist var handa við stækkun Húsatóftavallar í fullan 18 holu golfvöll. Hannes Þorsteinsson sá um hönnun vallarins og Bjarni Hannesson hafði umsjón með framkvæmdunum.

Samhliða uppbyggingu vallarins var unnið að bættri aðstöðu fyrir félagsmenn og gesti. Árið 2011 hófust umfangsmiklar endurbætur á íbúðarhúsnæði sem breytt var í klúbbhús Golfklúbbs Grindavíkur. Klúbbhúsið var formlega opnað 1. júlí 2012.

Aðeins nokkrum vikum síðar náðist annar stór áfangi í sögu klúbbsins þegar hinn fullgerði 18 holu Húsatóftavöllur var formlega tekinn í notkun með golfmóti þann 28. júlí 2012.

Húsatóftavöllur hefur frá upphafi haft sterka sérstöðu. Völlurinn fellur vel að stórbrotnu landslagi svæðisins þar sem hraun, gróin tún og nálægðin við sjóinn mynda fjölbreytt og eftirminnilegt umhverfi. Náttúran er þannig órjúfanlegur hluti af upplifuninni við að leika golf á Húsatóftavelli.

Golfvöllurinn


Húsatóftavöllur

Húsatóftavöllur er staðsettur vestan við Grindavík, við Reykjanesvitaveg, og er í um 7 km fjarlægð frá Bláa lóninu. Völlurinn er 18 holur og býður upp á einstaka blöndu sjávar- og hraunlandslags. Fimm holur liggja meðfram ströndinni en þrettán holur liðast um hraunið norðan vegarins.

Leikur hefst til austurs þar sem kylfingar halda inn í hraunið áður en leiðin liggur aftur til vesturs. Fyrri níu holurnar enda á einum þekktasta stað vallarins, við 9. flötina sem liggur í náttúrulegri skál í hrauninu og myndar einstaklega fallega umgjörð.

Á seinni níu holunum liggur leiðin fram og til baka um fjölbreytt landslag vallarins áður en komið er að lokakaflanum nær klúbbhúsinu.

Lokaholan setur síðan eftirminnilegan punkt við hringinn. Hún er glæsileg par 3 hola sem leikin er í átt að gamla skálanum og núverandi klúbbhúsi Golfklúbbs Grindavíkur – skemmtilegur og krefjandi endir á golfhring á Húsatóftavelli.

Klúbbhúsið og einstakt umhverfi

Klúbbhús Golfklúbbs Grindavíkur var opnað í júlí 2012. Húsið er um 170 fermetrar að stærð og rúmar allt að 100 gesti, sem gerir það vel til þess fallið að taka á móti stærri hópum og halda ýmiss konar viðburði og samkomur.

Húsatóftavöllur sker sig úr fyrir einstakt og fjölbreytt landslag. Brautir vallarins liggja um þrjú ólík landslagssvæði – meðfram ströndinni, um gróið land og í gegnum stórbrotið hraunið.

Völlurinn liggur á virku sprungusvæði á flekaskilum og náttúran setur sterkan svip á upplifunina. Hraunið, sprungurnar, hafið og víðáttan skapa tilkomumikið umhverfi og einstakt útsýni sem gerir golfhring á Húsatóftavelli að sérstakri upplifun.

Þrátt fyrir hrjóstrugt og tilkomumikið hraunlandslag er völlurinn þægilegur yfirferðar og hentar vel til göngu.

Starfsfólk


Helgi Dan Steinsson

Helgi Dan Steinsson
897-9231
Framkvæmdastjóri
gggolf@gggolf.is

Eva Lind Matthíasdóttir
842-1925
Þjónustustjóri
gggolf@gggolf.is

Sumarstarfsfólk 2026

Þórunn Elfa Helgadóttir

Ragnar Guðmundsson

Ingólfur Hávarðarson

Ottó Helgason

Valur Þór Hákonarson

Jón Garðar Arnarsson

Stjórn GG 2026
Hávarður Gunnarsson - Formaður
Guðmundur Bragason
Jón Júlíus Karlsson
Sigurður Helgi Hallfreðsson
Þorgerður Guðný Guðmundsdóttir
Jón Gauti Dagbjartsson
Atli Kolbeinn Atlason

Varastjórn 2026
Arna Magnúsdóttir
Sigurpáll Jóhannsson

Mótanefnd 2026
Hávarður Gunnarsson
Jón Júlíus Karlsson
Helgi Dan Steinsson
Atli Kolbeinn Atlason

Flatargjöld

og leiga

Félagsaðild

Aðeins 44,900 kr. á ári