Aðalfundarboð 12. apríl 2026
Kæru félagsmenn,
Hér með er boðað til aðalfundar Golfklúbbs Grindavíkur sem haldinn verður sunnudaginn 12. apríl kl. 13:00.
Fundurinn fer fram í golfskálanum á Húsatóftum.
Stjórnarkjör
Núverandi stjórnarmenn gefa allir kost á sér til áframhaldandi setu, að undanskilinni Svövu Agnarsdóttur sem hefur óskað eftir að hætta. Er henni hér með þakkað kærlega fyrir sitt framlag til klúbbsins á undanförnum árum.
Ekki verður óskað eftir framboðum í hennar stað, heldur verður stjórninni fækkað um einn fulltrúa. Mun stjórnin því vera skipuð sjö stjórnarmönnum í stað átta, eins og verið hefur.
Óskað er eftir tveimur einstaklingum í varastjórn en fyrir liggja tillögur að framboðum, en vissulega er öðrum félagsmönnum velkomið að gefa kost á sér, hvort sem er til varastjórnar, stjórnarsetu eða embættis formanns.
Framboðum skal skilað til Evu Lindar á netfangið eva@gggolf.is eigi síðar en sunnudaginn 5. apríl.
Stjórn GG og framkvæmdastjóri